amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 31. júlí 2010 - 08:04
 
Pistill birtist 25. október 2009 klukkan 13:35

Egill Helgason ræðst gegn eigin þjóð

 
Pistill eftir Friðbjörn Orra Ketilsson
 
 
Um höfundinn

Friðbjörn Orri Ketilsson er framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Vefmiðlunar ehf. og sinnir auk þess stjórnarsetu í ýmsum félögum. Friðbjörn situr í stjórn Straumrastar ehf, útgáfufélagi AMX.

 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Egill Helgason þáttastjórnandi og opinber starfsmaður RÚV sendi bréf í lok september á þessu ári til stofnunar að nafni Transparency International sem sérhæfir sig í að mæla spillingu í löndum heims. Stofnunin gefur árlega út vísitölu spillingar og hefur Ísland að öllu jöfnu fengið bestu einkunn og verið talið nær laust við spillingu. Slík einkunn er m.a. lykill að erlendri fjárfestingu og forsenda þess að erlendir aðilar sýni landinu áhuga.

Sendibréf Egils er eftirfarandi.

Dear Sir/Madam

I am a senior journalist in Iceland.

I must say that your results on Iceland and corruption absolutely undermine the reputation of your organisation.

Are you aware that there is a huge investigation into financial misdoings in our country, headed by a special prosecutor with the aid of Eva Joly, the French/Norwegian investigation magistrate?

Your information is obviously wrong – or maybe your criteria is faulty.

Best regards

Egill Helgason

Reykjavik Iceland

Það er ekki oft sem einhver leggur sig beinlínis fram við að vinna tjón á hag samlanda sinna líkt og Egill Helgason reynir með bréfaskrifum sínum. Mælikvarðar Transparecy International eru unnir á faglegum forsendum og með ólíkindum að Egill skuli reyna að hafa áhrif á niðurstöður þeirra Íslandi í óhag. Hvað gengur slíkum einstaklingi til?

Það sem gerir sendibréf Egils enn furðulegra er að hann sendir það sem blaðamaður og hann starfar sem slíkur á Ríkisútvarpinu svo best verði séð. Ekki færi hann að segja ranglega til titils sem „senior journalist“. Er það eðlilegt að opinber starfsmaður ríkisfjölmiðils standi í slíkum bréfaskriftum og keppist við að fá Ísland stimplað sem spillingarland?

Egill rekur sig svo á þann vegg að kanna ekki heimildir sínar og áttar sig ekki á því að vísitala spillingar fyrir árið 2009 er ekki komin út heldur aðeins fyrir árið 2008. Því til viðbótar felst ákveðin einfeldni í því að benda virtri erlendri stofnun á að hérlendis sé í gangi rannsókn á sakamálum. Réttlát málsmeðferð er grunnatriði óspilltra réttarríkja. Þá er rétt að láta ensku málfræðivillurnar sem „senior journalist“ sýnir af sér í bréfinu liggja á milli hluta.

Það er gott að vita til þessa að þegar í harðbakkann slær fyrir land og þjóð skuli einn Íslendinga, Egill Helgason, gera sér erindi til þeirra sem gáfu Íslandi góða einkunn á alþjóðlegum vettvangi og reyna sitt besta við að sannfæra þá um að hér sé allt spillt og breyta þurfi einkunn Íslands til hins verra.

 
Fleiri pistlar
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Markaðurinn er litblindur - segir Ögmundur

Ögmundur Jónasson alþingis­maður hefur sýnt það í gegn um tíðina að hann er vel verseraður í kenningum um markaðsbúskap, kapítalismann. Oftast nær hefur hann nýtt sér þekkingu sína til þess að gagnrýna markaðsbúskapinn og sjaldnast dregið af sér.

Jón Magnússon:

Tap lífeyris­sjóðanna - ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar

Ekki liggur ljóst fyrir hvað mikið tap lífeyris­sjóðanna íslensku verður vegna þeirra sviptinga sem verið hafa á fjármálamörkuðum frá því síðsumars 2008. Tapið verður þó verulegt. Tæpast hafa stjórnir lífeyris­sjóðanna enn afskrifað það sem þarf að afskrifa og gert lífeyrisþegum grein fyrir því hvað mikið lífeyrir þeirra skerðist vegna oft á tíðum gáleysislegrar gæslu stjórnendanna á fjármunum lífeyrisþega.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Alls staðar þvælast þeir fyrir

Merkilegt er hve ríkis­stjórninni er lagið að láta til sín taka þar sem síst skyldi, skapa vandamál þar sem þau eru ekki fyrir og auka vandann þar sem hann er til staðar.

Gunnar Rögnvaldsson:

Verða banka­stjórar seðlabanka Evrópu­sambandsins ekki örugglega reknir?

Evrulöndin eru að endurtaka mistökin frá 1930 með næstum óaðfinnanlegri nákvæmni. Hag­fræðingurinn Paul De Grauwe segir í grein sinni í Financial Times að peningayfirvöld evru­svæðis hafi og séu ennþá að endurtaka þau mistök sem hin svo kölluðu gullblokkarlönd Evrópu gerðu í stóru kreppunni 1930 (Frakkland, Ítalía, Belgía, Holland og Sviss).

Jón Magnússon:

Sanngjörn lausn á Icesave

Það er engin ágreiningur um það milli Íslendinga að við teljum óréttlátt að bera skuldbindingar vegna Icesave reikninganna. Við sem ekki vorum boðin til veislu fjármálafyrirtækjanna finnst hart að þurfa að taka út timburmennina fyrir þá sem voru á blindafjármálafylleríi.

Bjarni Harðarson:

Hin háskalegu tengsl Icesave og ESB

Undirritaður er þess heiðurs aðnjótandi að vera útnefndur „Ráðgjafi ársins“ af hinum oft ágæta og samt hægrisinnaða Vefþjóðvilja. Um leið og ég þakka þeim Andríkismönnum heiðurinn langar mig að gera lítilsháttar grein fyrir þeim störfum og skoðunum sem liggja að baki svo góðum árangri í árlegri útnefningu.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Reddast allt með Icesave-undirskrift?

Það er athyglisvert að staðan í Icesavemálinu hefur orðið ríkis­stjórninni að allsherjarafsökun fyrir hvaðeina sem úrskeiðis fer. Öllum eru í fersku minni, hótanirnar og hræðsluáróðurinn sem óð uppi eftir að forsetinn synjaði Icesavelögunum staðfestingar

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX