amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 4. febrúar 2012 - 16:30
 
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Aldrei brugðist vondum málstað

12. feb Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

 
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Markaðurinn er litblindur - segir Ögmundur

29. jan Ögmundur Jónasson alþingis­maður hefur sýnt það í gegn um tíðina að hann er vel verseraður í kenningum um markaðsbúskap, kapítalismann. Oftast nær hefur hann nýtt sér þekkingu sína til þess að gagnrýna markaðsbúskapinn og sjaldnast dregið af sér.

 
Jón Magnússon:

Tap lífeyris­sjóðanna - ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar

28. jan Ekki liggur ljóst fyrir hvað mikið tap lífeyris­sjóðanna íslensku verður vegna þeirra sviptinga sem verið hafa á fjármálamörkuðum frá því síðsumars 2008. Tapið verður þó verulegt. Tæpast hafa stjórnir lífeyris­sjóðanna enn afskrifað það sem þarf að afskrifa og gert lífeyrisþegum grein fyrir því hvað mikið lífeyrir þeirra skerðist vegna oft á tíðum gáleysislegrar gæslu stjórnendanna á fjármunum lífeyrisþega.

 
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Alls staðar þvælast þeir fyrir

26. jan Merkilegt er hve ríkis­stjórninni er lagið að láta til sín taka þar sem síst skyldi, skapa vandamál þar sem þau eru ekki fyrir og auka vandann þar sem hann er til staðar.

 
Gunnar Rögnvaldsson:

Verða banka­stjórar seðlabanka Evrópu­sambandsins ekki örugglega reknir?

21. jan Evrulöndin eru að endurtaka mistökin frá 1930 með næstum óaðfinnanlegri nákvæmni. Hag­fræðingurinn Paul De Grauwe segir í grein sinni í Financial Times að peningayfirvöld evru­svæðis hafi og séu ennþá að endurtaka þau mistök sem hin svo kölluðu gullblokkarlönd Evrópu gerðu í stóru kreppunni 1930 (Frakkland, Ítalía, Belgía, Holland og Sviss).

 
Jón Magnússon:

Sanngjörn lausn á Icesave

16. jan Það er engin ágreiningur um það milli Íslendinga að við teljum óréttlátt að bera skuldbindingar vegna Icesave reikninganna. Við sem ekki vorum boðin til veislu fjármálafyrirtækjanna finnst hart að þurfa að taka út timburmennina fyrir þá sem voru á blindafjármálafylleríi.

 
Bjarni Harðarson:

Hin háskalegu tengsl Icesave og ESB

15. jan Undirritaður er þess heiðurs aðnjótandi að vera útnefndur „Ráðgjafi ársins“ af hinum oft ágæta og samt hægrisinnaða Vefþjóðvilja. Um leið og ég þakka þeim Andríkismönnum heiðurinn langar mig að gera lítilsháttar grein fyrir þeim störfum og skoðunum sem liggja að baki svo góðum árangri í árlegri útnefningu.

 
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Reddast allt með Icesave-undirskrift?

15. jan Það er athyglisvert að staðan í Icesavemálinu hefur orðið ríkis­stjórninni að allsherjarafsökun fyrir hvaðeina sem úrskeiðis fer. Öllum eru í fersku minni, hótanirnar og hræðsluáróðurinn sem óð uppi eftir að forsetinn synjaði Icesavelögunum staðfestingar

 
Hjörtur J. Guðmundsson:

Ísland er í ESB-aðlögunarferli

14. jan Því er nú haldið að okkur Íslendingum að verið sé að hefja svokallaðar „aðildar­viðræður“ við Evrópu­sambandið. Um sé að ræða ferli sambærilegt við hverjar aðrar viðræður á alþjóða­vettvangi. Þá er því gjarnan haldið fram að um um sé að ræða sama fyrirkomulag og Norðmenn gengu í gegnum síðast þegar þeir sóttu um inngöngu í sambandið fyrir 15 árum síðan. Fátt er þó fjarri sanni.

 
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Er sá franski fífl og lygari?

12. jan Það kemur á óvart hve stjórnar­liðar mæta allri gagnrýni á Icesavsamninginn sinn af mikilli forherðingu, óöryggi og ósvífni. Það bendir ótvírætt til að þeir séu ekki alltof öruggir með sig; hvorki með stöðu sína í Icesavemálinu né heldur með málið yfirleitt. Óöryggi þeirra birtist í hvatskeytislegum svörum við gagnrýni. Og breytir þá engu hvaðan hún kemur.

 
Jón Magnússon:

Forseti lýðveldisins beitir valdi sínu

12. jan Í síðustu viku boðaði forseti lýðveldisins til blaðamannafundar og tilkynnti þar að hann ætlaði ekki að staðfesta svokölluð Icesave lög sem Alþingi samþykkti nokkru fyrir áramót. Þau lög voru borin undir forseta til staðfestingar á ríkisráðsfundi í lok desember en þá tók forseti sér frest til að ákveða hvort hann samþykkti þau eða synjaði þeim staðfestingar. Eðlilegt hefði verið í samræmi við stjórnskipunar­reglur að forsetinn hefði haft frumkvæði að því að boðaður hefði verið ríkisráðsfundur þar sem hann gerði ríkisráði grein fyrir afstöðu sinni til laganna.

 
Óli Björn Kárason:

Össur hefur engan áhuga á Icesave - aðeins ESB skiptir máli

11. jan Minn gamli vinur, Össur Skarphéðinsson utanríkis­ráðherra er að villigötum og það því miður ekki í fyrsta skipti. Með pólitísku ofbeldi keypti Samfylkingin sannfæringu Steingríms J. Sigfússonar, og meitihluti Alþingis samþykkti að sækja um aðild að Evrópu­sambandinu.

 
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Leikið á veikleika íslenskra stjórnvalda

11. jan Það kemur ekki á óvart að Hollendingar og Bretar taki fálega hugmyndum um að taka upp samninginn um Icesave að nýju. Hver myndi ekki gera það sem hefði fengið uppáskrifaðan svo einhliða samning frá ríkis­stjórn Íslands. Bresk og hollensk stjórnvöld prísa sig sæla með samninginn og vilja því vitaskuld ekki ljá því máls að taka hann upp.

 
Björn Bjarnason:

Sömu lagarök í Whitehall og í stjórnar­ráði Íslands – skipta verður um málsvara

8. jan Þeim fjölgar sífellt, sem kveðja sér hljóðs á erlendum vettvangi og lýsa þeirri skoðun, að ekki sé neinn lagagrundvöllur fyrir því að krefjast þess af Íslendingum, að þeir beri Icesave-skuldirnar.

 
Björn Bjarnason:

Neitun Ólafs Ragnars gefur tækifæri á alþjóða­vettvangi

6. jan Um margra mánaða skeið eða allt síðan hinir dæmalausu Icesave-samningar voru kynntir opinberlega hinn 5. júní 2009 hefur verið hvatt til þess, að forystumenn ríkis­stjórnar­innar gengju fram fyrir skjöldu á þann veg á alþjóða­vettvangi, að rækileg athygli yrði vakin á því, hve fráleitt væri að leggja þær byrðar á Íslendinga, sem í samningunum felast.

 
Jón Magnússon:

Stökkbreyttu höfuðstólarnir

6. jan Almenningur í landinu þarf að taka á sig skattahækkanir og launalækkun. Fjármála­ráðherra sem segist stýra verkalýðs­flokki hlakkaði raunar yfir því í vikunni hvað krónan væri góð og hvað hún nýttist okkur vel í því ástandi sem nú væri. Hvað átti maðurinn við? Krónan nýtist fyrst og fremst til að lækka launin og rýra eignir fólksins í landinu. Getur verið að Steingrímur J. Sigfússon sé svona ánægður með kjararýrnun launafólks í landinu?

 
Björn Bjarnason:

Ólafur Ragnar segir nei, ríkis­stjórn í vanda, sigur InDefence

5. jan Þegar þetta er skrifað, hafa þing­flokkar ríkis­stjórnar­innar ekki enn rætt þá ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar frá því klukkan 11.00 í morgun, þriðjudaginn 5. janúar, að skrifa ekki undir Icesave-lögin. Augljóst var, að Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. var miðsboðið vegna ákvörðunarinnar, þegar þau ræddu hana á blaðamannafundi í stjórnar­ráðinu 80 mínútum, eftir að forsetinn efndi til síns blaðamannafundar.

 
Jón Magnússon:

Er dómsdagur í nánd?

5. jan Í nýársprédikun biskups Íslands segir hann að um dómsdag verði að ræða þann dag sem rannsóknar­nefnd Alþingis birtir skýrslu þá er hún hefur tekið saman um aðdraganda og ástæður bankahrunsins í október í fyrra. Hafi biskup notað það orðalag að um dómsdag verði að ræða þegar rannsóknar­nefndin skilar skýrslu sinni, þá er það vægast sagt vanhugsað og óheppilegt orðalag.

 
Geir R. Andersen:

Icesave-samþykkt aðgöngumiði að ESB?

5. jan Fáum dylst sú staðreynd, að samskipti Íslands við umheiminn er mikilvægasti hornsteinn þess stöðugleika sem þjóðinni er nauðsynlegur til að geta haldið sjálfstæði sínu. Allt frá samþykkt lýðveldis­stofnunar, árið 1944 þegar Bandaríkjamenn tryggðu sjálfstæði okkar með símskeyti frá forseta Bandaríkjanna til Þingvalla hinn örlagaríka dag, 17. júní, var stöðugleikinn verið tryggður.

 
Sigurður Kári Kristjánsson:

Steingrímur hótar forsetanum

4. jan Mikil taugaveiklun hefur nú augljóslega gripið um sig innan ríkis­stjórnar­innar og meðal stjórnar­liða vegna þeirrar ákvörðunar Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, að taka sér nokkurra daga frest til þess að ákveða hvort hann eigi að staðfesta Icesave-lög ríkis­stjórnar­innar eða synja þeim staðfestingar.

 
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Sjálfum sér samkvæmur?

2. jan Miðað við fyrri yfirlýsingar Ólafs Ragnars Grímssonar forseta ætti enginn vafi að leika á því að hann hyggist EKKI staðfesta lögin sem samþykkt voru á Alþingi þann 30. desember sl. um Icesave.

 
Sigurður Kári Kristjánsson:

Gjá milli þings og þjóðar

1. jan Icesave-frumvarpið var samþykkt með naumum meirihluta á Alþingi, 33 atkvæðum gegn 30, næstsíðasta dag ársins 2009. Þeir alþingis­menn sem samþykktu frumvarpið, samþykktu að gera fólkið í landinu, íslenskan almenning, sem ekkert hefur til saka unnið, ábyrgt án dóms og laga, fyrir skuldum sem það hefur aldrei stofnað til og ber enga ábyrgð á.

 
Björn Bjarnason:

Áramótaávörp Jóhönnu og Ólafs Ragnars

1. jan Um þessi áramót urðu þau tímamót, að í fyrsta sinn flutti forsætis­ráðherra ríkis­stjórnar, sem stuðningsmenn og ráðherrar kalla „hreinræktaða vinstri stjórn“, ávarp. Er ástæða til að staldra við og velta fyrir sér, hvort þar sé að finna eitthvað, sem markar ávarpinu sérstöðu.

 
Birgir Ármannsson:

Hver vissi hvað, hvenær - og hvaða gögnum var leynt?

30. des Það uppnám, sem nú ríkir á Alþingi á lokastigum Icesave-málsins, er afar dæmigert fyrir allan feril málsins. Skömmu áður en þriðju umræðu um frumvarp fjármála­ráðherra átti að ljúka, koma fram ný gögn í málinu, sem gefa til kynna að síðastliðið vor hafi samningamenn Íslands í deilunni við Breta og Hollendinga, látið undir höfuð leggjast að nýta mikilvæg lögfræðileg sjónarmið frá virtum enskum lögmönnum til að styrkja stöðu landsins í deilunni.

 
Jón Magnússon:

Auknir skattar og álögur - skjaldborginni snúið gegn fólkinu

30. des Fjárlög voru afgreidd frá Alþingi skömmu fyrir jól ásamt hliðarlögum til að tryggja hækkun á ýmsum sköttum og gjöldum. Svo ólíklega vildi til að annars hið málglaða Alþingi afgreiddi þessi frumvörp á mettíma án verulegra átaka. Þó er um mestu skattahækkanir í Íslandssögunni að ræða og meiningin að afgreiða fjárlög með 99 milljarða halla sem mun þýða það í raun þegar upp er staðið að hallinn verður yfir 100 milljarðar árið 2010.

 
Bjarni Harðarson:

Þú hefur drýgt hór - Bjarni hinn seinheppni svarar fyrir sig!

29. des Í gamansögu af Helgu frænku minni sem var piparkerling hér í Grímsnesinu segir frá því að einhverju sinni deildu þau feðgin hún og Jón faðir hennar um mark á undanvillingi sem þvælst hafði heim að bænum.

 
Björn Bjarnason:

Icesave-málsmeðferðin með ólíkindum

27. des Hér í þessari samantekt verður ekki rætt um efni hins örlagaríka Icesave-máls heldur málsmeðferðina. Hún er með ólíkindum, frá því að Steingrímur J. tók málið í sínar hendur. Hann hefur farið með ósannindi, orðið margsaga og leitast við skella skuldinni á aðra, eftir að ljós kom, hve illa var staðið að gerð samninganna undir formennsku Svavars Gestssonar.

 
Sigurður Kári Kristjánsson:

Án dóms og laga

24. des Lögfræðiálit bresku lögmannsstofunnar Mishcon de Reya er alvarlegur áfellisdómur yfir þeim sem ábyrgð bera á Icesave-samningunum, en það eru ríkis­stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna og samninga­nefnd hennar.

 
Jón Magnússon:

Hvatning er nauðsynleg

24. des Margir einstaklingar sem hafa sett svip sinn á mannkynsöguna og unnið stórvirki á hvaða sviði svo sem það kann að vera og hafa náð þeim hæðum af því að þeir fengu hvatningu og nutu trausts ástvina sinna eða vina. Stundum blæs ekki byrlega og allt virðist andstætt og þá skiptir máli að þeir sem standa fólki næst séu tilbúnir til að hjálpa til með hvatningu til að hver einstaklingur eigi þess kost að ná áttum og nýta sér hæfileika sína.

 
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Hættulegt lesefni?

21. des Það vekur nokkra undrun að sá mikilvirki álitsgjafi Egill Helgason skuli ekki fylgjast með skrifum í Viðskiptablaðinu. Hann segir frá því sjálfur að hann sé nær hættur að sjá blaðið. Og syrgir raunar þau örlög sín. Úr þessu á hann örugglega hægt með að bæta. Með því að gerast áskrifandi gæti hann tryggt sér að eiga þess kost að lesa þetta ágæta vikurit.

 
Jón Magnússon:

Vond fjölmiðlun

21. des Í Kastljósi ríkisútvarpsins var frétt í vikunni sem leið þar sem sagt var frá því að Ögmundur Jónasson alþingis­maður hefði verið undir áhrifum áfengis á Alþingi þann dag. Þessi frétt kom mér á óvart því að fáa þingmenn þekki ég sem láta sér jafn annt um störf sín sem alþingis­menn og Ögmundur Jónasson gerir.

 
Björn Bjarnason:

Loftslagsráð­stefnan út um þúfur

20. des Loftslagsráð­stefnan í Kaupmannahöfn bar ekki þann árangur, sem að var stefnt. Í frá 7. til 18. desember sátu fulltrúar 193 landa og fjölmargra samtaka að auki (14 frá Íslandi undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætis­ráherra , og Svandísar Svavarsdóttur, umhverfis­ráðherra) í Bella Center, skammt frá Kastrup-flugvelli, og réðu ráðum sínum um, hvað við skyldi taka, þegar Kýótó-samningurinn rynni sitt skeið í árslok 2012.

 
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Ríkis­stjórnin hlýðir rödd að handan

17. des Þegar við i þing­flokki Sjálfstæðis­flokksins settum fram hugmyndir okkar um skattlagningu lífeyris með nýjum hætti fékk það blendnar móttökur. Talsmenn sumra lífeyris­sjóða - en alls ekki allra – mótmæltu. En aðrir tóku þessu vel.

 
Óttar Felix Hauksson:

Ekki er það beysið

16. des Hin kalda hönd kreppunnar vofir yfir. Gjörningaveður gæti verið í aðsigi. Hag­stjórnar­mistök huglausrar vinstri stjórnar eru dýru verði keypt. Það gæti orðið erfiðleikum bundið að sigla út úr því fárviðri sem skekur þjóðar­skútuna undir skips­stjórn bóndasonarins kotroskna, sem nú gegnir embætti fjármála­ráðherra.

 
Jón Magnússon:

Á fyrsta farrými

13. des Það er þekkt sagan af mönnunum sem voru að tala saman og annar sagði. Við erum á hraðri leið til helvítis og hinn svaraði. Jjá en við förum þó á fyrsta farrými.

 
Ágúst Þórhallsson:

Skjaldborgir rísa eins og gorkúlur - við þurfum að byggja eina utan um Icesave

11. des Við þessar aðstæður er í reynd ekkert vit í því að reyna að greiða erlendar skuldir okkar í erlendum gjaldmiðlum þ.á.m. Icesave skuldir. Stjórnmálamenn verða að vakna og byrja að hugsa um landsmenn. Leysa á Icesave með þeim hætti að Ísland gefi út einhliða tilkynningu um að trygginga­sjóður innistæðu­eigenda hafi ákveðið að greiða breskar innistæður í útibúi Landsbanka Íslands í íslenskum krónum á tíu árum með eitt prósent vöxtum.

 
Björn Bjarnason:

Icesave-heimur Steingríms J.: Gerviheimur.

11. des Harkalega er deilt um efni og afleiðingar Icesave-samningana fyrir okkur Íslendinga. Þótt málið hafi verið meira rætt en önnur á alþingi, eru öll kurl ekki enn komin til grafar. Fjárlaga­nefnd er enn og aftur tekin til við að ræða einstök atriði málsins og nú hefur verið ákveðið að leita formlega eftir áliti sérfróðra manna um stjórnskipuleg álitamál hér á landi og lögfræðilega þætti í Bretlandi.

 
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Ég segi því nei!

9. des Það fjölgaði dálítið í hópi stuðningsmanna ríkis­stjórnar­innar í þinghúsinu í dag við Icesave afgreiðsluna. Þar voru mættir í hliðarsali, spunameistararnir úr Samfylkingunni, sem alltaf eru álengdar, þegar mikið liggur við og hugsjónamál Samfylkingar­innar, ESB og Icesave eru til umræðu.

 
Birgir Ármannsson:

Ekkert nýtt í Icesave-umræðunni?

5. des Í Morgunblaðinu í morgun er athyglisverð umfjöllun um afstöðu þingmanna ríkis­stjórnar­flokkanna til Icesave-frumvarpsins, sem nú er til meðferðar á Alþingi. Flestir viðmælendur blaðsins lýsa yfir stuðningi sínum við málið en frá því eru þó undantekningar. Lilja Móses­dóttir talar gegn frumvarpinu með tilvisun til skuldabyrði og skuldaþols þjóðar­innar, Ásmundur Einar Daðason segist ekki gefa upp afstöðu og Ögmundur Jónasson gefur í skyn andstöðu sína með því að vísa til brotthvarfs síns úr ráðherraembætti snemma í haust.

 
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Daglegar morgunheimsóknir stjórnar­liða

4. des Ný hefð hefur nú myndast í þingstörfunum. Stjórnar­liðar fara í daglegar morgunheimsóknir í þingsali. Ekki til þess að búa sig undir að ræða um eitt stærsta hagsmunamál Íslands, Icesavemálið. Nei. Erindið er að greiða atkvæði til þess að tryggja að haldnir verði kvöldfundir.

 
 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX