Rúmlega 650 fermetrar á þremur hæðum með 120 fm svölum og kostaði tæpa 3 milljarða
Jón Ásgeir Jóhannesson keypti í janúar 2007 tvær íbúðir, samtals 650 fm, efst í 50 Gramercy Park North sem er eitt dýrasta hús á Manhattan. Jón Ásgeir er stjórnarformaður Baugs Group og leiðandi eigandi Stoða (áður FL Group), sem aftur voru kjölfestufjárfestir í gamla Glitni. Í gegnum sameiginlegt eignarhaldsfélag fjölskyldunnar á Jón Ásgeir Haga, sem rekur meðal annars Bónus, Hagkaup, 10-11 og fleiri smásöluverslanir hér á landi. Þá keypti fjárfestingarfélag Jóns Ásgeirs fjölmiðlahluta 365 fyrir nokkrum vikum. Í gegnum Baug Group hefur Jón Ásgeir verið umsvifamikill í fjárfestingum í smásöluverslunum á Bretlandi og víðar.
Að sögn fasteignasala þá keyptu, Jón Ásgeir og Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona hans, fyrst íbúð á 16. hæð hússins fyrir 10 milljónir dollara og síðar keyptu þau þakíbúð hússins á rúmar 14 milljónir dollara. Þar af greiddu þau 4 milljónir dollara fyrir forkaupsrétt sem var á eigninni. Eftir viðskiptin áttu þau þá þrjár hæðir í húsinu. Í fasteignaheimi borgarinnar var talsvert um það skrifað að Jón Ásgeir hefði gert mjög góð kaup í íbúðinni en upprunanlegt verð hafi verið nokkru hærra en það sem Jón greiddi.
Íbúð þeirra hjóna í New York kostaði alls 24 milljónir bandaríkjadala sem gera 2,9 milljarða króna sé miðað við hver dollar kosti 121 krónu. Þess ber að geta að þegar kaupin voru gerð var gengi dollars mun hagstæðara. Íbúðin er 650 fermetrar ásamt tæplega 70 fermetra svölum á 16. hæð hússins og tveimur stórum svölum á 18. hæð sem samtals mælast 120 fermetrar. Fermetraverð íbúðarinnar reiknast um 4,5 milljónir króna.
Íbúðin er hin glæsilegasta og hönnuð af heimsþekktum arkitektum. Húsið sjálft er blanda af íbúðarhúsi og hóteli en sólahringsþjónusta er fyrir íbúa hússins og geta þeir pantað sér veitingar, nudd, þrif, sett þvott í hreinsun og svo mætti áfram telja. Húsið er að sögn fasteignasala eitt það dýrasta í borginni m.a. vegna þess að stór einkagarður er við húsið sem aðeins íbúar hafa aðgang að.
Kaup Jóns Ásgeirs vöktu mikla athygli í borginni þegar þau voru gerð opinber. Þekkt dagblöð ræddu við fasteignasala og gerðu málinu góð skil.
New York Times þann 29. apríl 2007:
„A businessman from Iceland who built an international retailing empire has just acquired one of the most expensive apartments ever sold in Manhattan below 42nd Street, a Gramercy Park triplex costing more than $24 million, brokers say.“
BusinessWeek þann 30. janúar 2008 þegar blaðið fjallaði um gjaldþrot Glitnis banka:
„These days Jóhannesson spends very little time back in Iceland, instead splitting his time between a home in London and a $24 million triplex apartment near Manhattan's Gramercy Park.“
New York Observer þann 30. apríl 2007:
„Mr. Johannesson is a hot topic in Iceland, where his firm, the Baugur Group, is on trial for fraud and embezzlement. Years earlier, he was accused of using a company credit card to pay female escorts visiting his yacht.
Appropriately, The Financial Times has called him a „dashing 21st-century Rockefeller.“
He can work on maintaining that image in his new triplex: The top floor has only an exercise room (besides the bedroom, bathroom, dressing area and three walk-in closets).“
Hús Jóns Ásgeirs er fallegt að degi til. Jón á efstu þrjár hæðirnar sem eru samtals 650 fermetrar. Í húsinu starfar þjónustufólk sem þrífur, eldar mat og sinnir öðrum húsverkum.
Útsýnið úr þakíbúð Jóns. Séð er yfir stóran og notalegan garð sem er beint fyrir framan húsið og svo áleiðis niður eftir Manhattan.
Að næturlagi lifnar yfir húsinu sem er hið glæsilegasta í allri hönnun og var nýlega tekið í gegn. Ljósaskiptin glampa fallega í gluggum og fagurt útsýni er yfir borgina skemmir ekki fyrir.
Íbúð Jóns Ásgeirs er á miðri Manhattan eyju á allra besta stað í New York. Stutt er á góða veitingastaði, í leikhús og óperu ásamt því að snekkjuhöfn er nánast í göngufæri.
Fyrsta hæðin af þremur í íbúð Jóns er tæpir 300 fm og vel hönnuð í alla staði. Þar er að finna bókasafn, 5 baðherbergi, 2 svefnherbergi, snyrtiherbergi, 2 stofur og svo mætti áfram telja.
Önnur hæð af þremur í íbúð Jóns er stórglæsileg. Stórt bókasafn er á hæðinni, sjónvarpsherbergi, þrjá ganga, eldhús, tvær stofur, tvö svefnherbergi og 4 baðherbergi.
Efsta hæðin í þakíbúð Jóns Ásgeirs er rúsínan í pylsuendanum. Þar er að finna lesherbergi og skrifstofu með um 50 fm svölum, hjónaherbergið með 67 fm svölum, tvö einkabaðherbergi og stórt sameiginlegt baðherbergi.
Inngangur í íbúðarhótelið lætur ekki mikið yfir sér en handan hurðarinnar leynist heill heimur hönnunar og lúxusaðstöðu.
Arkitektar leggja til rúmgóðan bar við eldhúsið, svonefnt alrými, þar sem vinir geta átt notalega stund meðan beðið er eftir að þjónar beri fram rétti úr eldhúsi hússins sem er á fyrstu hæð og mannað færum kokkum.
Íbúðahótelið, sem hannað er af heimsþekktum arkitektum og innanhúshönnuðum, er hið glæsilegasta og hver íbúð vönduð. Hér má sjá uppkast arkitekta að uppsetningu innanhús í íbúð Jóns Ásgeirs.
Arkitektar sýna á þessari mynd hvernig birta skín inn um stóra glugga og gróður á stórri verönd snertir rúðurnar.
Arkitektar sína hér hvernig eitt af a.m.k. 7 baðherbergjum gætu litið út.
Tvöfaldir vaskar, marmari, o.fl. er meðal þess munaðar sem arkitektar leggja til að sé í 650 fermetra íbúð Jóns Ásgeirs í New York.
Arkitektar sjá fyrir sér hurðar og inngang í íbúðir með þessum hætti. Óvist er hvort Jón Ásgeir fór að þeirra ráðum eða eigin leiðir við val á fágætum viðartegundum í klæðningar og gólfefni.
Gramercy Park er garðurinn fyrir framan húsið hjá Jóni Ásgeiri. Þangað er hægt að ganga hvenær sem er og fá hvíld frá stórborginni, setjast í laut eða hlusta á fuglasöng.
Breiðir og þægilegir bekkir eru í garðinum þar sem hvíla má lúin bein eftir hádegisverð eða verslunarleiðangur.