amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 4. febrúar 2012 - 15:53
 

Einkaþotur og þyrlur íslenskra auðmanna

Ferðamáti efnaðra Íslendinga tók miklum breytingum árin 2005 - 2007

 
 

Hápunkti íslensku útrásarinnar var náð snemma árs 2007 þegar daglega lentu á Reykjavíkurvelli einkaþotur og einkaþyrlur. Um borð voru forstjórar og stjórnir íslenskra fyrirtækja sem nú eru mörg hver komin í þrot. Meðal félaga sem höfðu þotu á eigin snærum eða leigðu slíka vél voru til dæmis Landsbankinn, Novator, Baugur, Glitnir og FL Group. Flogið var á fundi erlendis, í erlend samkvæmi eða með fjölskyldur stjórnarmanna á suðlægar strendur.

Fjölmargir ferðuðust með einkaþotunum, meðal annars Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. Í viðtali við Mannlíf sagði forsetinn meðal annars um ferðalög sín:

„Ég óttast ekkert að ég sé að missa tengslin við íslenska alþýðu. Það hvarflar ekki að mér. Þessi umræða um einkaþoturnar er satt að segja afar léttvæg.“

Kaupverð á þotu líkt og þeirri sem Björgólfur Thor Björgólfsson á í dag er 22,5 milljónir dala eða 1,7 milljarðar íslenskra króna sé miðað við gengið 77 krónur fyrir hvern dollar sem var hæsta gengi ársins 2006. Sé horft á gengið 115 krónur fyrir hvern dollar, sem gildir er þessi orð eru rituð, myndi sama vél kosta um 2,6 milljarða króna.

Flugferð til London á fund kostaði að öllu jöfnu tæpa milljón á hvern farþega aðra leiðina ef vélin var nýtt að fullu. Tveir til þrír flugmenn voru á sólahringsvakt í vélunum ásamt flugfreyju. Eldsneyti á vélarnar kostaði sitt og greiða þurfti lendingargjöld, loftrýmisgjöld auk annarra gjalda á hverjum stað sem lent var á.

Kostnaður var í sumum tilvikum greiddur af íslenskum almenningshlutafélögum sem leigðu vélarnar til þessara nota. Þess voru dæmi að stjórnarmenn í almenningshlutafélögum ættu þotu sjálfir í sérstöku einkafélagi sem síðan leigði almenningshlutafélaginu sömu þotu undir þá sjálfa.

Einkaþyrlur voru einnig áberandi og flaug Magnús Kristinsson, eigandi Toyota umboðsins, þyrlu sinni með tveimur flugmönnum reglulega til Vestmannaeyja en slík ferð, fram og til baka, kostaði um 350.000 krónur. Ólafur Ólafsson, einn eigandi Samskipa, flaug þyrlu sinni reglulega sjálfur upp á Snæfellsnes.

Controller

Vél Hannesar er falleg og straumlínulaga. Hér stendur hún á ótilgreindum flugvelli eftir lendingu.

Controller

Einkaþota Hannesar Smárasonar, fyrrum forstjóra FL Group, er af gerðinni Challenger 604 og sérlega ríkulega búin og falleg einkaþota. Sæti eru leðurklædd og fyrirtaks aðstaða er til vinnu í vélinni.

Controller

Leðurklædd sæti og langir sófar einkenna einkaþotu Hannesar Smárasonar.

Controller

Flugstjórnarklefi einkaþotu Hannesar Smárasonar er vel tækjum búinn og þarf tvo flugmenn til að fljúga vélinni heimshorna á milli.

Controller

Pálmi Haraldsson, í Fons, er með þessa fallegu Challenger 604 einkaþotu sem hér sést á flugvelli erlendis. Vélin tekur 10 farþega auk farangurs með góðu móti.

Controller

Hér sést vél Pálma nýkomin út úr flugskýli á leið í flug. Vélin er vönduð og ber einkennisstafina VP-CEO sem líklega er vísun í forstjórastólinn.

Controller

Vel fór um Pálma Haraldsson í einkaþotu sinni. Stólar eru leðurklæddir og þægindi á hverju strái.

Controller

VP-CEO vél Pálma Haraldssonar situr hér í makindum á erlendum flugvelli og býður þess að farþegar komi um borð.

Mathias Henig

Challenger vél Björgólfs Thors Björgólfssonar sést hér á lokastefnu fyrir lendingu í Zürich í Swiss. Vélin er hin glæsilegasta og má sjá merki fjárfestingafélags Björgólfs, Novator, á stéli hennar. Verðmæti vélarinnar er um 2,6 milljarðar á núverandi gengi.

Petri Poutanen

Einkaþota Björgólfs Thors Bjórgólfssonar fjárfestis sást mjög oft á Reykjavíkurvelli árið 2007. Hún er af gerðinni Bombardier Challenger 604 og tekur 9 farþega í sæti í lúxusuppsetningu. Þotan sést hér á Helsinki flugvelli.

Bombardier Aerospace

Ekki eru til myndir af innviðum einkaþotu Björgólfs Thors en framleiðandi þotunnar gefur nokkur dæmi um lúxusuppsetningu á vefsíðu sinni. Hér er eitt þeirra þar sem leðurstólar og stór sófi eru settir inn í flugvélina ásamt viðarinnréttingu.

Bombardier Aerospace

Hægt er að raða stórum sætum um flugvélina í stað þess að hafa sófa um borð. Auðvelt er að koma fyrir skjalatöskum eins og sjá má á þessari mynd. Að sögn framleiðanda á plássleysi ekki að angra farþega.

PlaneCheck

Björgólfur Guðmundsson, faðir Björgólfs Thors, hafði þessa fallegu einkaþotu af gerðinni Challenger 600 með skráningarnúmerið N247CK til umráða. Ekki er vitað hvaða einkahlutafélag Björgólfs átti vélina.

PlaneCheck

Hér sést þota Björgólfs lækka flugið og lenda á flugvelli. Þotan er mjög rennileg og tignarleg. Hún er nú til sölu og sögð staðsett á Reykjavíkurflugvelli.

PlaneCheck

Innan í einkaþotu Björgólfs Guðmundssonar virðist vera mjög notalegt að vera. Leður er á sófa og hægindastólum.

PlaneCheck

Auðvelt er að matast í einkaþotu Björgólfs Guðmundssonar og stutt í sjónvarp sem er fremst í vélinni.

Martin Velebil

Jón Ásgeir Jóhannesson keypti nýja einkaþotu af gerðinni Dassault Falcon 2000EX og lét mála hana svarta og merkti vandlega með 101 merkinu á stél vélarinnar. Hér sést vélin á flugvellinum í Prag. Ný kostar þotan 26 milljón bandaríkjadali eða um þrjá milljarða.

Einkaþota Jóns Ásgeirs klifrar upp í flughæð eftir flugtak frá óskilgreindum flugvelli í Bretlandi. Þotan er hraðfleyg og rennileg líkt og straumlínur hennar sem málaðar eru á skrokkinn.

Silja Magg / Boat Internatinal

Innanstokks í einkaþotu Jóns Ásgeirs er stórglæsilegt um að lítast. Sebralitt teppi er á gólfum, hvítir leðurstólar, tölva og annar lúxus er á hverju strái. Myndin birtist í alþjóðlega snekkjublaðinu Boat International.

Dassault Falcon

Framleiðandi þotu Jóns Ásgeirs, Dassault Falcon, birtir sýnishorn af mögulegri lúxusuppsetningu á heimasíðu sinni sem hér má sjá. Þægindin eru lykilatriði í vel innréttaðri einkaþotu.

Hediye Akyuez

Einkaþota Karls Wernerssonar keyrir eftir braut á Reykjavíkurvelli. Í bakgrunni má sjá kunnugleg hús í Reykjavík.

Matthieu Douhaire

Einkaþotur eru algengar í lúxusþorpum víða um Evrópu. Hér sést þota Karls Wernerssonar meðal annarra einkaþotna á Firenze flugvellinum á Ítalíu.

Fan

Hér sést þota Karls í Munchen þar sem hún býður þess að farþegar komi um borð eða fari frá borði.

Kut Radatz

Þota Karls Wernerssonar lækkar flugið og undirbýr lendingu í Frankfurt.

UK Civil Aviation Authority

Þyrla Baugs í Bretlandi er vel merkt fyrirtækinu eins og sjá má á hlið þyrlunnar sem er af gerðinni Augusta A109E og er skráð á BG Aviation Ltd. og er póstfang þess félags Baugur UK Ltd, 89 New Bond Street, London. Andvirði þyrlunnar er í dag 3,4 milljónir dollara eða 391 milljón króna á núverandi gengi.

UK Civil Aviation Authority

Þyrlan er hraðfleyg og góð til brúks í hringiðu fjármála og viðskipta. Heimavöllur þyrlunnar er Fairoaks-flugvöllur sem er í útjaðri Lundúna, skammt suðvestur af borginni.

UK Civil Aviation Authority

Hér sést einkaþyrla Baugs hefja sig til flugs einhvern eftirmiðdaginn. Mikil þægindi felast í þyrluflugi. Þyrla Baugs var áður grá á lit og lét fyrirtækið mála hana upp á nýtt og merkja sjálfum sér.

UK Civil Aviation Authority

Þyrlan er til margs gagnleg. Hér er hún lent á golfvelli í nágreni Lundúna og getur því flutt eigendur sína fljótt og örugglega í hvers kyns tómsstundir í nágreni borgarinnar.

Þyrluþjónustan

Þyrla Magnúsar Kristinssonar eiganda Toyota umboðsins var áberandi árið 2007. Hún er græn að lit af gerðinni Bell 430. Notuð kostar þyrlan 6 milljón bandaríkjadali eða 690 milljónir króna á núverandi gengi.

Vel fer um Magnús og hans fólk í þyrlunni. Hér sést hann á ferð með konu sinni og skálar hann við ljósmyndara. Myndin birtist þegar Magnús sagði samgöngur við Vestmannaeyjar vera svo slæmar að m.a. hann yrði að leysa sín samgöngumál sjálfur.

Þyrluþjónustan

Þyrlan er hin glæsilegasta að innan og er sérstök VIP útgáfa. Hún tekur fjóra í sæti í lúxusuppsetningu en allt að 6 í hefðbundinni útgáfu.

Þyrluþjónustan

Leðursæti og gullskreytingar eru áberandi í farþegarými þyrlunnar og er ískápur á milli sæta búinn kampavíni og kristalsglösum.

Þyrluþjónustan

Skúffa fyrir vín og önnur þægindi er undir sætum auk þess sem sjá má vandaða viðarinnréttingu á hurðum og stórum gluggum sem gefa fallegt útsýni.

TZ Aviation

Ólafur Ólafsson, einn eigandi Samskipa, flýgur þessari Eurocopter sex manna þyrlu sinni sjálfur um landið. Þyrlan er skráð í Bretlandi og kostar ný 2 milljónir dollara eða 230 milljónir króna á núverandi gengi.

 
 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX