Hægt er að leigja snekkjuna og fer leiguverðið eftir árstíma
Árið 2005 skrifuðu Jón Ásgeir Jóhannesson og kona hans Ingibjörg Pálmadóttir undir samning við Heesen skipasmíðastöðina í Hollandi um smíði á 44 metra langri lúxussnekkju. Heesen er leiðandi aðili í smíðum á lúxussnekkjum og hefur smíðað margar af stærstu og ríkulegustu snekkjum heims. Snekkjan var sjósett árið 2007. Snekkjan er til útleigu og getur hver sem leigt hana. Leiguverðið er háð árstímum.
Sambærileg snekkja kostar á markaði um 35 milljónir dollara eða 4 milljarða á núverandi gengi, 115 kr fyrir hvern dollar.
Meðal herbergja um borð eru; eitt aðalsvefnherbergi, þrjú svefnherbergi tvíbreið, eitt svefnherbergi með tveimur rúmum auk snyrtiaðstöðu víða um skip. Þá er skipstjóri með sér herbergi sem og 9 manna áhöfn skiptir með sér þremur herbergjum. Samtals eru því ekki færri en níu herbergi um borð auk annarra rýma.
Snekkjan er búin allri nýjustu tækni og margvíslegum aukabúnaði. Vélar hennar skila 7.400 hestöflum en til samanburðar skilar fólks- og bílaferjan Herjólfur aðeins 7.300 hestöflum. Hámarkshraði snekkjunnar er 25 hnútar eða 46 kílómetrar á klukkustund. Snekkjan kemst 3.400 sjómílur á hagkvæmustu siglingu sem þýðir að ferð frá Reykjavík til Flórída tæki tæpa 12 daga. Eldsneytistankar snekkjunnar taka 69.000 lítra af díselolíu.
Áfylling á snekkjuna í Reykjavíkurhöfn myndi kosta rúmar 12 milljónir miðað við 174 kr/ltr. og sá tankur klárast á einni ferð til Flórída.
Hér er snekkjan við festar undan ströndum Monakó og sést áhöfnin sinna verkum um borð. Tveir léttabátar eru í snekkjunni auk krana til að hífa vistir og annað um borð.
Heseen skipasmíðastöðin í Hollandi sá um smíði snekkjunnar. Hún var sjósett árið 2007 og sést hér við bryggju stuttu eftir sjósetningu. Snekkjan númer tvö í hinni nýju 4400 línu Heesen. Hún er 44 metra löng og 9 metra breið.
One o one er skráningarnafn snekkjunnar og heimahöfn hennar er George Town á Cayman eyjum í miðju Karíbahafinu.
Á fremra þilfari snekkjunnar er rúmgóð verönd með borðum og leðurklæddum bekkjum. Þar má virða fyrir sér útsýnið og anda að sér ferskri hafgolunni. Í baksýn hér má sjá Manhattan svæði New York borgar.
Glæsilegur stigi er á milli hæða í snekkjunni með hvítu þykku teppi á tröppum, speglum á veggjum og glansandi handriðum. Svartar flísar eru á gólfi á neðri hæð með stöfunum 101 ígröfnum.
Um borð er stórt baðherbergi með tveimur vöskum, baðkeri og sturtuklefa. Þar mætti skola af sér sjávarseltuna eftir sundsprett í heitum sjónum.
Bar er staðsettur í snekkjunni þar sem blanda mætti drykki fyrir matargesti. Innanstokksmunir eru hinir glæsilegustu og hvergi til sparað í vandaðri hönnun og samsetningu.
Borðstofa er í snekkjunni með flottu borði og leðursætum fyrir a.m.k. 8 matargesti. Spegill er staðsettur fyrir ofan borðið og hvítt teppi á gólfum.
Mögulegt er að hvíla lúin bein í þægilegum hægindastólum.
Skrifstofa er um borð þar sem hægt er að fara yfir stöðuna á heimsmörkuðum eða sinna öðrum störfum. Hvítir leðurstólar ásamt tveimur flötum tölvuskjám nýtast vel og stutt er í hvítbólstraðan legubekk.
Þægileg rými eru víða um borð og má hér sjá eitt þeirra með hvítum leðurstólum og svörtu leðurborði. Í bakgrunni má sjá bar.
Setustofan er hin glæsilegasta með löngum hvítum leðurklæddum bekkjum meðfram veggjum beggja hliða. Í miðju er fallegt sófasett og fjær í rýminu má sjá arin úr svörtum marmara frá árinu 1890.
Svefnherbergið um borð er vandað og fallegt. Útsýni er út á hafflötinn og stór flatur sjónvarpsskjár er í skápi gegnt rúminu. Í tölvukerfi snekkjunnar eru yfir 500 kvikmyndir, gervihnattasjónvarp auk annarrar afþreyingar.
Þegar húma tekur skartar snekkjan sínu fegursta og blasir við sjófarendum upplýst og ríkuleg. Aðalsmerki snekkjunnar, 101, sést upplýst á hlið skipsins.