amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:50
 

Undrið í Dúbaí

 
 

Fáir deila um að gríðarlegur uppgangur í Dúbaí á síðustu árum virðist hafa verið byggður í orðsins fyllstu merkingu á sandi. Uppbyggingin hefur verið ótrúleg og svo virtist sem enginn skortur væri á peningum. Menn héldu áfram að byggja og byggja. Erlendir fjárfestar heilluðust af ævintýrinu, þekktar íþróttastjörnur þóttu ekki vera menn með mönnum mena að hafa keypt rándýrar íbúðir eða jafnvel heilu manngerðu eyjurnar.

Hér eru aðeins nokkur dæmi um framkvæmdagleðina. Það er af nægu að taka.

Dubai fyrir 1990 - áður en allt fór af stað. Lítið sem ekkert að sjá fyrir utan nokkrar einmanna byggingar.

Allt gjörbreytt. Árið 2003 er sama gatan og ævintýrið hafið fyrir löngu. Ein einmanna hús eru aðeins hluti af glæsilegri götumynd, en fremur lágreist miðað við nýjar og glæsilegar hallir.

Svipað sjónarhorn tekið á síðasta ári á meðan allt lék í lyndi.

Allt á fukllum skriði. Áður en fréttir fóru að berast af erfiðleikum héldu heimamenn því fram að 15% af öllum byggingakrönum heims væru í Dubai. Enginn veit hvort þetta er rétt.

Sjávarbakkinn með hafnaraðstöðu, hótelum veitingastöðum og öðru tilheyrandi. Er stærsti tilbúni sjávarbakki heims.

Pálmaeyjurnar. Hugmyndin var að búa til þrjá eyjar sem minna á pálmatré. Hafist var handa við fyrstu eyjuna í júní 2001. Skömmu síðar hófust framkvæmdir við eyju tvö. Ef eyjarnar verða allar gerðar munu 520 kílómetrar bætast við strandlengjuna í Dubai.

Pálmaeyjarnar sjást vel á myndum gervitungla. Á eyjunum eru lúxusíbúðir, glæsileg einbýlishús, og hótel. Íbúar á fyrstu eyjunni fengu íbúðir afhentar í lok árs 2006. Framkvæmdir við þriðju eyjuna liggja nú niðri.

Heimurinn. Fjórum kílómetrum undan strönd Dubai hafa verið útbúnar 300 eyjar sem saman mynda heimskort jarðar. Hverja eyju á að selja auðmönnum og hafa nokkrar þegar verið seldar, en fréttir virðast vera á reiki um hverjir hafi raunverulega keypt. Ýmsir þekktir listamenn, íþróttastjörnur og viðskiptajöfrar hafa verið efnd til sögunnar. The Guardian greindi frá því í nóvember að líklegast myndi þetta ótrúlega verk aldrei kláast, enda verktakinn kominn í mikla erfiðleika. Times Online hefur sagt frá því að allar framkvæmdir liggi nú niðri. Eyjarnar hafa verið seldar á 15 til 50 milljónir dollara.

Burj al-Arab - Turn Arabanna - er eina sjö stjörnu hótel heims. Byggingin er sögð vera næst hæsta bygging heims sem eingöngu er nýtt undir hótel. Framkvæmdir hófust árið 1994 og mun kostnaðurinn nema um 650 milljónum dollara (um 80 milljörðum króna). Hótelið er byggt á manngerðri eyju.

Hydropolis. Fyrsta lúxus hótel heims sem er neðansjávar. Þegar hafist var handa við hótelið var stefnt að því að opna það árið 2006 en ýmsir tæknilegir erfiðleikar hafa komið upp. Ekki er ljóst hvenær hótelið verður opnað. Alls eru 220 herbergi og svítur í hótelinu og gera er ráð fyrir að gestir greiði a.m.k. sex þúsund dollara fyrir hverja nótt. Í upphafi var kostnaður áætlaður 550 milljónir dollara, en ljóst er að hann verður hærri.

Burj Dubai - hæsta bygging heims, allt 818 metrar. Framkævmdir hófust árið 2004 og á að vera lokið á næsta ári. Byggingin er miðpunkturinn í miðbæ Dubai.

Nakheel Tower - í höfuðið á verktakanum. Hefjast átti handa við bygginguna á þessu ári en því hefur verið frestað. Stefnt að framkvæmdum á komandi ári en talið ólíklegt. Hefði orðið hæsta bygging heims alls 1.200 metrar.

 
 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX