amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:47
 

Eina sáttin um Icesave er þjóðar­atkvæði

2. des Það er sjálfsvörn þjóðar­innar að stjórnar­andstaðan skuli halda uppi andófi gegn frumvarpi ríkis­stjórnar­innar um ríkisábyrgð á Icesave-reikningum Landsbankans. Stjórnar­þingmenn kalla slíkt málþóf, þingmenn stjórnar­andstöðunnar nýta rétt sinn til þess að ræða málið.

 

Við þurfum ekki ríkisstyrkta fjölmiðlun

25. nóv Formaður Blaðamanna­félags Íslands telur að rétt sé að ríkið styðji við einkarekna fjölmiðla með beinum hætti. Hugmyndin er vond.

 

Tungubrjótar

16. nóv Katrín Jakobsdóttur mennta- og menningarmála­ráðherra fer víða í dag og veitir m.a. verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Hætt er við að hinn langi titill ráðherrans hefði vafist fyrir málhögum Jónasi. Í tilefni dagsins er lögð fram fróm ósk. Leggjum af ný og löng heiti ráðuneyta. Þau eru tungubrjótar. Tökum aftur upp hin styttri og þjálli.

 

Galinn ráðherra

10. nóv Sjávar­útvegs­ráðherra ætlar að stöðva siglingar íslenskra fiskiskipa með ferskan fisk á erlendan markað. Fyrir slíkan fisk fæst samt hærra verð en fyrir annan enda er hann fullunnin og eftirsótt vara. Nái þetta fram að ganga eyðileggjast markaðir sem langan tíma hefur tekið að byggja upp. Sjómenn, skip­stjórar og útvegs­menn í Vestmannaeyjum benda réttilega á að áform ráðherrans séu arfavitlaus. Þetta eru galnar fyrirætlanir.

 

Hvaða rugl er þetta?

28. okt Aðgerðir íslenskra smala eyðilögðu athyglisverða þróun íslensks villidýra­stofns sem hefur komist vel af, með nægt æti og skjól, á einangruðum fjallgarði milli Patreks- og Tálknafjarðar. Villt sauðfé hefur lifað þar frá miðri síðustu öld, er orðið háfættara og með aðra vöðvabyggingu en það sem tekið er á hús. Stofninum skal útrýmt, jafnvel hrundið fyrir björg, í nafni mannúðar á grundvelli dýraverndarlaga sem ekki eiga við í þessu tilfelli.

 

Jóhanna, skömm þín er mikil

19. okt Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætis­ráðherra hefur ekki staðið við loforð sem hún gaf íslensku þjóðinni. Fyrir nokkrum dögum taldi hún óásættanlegt að Íslendingar gæfu frá sér réttinn til að leita úrskurðar dómstóla um greiðsluskyldu vegna Icesave.

 

Forsætis­ráðherra er stærsta efnahagsvandamál Íslands

11. okt Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætis­ráðherra er að verða stærsta efnahagsvandamál sem þjóðin þarf að glíma við. Hún hefur misst tökin á ríkis­stjórninni og hefur því í hótunum við samverkamenn. Hún veit ekki í hvorn fótinn hún á að stíga í Icesave-málinu, er margsaga um samskiptin við Alþjóða­gjaldeyris­sjóðinn og neitar að beita sér að alþjóða­vettvangi til að gæta hagsmuna lands og þjóðar.

 

Hugmynd um minnihluta­stjórn VG er galin

7. okt Stærstu dagblöð landsins, Fréttablaðið og Morgunblaðið geta ekki til þess hugsað að boðað verði til nýrra kosninga til Alþingis, þrátt fyrir að sitjandi ríkis­stjórn sé eins og liðið lík og óstarfhæf. Leiðarahöfundar blaðanna hafa rangt fyrir sér.

 

Okur-vaxta-skattheimta Seðlabankans tónar við skatta­stefnu ríkis­stjórnar­innar

3. okt Ríkis­stjórnin áformar að stórauka skattheimtu á heimili og fyrirtæki á komandi ári. Svo langt er gengið að líklegt er að fjárlög á komandi ári muni framlengja kreppuna um nokkur ár, nái frumvarpið fram að ganga lítið breytt.

 

Morgunblaðið á villigötum

1. okt Rit­stjórn Morgunblaðsins er á villigötum þegar því er haldið fram að ekki sé hægt að boða til kosninga vegna þess að slíkt væri ábyrgðarlaust „enda viðsjálir tímar framundan“. Varla eru önnur úrræði en nýjar kosningar þegar sitjandi ríkis­stjórn er lömuð og verklaus, stefnir landinu að feigðarósi og litlar líkur á því að hægt sé að mynda nýja starfhæfa stjórn.

 

Skammgóður vermir fríblaðaútgáfunnar

25. sep Það þykir sjálfsagt og eðlilegt að greiða fyrir vöru og þjónustu. Á þessu er þó ein áberandi undantekning, dreifing upplýsinga í fréttaformi. Þessara nauðsynlegu upplýsinga er þó dýrt að afla og koma til almennings, hvort heldur er um að ræða prent-, ljósvaka-, eða netmiðla.

 

Forsætis­ráðherra lemur hausnum við steininn

13. sep Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætis­ráðherra lemur hausnum við steininn og neitar að hlusta á gagnrýni aðila vinnu­markaðarins á ríkis­stjórnina. Segir að hún sé ómakleg og ósanngjörn. Steingrímur J. Sigfússon fjármála­ráðherra spilar undir.

 

Ríkis­stjórnin er áttavillt en hefur stjórnar­andstaðan framtíðarsýnina?

22. ágú Því miður er fátt sem bendir til þess að ríkis­stjórnin nái áttum í þeirri villu sem hún hefur ratað og þá reyndir á stjórnar­andstöðuna. Íslenskur almenningur mun hins vegar spyrja sig þeirrar einföldu spurningar hvort stjórnar­andstaðan hafi þá framtíðarsýn, stefnu og stefnufestu sem nauðsynleg er.

 

PR-mennska viðskipta­ráðherra fyrir skertum lífskjörum

31. júl Gylfa Magnússyni viðskipta­ráðherra virðist fyrirmunað að skilja þá gagnrýni sem sett hefur verið á Icesave-samkomulagið við Hollendinga og Breta. Hann heldur áfram að berja höfðinu við steininn í tilraun til að telja almenningi trú um að við Íslendingar getum fyllilega staðið undir þeim skuldbindingum sem ríkis­stjórnin berst fyrir að lagðar verði á herðar okkar.

 

Mestu kosningasvik sögunnar

13. júl Steingrímur J. Sigfússon hefur gefið allt eftir. Katrín Jakobs­dóttir hefur svikið allt sem hún sagði. Árni Þór Sigurðsson hefur gleymt því sem hann lofaði kjósendum. Ögmundur Jónasson hefur gengið á bak orða sinna.

 

Icesave-leikrit ríkis­stjórnar sem berst fyrir lífi sínu

18. jún Ef meirihluti þingmanna stendur gegn samningnum, er hvorki Jóhönnu eða Steingrími lengur sætt í ríkis­stjórn - ekki frekar en öðrum ráðherrum sem að málinu komu. Kannski að hér sé skýringin kominn á því afhverju þau vilja draga það í lengstu lög að kynna landsmönnum hvaða skuldbindingar þau hafa gert fyrir hönd þjóðar­innar, án þess að hafa til þess umboð.

 

Við verðum aldrei svo aum

3. jún Við Íslendingar glímum við mikla efnahagslega erfiðleika. En við getum aldrei og megum aldrei verða svo aum að taka ekki málstað þeirra sem berjast fyrir einföldum mannréttindum. Erfiðleikar okkar verða aldrei svo miklir að við séum ekki tilbúnir til að skipa okkur í sveit baráttu um mannréttindi og mannlega reisn.

 

Hið rétta andlit vinstri stjórnar kemur í ljós

29. maí Hin norræna velferðar­stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hefur tekið fyrstu skrefin við stjórnun ríkisfjármála. Neysluskattar skulu hækkaðir. Þannig er gripið til sömu gömlu úrræðanna. Vinstri menn vilja alltaf taka stærri sneið af kökunni og neita að skilja að skynsamlegra sé að reyna að stækka kökuna.

 

Ræða hinna brostnu vona

19. maí Þúsundir Íslendinga bundu vonir við að Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætis­ráðherra, tæki af skarið í stefnuræðu sinni á mánudagskvöld og upplýsti um markvissa stefnu ríkis­stjórnar­innar í málefnum heimila og fyrirtækja.En ræðunni er hins vegar best lýst sem ræðu hinna brostnu vona.

 

Innan 16 mánaða verður hafist handa við þjóðnýtingu

11. maí Eftir tæpa 16 mánuði verður hafist handa við að þjóðnýta íslenskan sjávar­útveg - sem er kannski í anda við sjávar­útveg ríkja Evrópu­sambandsins, sem dregur aðeins andann í gegnum öndunarvélar gríðarlegra ríkisstyrkja.

 

Móðgun Jóhönnu við skynsemina

4. maí Orð Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætis­ráðherra og formanns Samfylkingar­innar, um að þær aðgerðir sem vinstri stjórn hennar hefur gripið til komi til með að duga, er móðgun við heilbrigða skynsemi og köld tuska í andlit þúsunda fjölskyldna sem berjast við að hafa í sig og á.

 

Úrslit kosninganna eru áfall fyrir Samfylkinguna

27. apr Fréttaskýrendur og álitsgjafar, - sem Steingrímur J. Sigfússon kallar elítuna - hafa verið uppteknir síðustu sólarhringa við að túlka niðurstöðu alþingis­kosninganna. Enginn virðist þó átta sig á þeirri staðreynd að fyrir utan fylgishrun Sjálfstæðis­flokksins, eru úrslit kosninganna áfall fyrir Samfylkinguna.

 

Fjármála­ráðherra segir ósatt

1. apr Í níu sólarhringa lét Steingrímur J. Sigfússon almenning standa í þeirri trú að „glæsileg niðurstaða“ væri að fást í deiluna um Icesave-reikninga og skuldbindingar vegna þeirra. Í níu sólarhringa lét fjármála­ráðherra það vera að leiðrétta orð sín.

 

Náðarhögg Steingríms J.

31. mar Steingrímur J. Sigfússon fjármála­ráðherra boðar skattahækkanir. Vinstri grænir ætla að hækka skatta með því að leggja sérstakan skatt á millitekjufólk og hækka fjármagnstekjuskatt um 40% a.m.k. Hagfræði vinstri stjórnar er því skýr: Skattleggjum þjóð­félagið út úr erfiðleikunum.

 

Óskiljanleg ákvörðun peningastefnu­nefndar

19. mar Ákvörðun hinnar nýju peningastefnu­nefndar Seðlabankans Íslands að lækka stýrivexti aðeins um 100 punkta er óskiljanleg með öllu. Engar efnahagslegar forsendur eru fyrir því að halda stýrivöxtum í 17%. Heimilin í landinu þola ekki þennan þunga bagga, ekki frekar en fyrirtækin.

 

Þola dómsniðurstöður ekki annað en skipan Logos sem skipta­stjóra?

17. mar Erlendur Gíslason hrl. og einn eigandi lögfræðiskrifstofunnar Logos, hefur verið skipaður skipta­stjóri í þrotabúi Baugs Group hf. Að líkindum er um að ræða stærsta þrotabú íslenskrar viðskiptasögu. Öll skynsamleg rök hníga hins vegar að því að Erlendur segi sig frá verkefninu.

 

Á meðan brennur húsið til grunna

5. mar Minnihluta­stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur ætlar með góðu eða illu að gera róttækar breytingar á stjórnar­skrá örfáum vikum. Óðagot ríkis­stjórnar­innar við breytinga á stjórnar­skrá, endurspeglar ráðleysi hennar gagnvart þeim vanda sem íslenskt þjóð­félag glímir við.

 

Ríki­svæðing atvinnulífsins

23. feb Ef fer sem horfir verður íslenskt atvinnulíf ríkisvætt að stórum hluta á komandi mánuðum beint og óbeint. Þjóðin mun færast áratugi aftur í tímann og möguleikarnir til að vinna sig hratt út úr hremmingum síðustu mánaða verða að engu.

 

Hvað ætlar ráðherra efnahagsmála að gera?

6. feb Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætis­ráðherra er jafnframt ráðherra efnahagsmála. Hvernig til tekst í glímunni við vandann sem steðjar að íslensku þjóðinni er á hennar ábyrgð. Því miður bendir fátt til að hún ætli sér að takast á við erfið verkefni af festu og framsýni.

 

Hvað ætlar ríkis­stjórnin að gera?

2. feb Ríkis­stjórn vinstri grænna og Samfylkingar, undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur á erfitt verk fyrir höndum. Verkefnaskrá ríkis­stjórnar­innar, sem nýtur stuðnings Framsóknar­flokksins, er almennt orðað plagg sem flestir stjórnmála­flokkar hefðu getað skrifað undir.

 

Stjórnlaust

28. jan Minnihluta­stjórn Samfylkingar og vinstri grænna er í burðarliðnum eftir að samsteypu­stjórn Geirs H. Haarde liðaðist í sundur. Aðdragandinn að myndun stjórnar­innar er ekki traustvekjandi og hugmyndafræðileg kredda eykur ekki tiltrú atvinnulífsins á að skynsamlega verði að verki staðið.

 

Stöðvum skrílinn og stöndum vörð um lýðræðið

22. jan Friðsöm mótmæli fjölda fólks hafa snúist upp í skrílslæti fámenns hóps fólks, sem ber enga virðingu fyrir samborgunum sínum, fyrirlítur lýðræðið og hefur að engu stjórnar­skrá sem frjáls þjóð hefur komið sér saman um. Nú er mælirinn fullur. Skrílinn verður að stöðva.

 

Nýir tímar í Framsókn og þrýstingur á aðra flokka eykst

19. jan Kjör nýrrar forystu Framsóknar­flokksins mun auka þrýsting á aðra flokka til endurnýjunar. Forvitnilegt verður að fylgjast með hvernig sjálfstæðis­menn bregðast við slíkum kröfum þegar þeir koma saman til landsfundar í lok þessa mánaðar.

 
 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX