amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Föstudagurinn 12. mars 2010 - 02:36
 
 
Fuglahvísl birtist 15. september 2009 klukkan 15:51

Egill Helgason móðgaður – niður með Dominique Strauss Kahn!

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

 
Eftir Einar Kristinn Guðfinnsson Pistill

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

 
Mest lesið
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
IMF
Dominique Strauss Kahn

Smáfuglarnir lesa á bloggsíðu Egils Helgasonar 15. september:

­„Ég hef mælst til þess nokkrum sinnum að Dominique Strauss Kahn, forstjóri Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, komi til Íslands og skýri sjálfur frá því hverjar eru fyrirætlanir AGS varðandi þjóðarbúskapinn.

Joseph Stiglitz tók undir þetta á fyrirlestri í Háskólanum í síðustu viku. Hann sagði að sér þætti það sjálfsagt mál að Strauss Kahn kæmi hingað.

En í staðinn les maður að enn einu sinni eigi að fresta umfjöllun um efnahagsáætlun Íslands hjá sjóðnum.

Þetta gerist án nokkurra skýringa, og á meðan ágerist sú tilfinning að AGS sé handrukkari fyrir stór og voldug ríki.

Ríkisstjórnin á ekki að taka þessu með þögninni. Hún á að mótmæla hástöfum. Það er líka nauðsynlegt að knýja fram breytingar á stefnu AGS.

Vextirnir eru alltof háir – og takmarkið að ná hallalausum fjárlögum á þremur árum er geðveiki.“

Smáfuglarnir skilja ekki, hvernig í ósköpunum stendur á því, að Dominique Strauss Kahn skuli ekki verða við tilmælum Egils Helgasonar um að koma hingað til lands. Hvort hann hafi aldrei heyrt um Silfur Egils? Eða Egil sjálfan, álitsgjafa með áhrifavald á borð við Morgunblaðið?

Smáfuglarnir samfagna með Agli yfir því, að Stiglitz skyldi hafa verið honum sammála um, að sjálfsagt væri fyrir Dominique Strauss Kahn að koma hingað til lands og hitta Egil.

Og svo leyfir Dominique Strauss Kahn sér skýringarlaust að taka mál Íslands ekki á dagskrá stjórnarfundar AGS. Er nema von, að Agli finnist óþefur af þessu öllu saman.

Smáfuglarnir sjá, að Egill gerir kröfu um, að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur taki þessu ekki með þögninni. Veit hann ekki, að Einar Karl Haraldsson, sem þvældist af Landspítalanum inn í forsætisráðuneytið og situr fastur þar, vill að Jóhanna haldi sér „til hlés“ gagnvart útlendingum. Hún er svo önnum kafin að svara 2.500 spurningum ESB eins og aðrir í stjórnarráðinu.

Smáfuglarnir eru þeirrar skoðunar, að ekki sé nóg að knýja fram breytingar á stefnu AGS. Það á að knýja Dominique Strauss Kahn til að segja af sér!

 
Meira fuglahvísl

Bildt ruglar um Icesave og Norðurlönd - Össur þegir

Smáfuglarnir lesa á ruv.is um blaðamannafund að loknum utanríkis­ráðherrafundi Norðurlanda í Kaupmannahöfn 11. mars: „Carl Bildt, utanríkis­ráðherra Svíþjóðar, hafnaði því að Norðurlöndin hefðu látið Breta og Hollendinga ráða för til þess að þvinga Íslendinga til vafasams samkomulags um Icesave....

Ólafur Steph. á mannaveiðum í Hádegismóum

Smáfuglarnir lesa á Eyjunni 11. mars: „Væntanlegt brotthvarf skopteiknarans Halldórs Baldurssonar frá Morgunblaðinu og yfir á Fréttablaðið þykir mikil blóðtaka fyrir blaðið. Það var upphaflega Ólafur Þ. Stephensen sem réð hann í vistina í Hádegismóum. Nú þegar hann hefur tekið við í Skaftahlíð...

Össur hvass í SvD en lítið mark á honum tekið

Svenska Dagbladet (SvD) segir frá því 11. mars, að Össur Skarphéðinsson sé reiður Anders Borg, fjármála­ráðherra Svía, fyrir að segja Íslendinga ekki geta losað sig undan alþjóða­skuldbindingum með þjóðar­atkvæða­greiðslu og láta eins og sænska ríkis­stjórnin hafi gert það, sem hún gæti, til að aðstoða Í...

Magnús Orri Schram setur ríkis­stjórninni 5 skilyrði

Smáfuglunum brá nokkuð, þegar rætt var við Magnús Orra Schram þingmann Samfylkingar, í hádegisfréttatíma RÚV 11. mars, um skilyrði þess, að hann styddi ríkis­stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Nefndi hann 5 skilyrði og sagði, að tafarlaust yrði að leysa Icesave-deiluna, það væri númer eitt. Hin skilyrði...

Reynir Traustason skuldar Hreini Loftssyni milljónir

Smáfuglarnir lásu frétt Viðskiptablaðsins um félög Hreins Loftssonar af athygli í morgun. Þar kemur fram að gríðarlegt tap hafi verið á félögum í eigu hæstaréttarlögmannsins og fyrrverandi stjórnar­formanns Baugs Group, sem nú er gjaldþrota. Hreinn er eigandi DV og nokkurra tímarita en samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins uppsker sá góði maður ekki eins og til er ætlast í rekstri.

Stefnan mörkuð: ríkis­stjórnin umfram allt

Föstudaginn 5. mars, daginn fyrir þjóðar­atkvæða­greiðsluna, ræddi Helgi Seljan við Steingrím J. Sigfússon í Kastljósi. Helgi spurði meðal annars að því, hvort höfnun Icesave-laganna myndi ekki veikja ríkis­stjórnina. Steingrímur J. svaraði: „Ja, ég tel að megi segja að það hafi veikt ríkis­stjórn...

Bjarni Harðar. ræðst á þjóðar­atkvæðið

Smáfuglarnir hafa upplýst lesendur sína reglulega um raunir Bjarna Harðarsonar. Hann var nýlega í Eþíópíu og varð að bera reiðhjól á bakinu um langan veg, án þess að fá vott né þurrt. Ekki vildi hann þiggja landa hjá bændum vegna bindindissemi og ótta við tréspíritus.

Kallar Álfheiður á lög­regluna gegn Ögmundi?

Álfheiður Inga­dóttir, heilbrigðis­ráðherra, var í morgunútvarpi RÚV 10. mars og sagðist ekki vita, að til stæði að breyta ætti ríkis­stjórninni. Hins vegar ætti að breyta öllu stjórnar­ráðinu á næstunni og þá yrði óhjákvæmilega einhver breyting á ríkis­stjórninni. Smáfuglarnir gefa ekki mikið fyrir þes...

 
 
©2010 Straumröst ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX