amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 08:49
 
 
Fuglahvísl birtist 10. desember 2008 klukkan 08:45

Framboð Guðlaugs Þórs til varaformanns

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Kristinn Ingvarsson
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur að undanförnu gerst málshefjandi á málfundum en að öðru leiti haldið sig frá sviðsljósinu.

Smáfuglarnir sem hvíla sig á trjágreinum nálægt heilbrigðisráðuneytinu hafa undanfarið velt því fyrir sér hvað hafi orðið af hinum skelegga heilbrigðisráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarssyni, sem var áberandi í fjölmiðlum og allri umræðu allt fram til þess að ósköpin dundu yfir í efnahagsmálum. Guðlaugur Þór, hefur að mestu haldið sig til hlés, fyrir utan að mæta Ögmundi Jónassyni á fremur fámennum kappræðufundi og í viðtal um forvarnir á Bylgjunni.

Fuglarnir hvísla að Guðlaugur Þór hafi dregið sig úr sviðsljósinu samkvæmt ráðleggingum sinna helstu ráðgjafa og herforingja. Þannig á að gæta að því að ímynd ráðherrans skaðist ekki vegna bankahrunsins og þeim pólitísku átökum sem átt hafa sér stað síðustu vikur. Markmiðið er að tryggja að Guðlaugur Þór geti mætt á landsfund Sjálfstæðisflokksins í lok janúar næstkomandi sem „óspjallaður“ forystumaður sem er tilbúinn til nýrra verka og axla aukna ábyrgð. Stuðningsmenn Guðlaugs Þórs eru sannfærðir um að á landsfundinum verði hávær krafa um breytingar á forystu flokksins þó enginn reikni með öðru en að staða Geirs H. Haarde sé trygg. Öðru máli gegni um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra og varaformann flokksins.

Herráð Guðlaugs Þór telur stöðu varaformannsins veika og því sé lag fyrir heilbrigðisráðherra að láta til skarar skríða og sækjast eftir embættinu. Þá er aðeins eitt skref eftir í stól formanns, en að því hefur Guðlaugur Þór stefnt lengi. Hernaðaráætlunin er því að mótast þó smáfuglanir telji að endanleg ákvörðun um framboð verði ekki tekin fyrr en nær dregur fundinum.

 
Meira fuglahvísl

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

ESB fáni á landsliðsbúninga

Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...

Ögmundur slær út bankamennina

Smáfuglarnir rákust á ummæli Ögmundar Jónassonar, sem stýrði Lífeyris­sjóði starfsmanna ríkisinsn (LSR) fram af bjargbrúninni í góðærinu.

Bók stjúpu Egils slátrað

Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.

Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV

Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX