Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir lögðust í stutt rannsóknarflug á Google (1920 tilvísanir) í tilefni þess, að orðið „skrímsladeild“ er nú orðið að fræðilegu hugtaki í munni prófessors í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, sem kynntur er til sögunnar á mbl.is sem óháður stjórnmálaskýrandi til að styrkja spuna Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur, stjórnmálafréttaritara mbl.is.
Össur Skarphéðinsson. núverandi utanríkisráðherra, velti fyrir sér í grein í Fréttablaðinu 16. október 2006, hverjir hefðu beitt sér fyrir því á sínum tíma, eftir fall Berlínarmúrsins fyrir 20 árum, að rannsaka hugsanleg tengsl íslenskra námsmanna í Austur-Þýskalandi við STASI. Gaf hann til kynna, að þar hefðu sjálfstæðismenn verið að verki og sagði:
„Menn geta ímyndað sér hvernig skrímsladeild Sjálfstæðisflokksins hefði notað slíkar upplýsingar, ef svo hefði verið.“
Þarna gefur Össur til kynna, að innan Sjálfstæðisflokksins hafi verið „skrímsladeild“ við verkefni af því tagi að leita uppi tengsl kommúnista á Íslandi, þar á meðal Svavars Gestssonar, sendiherra og höfund ICESAVE meistaraverksins, við austur-þýsku leyniþjónustunar.
Þór Whithead, prófessor, svaraði grein Össurar hinn 18. október 2007 í Fréttablaðinu og sagði meðal annars:
„Heimildarmaður minn um könnun vestur-þýsku öryggisþjónustunnar á STASI-tengslum Íslendinga er Róbert Trausti Árnason, sem var vara-fastafulltrúi Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu í Brussel undir lok kalda stríðsins. Samkvæmt frásögnum, sem hann segir styðjast við dagbækur sínar, voru það tveir ráðherrar í ríkisstjórn Framsóknarflokks, Alþýðubandalagsins og Alþýðuflokksins, sem mæltust til þess í desember 1989 að hann rannsakaði, hvort einhverjir Íslendingar hefðu verið í þjónustu austur-þýsku leynilögreglunnar. Ráðherrarnir hafi verið þeir Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra og yfirmaður hans í utanríkisþjónustunni, og Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra. „Einkum vildi Jón Baldvin vita, hvort að Svavar Gestsson hefði verið í hópi erindreka STASI“, eins og segir í skriflegri frásögn Róberts Trausta. Svavar var þá menntamálaráðherra í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar.“
Sé það skilgreiningaratriði á hugtakinu „skrímsladeild“ í stjórnmálafræðinni, að menn í henni hafi viljað leita að tengiliðum STASI á Íslandi, eru þeir Jón Baldvin Hannibalsson og Steingrímur Hermannsson greinilega í deildinni, þótt ekki séu þeir í Sjálfstæðisflokknum. Eða er „skrímslin“ per definition Gunnars Helga Kristinssonar, stjórnmálafræðiprófessors, aðeins að finna í Sjálfstæðisflokknum?
Smáfuglarnir minnast þess, að í sjónvarpsþættinum Næturvaktin, þar sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson birtist einu sinni sem leikari hafi hugtakið „skrímsladeild“ verið notað. Afgreiðslumaðurinn, Georg Bjarnfreðarson, montinn, en vansæll vinstri maður með ótal háskólapróf, segir við Hannes Hólmstein, að hann sé fulltrúi „skrímsladeildarinnar“. Smáfuglarnir velta fyrir sér, hvort líta beri á Gunnar Helga Kristinsson sem fyrirmynd Georgs eða eftirlíkingu.
Myndbrotið með Hannesi Hólmsteini var sett á Youtube og bloggaði Valgeir Helgi Bergþórsson þannig um það á síðu sína 9. desember 2007:
„Þetta brot er þegar Hannes Hólmsteinn Gizzurarson kemur á bensínstöðina og fær þessa þvílíku úthýðingu frá Georgi (Jón Gnarr). Ég verð að segja að þetta er með því fyndnara sem ég hef séð, enda verð ég að hrósa honum Hannesi fyrir að hafa svona mikin húmor fyrir sjálfum sér.“
Jóhann Hauksson á launum hjá Baugi Group
Jóhann Hauksson hefur í gegnum árin verið harðasti stuðningsmaður Baugsklíkunnar og gengið lengra en flestir í að verja þá í daglegri umræðu fjölmiðla. Jóhann var með útvarpsþáttinn Morgunhaninn á Útvarpi Sögu þar sem hann hélt uppteknum hætti og varði Baugsmenn. Nú hefur komið í ljós að Baugur Group kostaði þáttinn og greiddi laun til Jóhanns.
Þorvaldur talar við Mel Brooks
Þorvaldur Gylfason upplýsti í dag í hinni vikulegu grein sinni í málgagni Baugsfeðga að hann hefði nýlega hitt Mel Brooks í búð og gefið sig á tal við hann. Smáfuglarnir hleruðu samtalið: Stranger: „Hello, Mr. Books! I am Þorvaldur Gylfason, an Icelandic economist. I saw your play last night and I thought it was very good.“ Mel (grinning): „An Icelandic economist?“
Ætlar ríkisstjórn sem er á móti Magma inn í ESB?
Smáfuglarnir tóku eftir því að í ályktun Heimdallar frá því í dag er bent á að hefði Magma Energy verið fyrirtæki frá ESB ríki og ef Ísland væri í ESB væri ekkert sem ríkið hefði getað gert til að hindra viðskiptin. Innan ESB geta allir fjárfest þvert yfir landamæri.
Smáfuglunum barst ályktun stjórnar Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Ályktunin skýtur föstum skotum að vinstristjórninni sem Heimdallur segir óstarfhæfa. Smáfuglarnir telja rétt að birta ályktunina í heild sinni. Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, gagnrýnir harðlega fórnarkostnaðinn við að halda óstarfhæfri ríkisstjórn gangandi.
Tími Runólfs kom með Jóhönnu, jafnréttisráðherra
Smáfuglarnir biðja lesendur sína að velta fyrir sér, hvernig Jóhanna Sigurðardóttir hefði látið í stjórnarandstöðu, ef yfirlýstur, stórskuldugur, karlkyns sjálfstæðismaður hefði verið ráðinn umboðsmaður skuldara og gengið hefði verið fram hjá konu, sem veitt hefði skuldurum ráðgjöf á farsælan hátt, árum saman.
Egill gagnrýnir Sigurjón Þ. Árnason fyrir holdafar
Smáfuglarnir sjá að Egill Helgason telur að Björgólfur Thor noti Sigurjón Þ. Árnason sem blóraböggul en Björgólfur sagði margt Sigurjóni að kenna í viðtali við Viðskiptablaðið. Það sem vakti athygli smáfuglanna var áhugaverð greining Egils á Sigurjóni. Egill segir á vefsíðu sinni: Sigurjón Þ....
Sendiherra ESB leiðréttir Eirík Bergmann - EES ekki í hættu
Smáfuglarnir sögðu frá því fyrir stuttu að Eiríkur Bergmann, sérfræðingur í ESB aðild, hefði sagt EES samstarfið í uppnámi ef ESB umsókn yrði dregin til baka. Eins og með annað sem ekki er rétt var þessi skoðun Eiríks leiðrétt.
Tengsl Elíasar Jóns og Þórðar Snæs
Margir hafa velt fyrir sér hvernig tengslum spunameistara vinstristjórnarinnar sé háttað.