amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Sunnudagurinn 19. maí 2013 - 21:44
 
 
Fuglahvísl birtist 10. ágúst 2009 klukkan 21:30

Guðbjartur í álfaborgina með Jóhönnu

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir lásu á ruv.is 10. ágúst:

Sigurður Bogi
Guðbjartur Hannesson

„Frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave-samningsins er ennþá fast í fjárlaganefnd Alþingis. Formaður nefndarinnar segir það ráðast á næstu tveimur sólarhringum hvort fjárlaganefnd ræður við þetta verkefni og hvort vilji er hjá stjórnarandstöðu að semja um málið….

„Ég vil orða það þannig að við höfum ekki fengið neinar skýrar tillögur,“ segir Guðbjart Hannesson formaður fjárlaganefndar. „Mér finnst eðlilegt að menn svari því núna, það eru þingflokksfundir í dag, hvort menn ætli að fara þessa fyrirvara leið, reyna að afgreiða þetta þá með einhverjum fyrirvörum, þá ræðum við þá, en við þurfum að vita á hvaða leið við erum.'“

Smáfuglarnir undrast enn hina furðulegu fréttamennsku RÚV, að ræða stöðugt við Guðbjart Hannesson, formann fjárlaganefndar, um Icesave, þegar augljóst er, að vandi hans er sá, að stjórnarflokkarnir koma sér ekki saman um málið og þar eiga þau Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon síðasta orðið.

Stjórnmálafréttaritarar RÚV gera sér ekki grein fyrir því, að algengt er, að mál fari úr fjárlaganefnd, án þess að um þau sé samið við stjórnarandstöðuna. Þetta á til dæmis við um sjálf fjárlögin. Hvers vegna þarf að semja um Icesave? Jú, af því að ríkisstjórnin getur ekki tryggt framgang málsins innan eigin þingflokka.

Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins komst Davíð Oddsson þannig að orði í frægri ræðu, að Jóhanna Sigurðardóttir væri stundum eins og álfur út úr hól. Nú fetar Guðbjartur Hannesson dyggilega sömu braut, því að hann líkist æ meira álfi út úr hól, þegar hann talar um Icesave.

 
Meira fuglahvísl

Verndar lög­regla ekki eignar­rétt Jóns Geralds?

Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.

Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Inga­dóttir

Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Inga­dóttir tók við formennsku í Þingvalla­nefnd.

Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkis­sjóði

Framsóknar­flokkurinn ætlar í nafni ríkis­sjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkis­sjóð. Eftir það ætlar Framsóknar­flokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðar­kaupa. Ríkis­sjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.

Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni

Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstri­stjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.

Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstri­stjórnar­innar?

Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðis­flokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðis­menn gleymt því að Framsóknar­flokkurinn er guðfaðir verstu ríkis­stjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?

Sigmundur lofaði eitt sinn 2.000 milljörðum

Smáfuglarnir hafa grúskað í gömlum fréttum og sjá þar að meira er um loforð Sigmundar Davíðs en efndir eða árangur.

Ásakar formann Framsóknar­flokksins um ósannindi

Sigríður Dögg Auðuns­dóttir ásakar Sigmund Davíð um að birta ósannindi á vefsíðu sinni. Forsaga málsins er sú að Sigríður Dögg blaðamaður á Fréttatímanum tók viðtal við Sigmund Davíð þar sem hún ásamt ljósmyndara fóru saman í ísbíltúr á Þingvelli. Þegar viðtalið kom út, brást Sigmundur illa við og sagði blaðamenn hafa rangt eftir sér og taka hluti úr samhengi.

Framsóknar­maður á bar

Smáfuglunum barst eftirfarandi: Framsóknar­maður og skattgreiðandi sátu á bar. Skattgreiðandinn þurfti á klósettið og bað framsóknar­manninn að passa veskið sitt á meðan. Þegar hann kom til baka voru allir á barnum komnir með þrjá drykki hver og hrópuðu þrefalt húrra fyrir framsóknar­manninum sem útdeildi drykkjum í miðri þvögunni.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX