Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Vinstri-grænir deila harkalega um afstöðuna til Icesave. Steingrímur J. Sigfússon, formaður þeirra, var í Kastljósi í síðustu viku og líkti sjálfum sér við píslarvott, hann yrði að taka á sig byrðar til að bjarga þjóðinni. Þessi raunarolla fór misjafnlega í fylgismenn vinstri-grænna en vakti mikla gleði innan Samfylkingarinnar, sem taldi Steingrím J. enn taka ómakið af Jóhönnu Sigurðardóttur.
Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra og mótvægi Steingríms J, meðal vinstri-grænna, ritar grein í Fréttablaðið 10. ágúst. Fyrirsögnin er: Uppgjöf Fréttablaðsins. Tilefnið er tvær greinar á leiðaraopnu blaðsins laugardaginn 8. ágúst. Ögmundur segir:
„Dauft var yfir leiðarasíðu Fréttablaðsins á laugardag. Uppgjafartónn í leiðara, og litlu betri var Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins, sem virðist helst sjá það aðfinnsluvert í íslenskum stjórnmálum að ríkisstjórnin skuli „sitja uppi“ með „andóf og tafleiki“ af hálfu nokkurra stjórnarþingmanna og ráðherra í Icesave-málinu. Þar er m.a. átt við undirritaðan.
Steinunn Stefánsdóttir kallar leiðara sinn „Það er búið sem búið er“. Þar er viðkvæðið svipað og hjá Þorsteini, búið sé að semja og síðan er því slegið fram að „hver dagur“ sé dýr sem líði án þess að gengið sé frá ríkisábyrgð á Icesave-samningnum….
Staðreyndin er sú að enn höfum við ekki gengist í ríkisábyrgðina þótt sumir hafi verið til þess albúnir að undirgangast hana án þess að gera minnstu tilraun til að kynna sér samninginn! Okkur ber skylda til að tryggja okkur eins vel og hægt er inn í framtíðina. Ef við leikum af okkur þá þurfum við að hafa styrk til að endurmeta stöðuna - svo lengi sem það er hægt….
Það getur orðið okkur dýrkeypt að búa við fjölmiðla sem hafa ekki hugrekki og staðfestu til að horfast í augu við vanda okkar og þora aldrei að endurmeta það sem gert er. Ég ætla að vona að menn gangi ekki til viðræðna við Evrópusambandið með þá uppgjöf í farteskinu sem birtist okkur í Fréttablaðinu sl. laugardag.“
Smáfuglunum er ljóst, að Ögmundur notar þau Steinunni, Þorstein og Fréttablaðið sem Albaníu í deilu sinni við Steingrím J. og Jóhönnu Sigurðardóttur um Icesave-málið.
Ögmundur kann vel aðferðina, sem Sovétmenn og Kínverjar beittu, þegar þeir deildu sem harðast á tíma kalda stríðsins. Þá réðust þeir á Albaníu eða vörðu hana, eftir að Enver Hoxha, einræðisherra Albaníu, gekk til liðs við Kínverja. Smáfuglarnir bíða nú eftir því, að Steingrímur J. eða málsvarar hans taki upp hanskann fyrir Steinunni, Þorstein og Fréttablaðið.
Síðasta efnisgreinin hjá Ögmundi er síðan bein árás á Samfylkinguna. Hún ætti að hljóða á þennan veg, enda semja fjölmiðlar ekki við aðrar þjóðir eða Evrópusambandið:
„Það getur orðið okkur dýrkeypt að búa við stjórnmálaflokka sem hafa ekki hugrekki og staðfestu til að horfast í augu við vanda okkar og þora aldrei að endurmeta það sem gert er. Ég ætla að vona að menn gangi ekki til viðræðna við Evrópusambandið með þá uppgjöf í farteskinu sem birtist okkur í stefnu Samfylkingarinnar.“
Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkisstjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.
Egill hvatti fólk til gjaldeyrislánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda
Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?
Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.
Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.
Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa. Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.
Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.
Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?