amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 23. febrúar 2012 - 04:02
 
 
Fuglahvísl birtist 17. júlí 2009 klukkan 10:14

Eru dagar Lesbókarinnar taldir?

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Hún lét lítið yfir sér tilkynningin frá ritstjórn Morgunblaðsins um að Lesbókin væri komin í sumarfrí. Neðst í hægra horninu á blaðsíðu 2. Smáfuglarnir hugsuðu með sér að sumarfríið hlyti að vera kærkomið en íslensk dagblöð hafa tekið upp þann háttinn að senda sérblöð sín í sumarfrí.

Það sem vakti athygli smáfuglanna er að sumarfríið á ótímasett, bara sagt að Lesbókin verði í sumarfríi næstu vikur:

„Lesbókin mun ekki fylgja Morgunblaðinu á morgun. Hún verður í sumarfríi næstu vikur.“

Fyrir nokkru tilkynnti Fréttablaðið að Markaðurinn, vikulegt fylgirit um viðskipti, væri komið í sumarfrí. Sumir smáfuglarnir halda því fram að það sumarfrí verði lengra en íslenska sumarið. Þegar þeir lásu síðan tilkynningu Moggans um Lesbókina hugsuðu þeir það sama. Lesbókin er þungur baggi á Morgunblaðinu og skilar engum beinum tekjum. Flestum smáfuglunum finnst hún heldur léttvæg í samanburði við útgáfu hennar á árum áður.

Smáfuglarnir spá því að „sumarfrí“ Lesbókarinnar sé fyrsta skref nýrra eigenda Morgunblaðsins í uppstokkun og sparnaði.

 
Meira fuglahvísl

Skafti: Hvenær talar Helgi Seljan við þau?

Smáfuglarnir lásu pistil eftir Skafta Harðarsson sem vekur athygli á því að Kastljós RÚV hefur alfarið sleppt því að fjalla um stór mál í ranni Samfylkingar­innar. Skafti segir: Helgi Seljan hefur reynt að skapa sér nafn sem aðgangsharður fréttamaður.

Vegið að Ástráði - sátt sögð afskrift

Smáfuglarnir sjá að nú á að gera hvað sem er til að verja Gunnar Andersen.

Karlar deyja fyrr og fá engar bætur

Ofangreind fyrirsögn er sett fram í takt við aðrar vælufyrirsagnir blaðanna þar sem blaðamenn finna einhvern sem hefur minna en annar og setja fyrir aftan „og fær engar bætur“. Smáfuglarnir rákust á rakið dæmi fyrir slíka fyrirsögn í Morbunglaðinu í morgun en þar sagði: Árið 2011 gátu nýfæddir...

Dagblað Vinstri Grænna - DVG

Eftir að upplýst var um eignar­hald á DV og Smugunni hefur margt verið staðfest.

Þorvaldur og skattlausu launin

Þorvaldur Gylfason heldur úti bloggsíðu á vef Dagblaðs Vinstri Grænna (DVG), hann hafði áður skrifað í Fréttablaðið en menn þar á bæ töldu skrif hans ekki vera þess virði og hættu að greiða fyrir pistla.

Egill nefndi ekki höfund skýrslunnar - hvers vegna?

Smáfuglarnir rákust á furðuleg skrif Egils Helgasonar, umræðu­stjóra ríkisins, á vefsíðu hans á Eyjunni. En þar segir Egill: Á sama tíma er haldið Viðskiptaþing. Fyrir fáum árum voru menn sammála um að Viðskiptaráð skyldi skammast sín vegna ýmissa hluta sem komu frá því á árunum fyrir hrun.

Já Ísland - Nei ESB

Smáfuglarnir sjá að á netinu flakkar nú sniðug mynd þar sem búið er að skýra hið furðulega nafn samtaka ESB sinna Já Ísland sem auglýsir nú út um allt land. Smáfuglarnir haf aldrei skilið hvernig hægt er að segja já Ísland á sama tíma og lagt er til að leggja niður fullveldi og selja forræði innanríkismála undir erlenda vald­stjórn.

Eiginmaður Álfheiðar Ingadóttur greiddi sekt afbrotamanns

Smáfuglarnir hafa undanfarið velt fyrir sér óeirðunum sem urðu hérlendis árið 2008 þegar lýðræðislega kjörin stjórn var hrakin frá völdum með bálköstum, rúðubrotum, áhlaupi á lög­reglustöð, o.s.frv. Vinstri Grænir voru í lykilhlutverkum á öllum vígstöðvum í þeirri skálmöld sem þá geisaði. Þannig f...

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX