amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 10. mars 2010 - 15:15
 
 
Fuglahvísl birtist 8. desember 2008 klukkan 12:59

Egill Helgason hyggur á landflótta

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

 
Eftir Einar Kristinn Guðfinnsson Pistill

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

 
Mest lesið
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Bloggsíða Egils Helgasonar á Eyjunni.

Egill Helgason segist vera að fyllast vonleysi. Á bloggi sínu á Eyjunni segir Egill að svo virðist sem stjórnvöld og kerfið allt ætli að sjá til þess að ekkert breytist. Öllu verði komið í hendurnar á sömu peningamönnunum og tök þeirra herðist á þjóðfélaginu.

Orðrétt segir Egill:

„Nú í fyrsta skipti síðan hrunið varð er ég farinn að fyllast vonleysi.

Það er eins og stjórnvöld, embættismannakerfið og stjórnendur bankanna ætli að sjá til þess að ekkert breytist.

Og að öllu verið komið í hendurnar á sömu peningamönnunum aftur. Og að tök þeirra á samfélaginu verði jafnvel enn sterkari en áður.

Það er margt sem bendir í þessa átt á þessum dimma mánudegi.

En ef þetta gerist þá er mér farið eins og mörgum öðrum.

Ég flyt úr landi.“

 
Meira fuglahvísl

Vinstri menn hafa ráðið miklu um stefnumótun í viðskiptamálum segir Björgvin G. Sigurðsson

Þegar Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingar­innar, tók við embætti viðskipta­ráðherra árið 2007, birtist við hann viðtal í Sunnlenska fréttablaðinu. Þar lýsti hann því yfir að vinstri menn hefðu haft mikil áhrif á stefnumótun í viðskiptamálum landsins. Björgvin G. Sigurðsson sem sagði af sér...

Draumalandið sameinar stjórnar­flokkana

Kolbeinn Ó. Proppé, blaðamaður á Fréttablaðinu og innan búðarmaður meðal vinstri manna, leitast við að berja í bresti stjórnar­samstarfsins með grein í blaði sínu 10. mars. Hann segir þar, að tveggja manna fundur þeirra Steingríms J. og Ögmundar Jónassonar hafi bætt andrúmsloftið innan flokksins, en ...

Blaðamannaverðlaun hneyksli

Baldur Arnarson, blaðamaður á Morgunblaðinu, ritaði grein í Fréttablaðið hinn 6. mars og gagnrýndi harkalega, hvernig staðið var að tilnefningum til blaðamannaverðlauna vegna ársins 2009. Taldi hann reginhneyksli, að greinar­flokkur Morgunblaðsins um Evrópu­sambandið vegna umræðna um aðild Íslands sky...

Ögmundur í stjórn vegna pólitískra skjálfta?

Smáfuglarnir lesa í málgagni ríkis­stjórnar­innar visir.is 10. mars: „Ríkis­stjórnin stendur veikari eftir þjóðar­atkvæða­greiðsluna á laugardag og þarf að eflast eigi hún að geta tekist á við mörg brýn og aðkallandi verkefni. Augljósasta og jafnframt besta leiðin til að styrkja stjórnina er að Ögm...

Sómi Blaðamanna­félagsins

Smáfuglarnir flögra reglulega inn á vinstrivefinn smugan.is sem ritstýrt er af Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur og er í eigu Vinstri Grænna. Þóra Kristín tók sérstaklega fram við enduropnun vefsins að hann væri ekki málgagn VG. Því eru smáfuglarnir sammála enda var Pravda ekki heldur málgagn sovét­stjórna...

Sigmar Kastljós­stjóri snýst til varnar fyrir RÚV

Evrópu­aðildarsinninn og sjálfstæðis­maðurinn Guðbjörn Guðbjörnsson, sem stundum bloggar um nauðsyn þess að stofna nýjan flokk um skoðanir sínar, bloggar 9. mars um aðlögun stjórnsýslunnar að ESB-aðlögunarferlinu. Hann telur einnig, að RÚV hafi lagað sig að vinstri stjórninni. Guðbjörn segir: „Þ...

Framapotarinn Dagur B. Eggertsson

Smáfuglarnir sjá á vefsíðu Skafta Harðarsonar og víðar að hugleysi Dags B. Eggertssonar, að gefa ekki upp atkvæði sitt í þjóðatarkvæða­greiðslu um Icesave, vekur athygli. Smáfuglarnir muna ekki eftir mörgum tilvikum að varaformenn stórra stjórnmála­flokka gefi ekki upp afstöðu sína í stærstu málum sam...

RÚV sviptir vitni í vitnavernd leynd sinni

Smáfuglarnir hlustuðu furðu losnir á fréttir Ríkisútvarpsins þar sem upplýst var að vitni í mansalsmálinu hafi notið vitnaverndar hjá stjórnvöldum. Þar var einnig sagt að umrætt vitni hafi verið kærasta eins Litháans og að framburður hennar hafi verið lykilatriði í sakfellingu mannanna.

 
 
©2010 Straumröst ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX