Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.


Smáfuglarnir velta fyrir sér, hvort nokkurstaðar í veröldinni myndi ríkisstöð, sem lögum samkvæmt á að vera óhlutdræg, láta sig hafa það að vera með jafn hlutdrægan álitsgjafa eða umræðustjórnanda og ríkissjónvarpið með Egil Helgason. Hlutdrægni hans birtist hvað eftir annað og nú síðast á vefsíðu hans í mati á kosningaúrslitunum, þar sem segir:
„Samfylkingin hefur pálmann í höndunum eftir kosningarnar, enda þótt kosningasigur hennar hafi minnkað nokkuð eftir að leið á talninguna. En hún hefur ennþá möguleikann að leita eftir stjórnarsamstarfi við Framsóknarflokkinn og Borgarahreyfinguna ef Vinstri græn reynast erfið í samningum.“
Samfylkingin fær nú heldur minna fylgi en hún fékk í þingkosningunum 2003, þegar hún tróð upp með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem forsætisráðherraefni og naut óskoraðs trausts og stuðnings Baugsveldisins. Ingibjörg Sólrún lenti að vísu utan þings og hið sama má segja um helsta baráttumál Samfylkingarinnar núna, það er aðildina að Evrópusambandinu.
Sigurvegarar kosninganna eru tveir að mati smáfuglanna: Vinstri-grænir og Borgarahreyfingin. Vinstri-grænir bættu hlutfallslega við sig mun meira fylgi en Samfylkingin og þingmönnum þeirra fjölgaði nægilega mikið til að þessi tveir flokkar fá nú meirihluta á þingi. Það þarf mikla ESB-blindu til að túlka þessi úrslit á þann veg, að sjónarmið ESB-sinna hafi fengið óskabyr í seglin.
Egill Helgason segir:
„En Samfylkingin hefur haft uppi stór orð um Evrópusambandið – og nú er túlkun hennar að kosningarnar hafi snúist um ESB. Árni Páll Árnason sagði í gær í sjónvarpinu að hægt væri að fara í aðildarviðræður strax í maí.
Þetta eru yfirlýsingar sem er nánast óhugsandi að komast undan á þessum tímapunkti.
Vinstri græn hljóta að þurfa að gefa eitthvað eftir ef á að verða framhald á þessari ríkisstjórn, jafnvel fallast á aðildarviðræður. Samfylkingin getur varla sætt sig við hina löngu leið tvennra þjóðarkosninga.“
Hér sannast enn hlutdrægni Egils. Hvers vegna hljóta vinstri grænir að þurfa að sætta sig við úrslitakosti Samfylkingarinnar í ESB-málum? Úrslit kosninganna benda síður en svo til þess. Túlkun Egils á úrslitunum er hlutdræg og röng að mati smáfuglanna.
Í lok þessa dæmalausa pistils síns segir Egill Helgason:
„Eftir ósigurinn mun líklega myndast mikil pressa á Sjálfstæðisflokkinn að breyta um kúrs í Evrópumálum – eða að minnsta kosti að skýra stefnuna. Annars á hann á hættu að missa endanlega stuðning víða í atvinnulífinu.“
Hér gefur Egill lesendum sínum til kynna, hvernig hann ætlar að velja menn í þátt sinn í ríkissjónvarpinu í dag og næstu sunnudag. Ætli Vilhjálmur Egilsson verði ekki fyrsti sjálfstæðismaðurinn, sem kallaður verður til viðtals?
Ef smáfuglarnir vita rétt er Svanhildur Kaaber, fulltrúi vinstri grænna, formaður útvarpsráðs. Skyldi henni ekki þykja nóg um misnotkun á aðstöðu í ríkissjónvarpinu í þágu ESB-sjónarmiða? Og til að setja vinstri-grænum úrslitakosti á þeim röngu forsendum, að Samfylkingin standi með pálmann í höndunum sem sigurvegari kosninganna?
Sigrún Davíðsdóttir uppvís að ósannindum?
Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands, skrifaði fyrir skömmu pistil þar sem hann rakti hvernig Sigrún Davíðsdóttir, pistlahöfundur Ríkisútvarpsins og einn tíðasti gesturinn í Silfri Egils, var klappstýra útrásarinnar fyrir hrun og einn helsti gagnrýnandi útrásarvíkinganna eftir hrun. Sigrún sveiflaði sér fljótt og fimlega af einum vagninum á annan.
Sjálfsréttlæting útvarpsstjóra
Smáfuglarnir lásu aftur grein Páls Magnússonar sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hann missir tökin og úthúðar ritstjóra blaðsins með slíkum ofstopa að ef greinin hefði komið frá einhverjum óþekktari einstaklingi hefði henni verið hafnað eða hugsanlega birt í dálknum „Bréf til blaðsins“. Smáfuglarn...
Smáfuglarnir eru hissa á því að helsti aðdáandi Evu Joly og sá sem tryggði (með dagskrárvaldi sínu) að hún kæmist á laun hins opinbera og fengi greiddar 325 þúsund krónur á dag í laun skuli nú þegja þunnu hljóði um nýjustu fréttir af Evu í heimspressunni. Sagt er frá því í fréttum að 51% Frakka telji að hún sé óheiðarleg og 78% að hún ráði ekki við starf sitt.
Smáfuglarnir sjá að væntanlegt er tímamótaverk eftir Hrannar B. Arnarsson, fyrrum eiganda Arnarson og Hjörvar sf. og núverandi aðstoðarmann Jóhönnu Sigurðardóttur. Á forsíðu bókarinnar má sjá nokkra af frösum sem vinstristjórnin notar og þá helst Jóhanna. Smáfuglarnir efast ekki um að bókin verð...
Smáfuglarnir lásu góða grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu í morgun en þar svarar hann málefnalega dylgjum Hallgríms Helgasonar, sem seldi ómálað málverk á tugi milljóna þegar útrásin var í algleymingi, og Björns Ólafs Hallgrímssonar lögmanns. Um efni greinarinnar þarf ekki að fjölyrða en eitt hnutu smáfuglarnir um.
Smáfuglarnir lesa í fréttum að atvinnuþátttaka sé sú minnsta frá því mælingar hófust árið 1991. Þetta eru merkilegar fréttir í ljósi þess að aldrei hefur þörf fólks fyrir fé verið meiri og einmitt nú þegar heimilin hafa þolað mikla rýrnun eigna og skarpa hækkun verðlags umfram launahækkanir. Ef allt...
Smáfuglarnir sjá á orðfæri Jóhönnu að fáir eru hræddari við kosningar en leiðtogi Samfylkingarinnar. Hún segir við fjölmiðla þessa dagana að „íhaldinu megi ekki takast að reka fleig í ríkisstjórnina“ með landsdómsmálinu. Þannig skapar Jóhanna þá stöðu að vinstristjórnin verði að hanga saman á lyginni einni saman svo halda megi sjálfstæðismönnum frá ríkisstjórn.