Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.


Smáfuglunum er ljóst, að framsóknarmenn seldu sálu sínu við myndun ríkisstjórnarinnar fyrir stjórnlagaþing. Þeir mátu hana á 300 milljónir króna, ef marka má Helgu Sigrúnu Harðardóttur. Hún viðurkennir á vefsíðu sinni, að talan hefur hækkað, en þar segir:
„Vegna höfundarréttardeilna og hugmynda um breytingar á stjórnarskrá fyrir kosningar lagði ríkisstjórnin fram sitt eigið frumvarp um sama mál sem áætlað er að geti kostað 1700-2100 milljónir þar sem m. a. er gert ráð fyrir töluvert lengri starfstíma þingsins.“
Smáfuglunum þykir merkilegt að sjá Helgu Sigrúnu hopa frá tillögu ríkisstjórnarinnar um stjórnlagaþing, af því að hún sé of dýr. Sál framsóknarmanna er metin á 1700 til 2100 milljónir króna af samstarfólki þeirra – og Helga Sigrún skammar vinstri-græna og samfylkingarfólk.
Valgerður Sverrisdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, stjórnar sérnefnd þingsins um breytingu á stjórnarskránni og frumvarp um stjórnlagaþing. Skyldi hún vera sammála Helgu Sigrúnu um, að sál framsóknarmanna og stuðningur þeirra við ríkisstjórnina sé of hátt metin?
Jóhann Hauksson á launum hjá Baugi Group
Jóhann Hauksson hefur í gegnum árin verið harðasti stuðningsmaður Baugsklíkunnar og gengið lengra en flestir í að verja þá í daglegri umræðu fjölmiðla. Jóhann var með útvarpsþáttinn Morgunhaninn á Útvarpi Sögu þar sem hann hélt uppteknum hætti og varði Baugsmenn. Nú hefur komið í ljós að Baugur Group kostaði þáttinn og greiddi laun til Jóhanns.
Þorvaldur talar við Mel Brooks
Þorvaldur Gylfason upplýsti í dag í hinni vikulegu grein sinni í málgagni Baugsfeðga að hann hefði nýlega hitt Mel Brooks í búð og gefið sig á tal við hann. Smáfuglarnir hleruðu samtalið: Stranger: „Hello, Mr. Books! I am Þorvaldur Gylfason, an Icelandic economist. I saw your play last night and I thought it was very good.“ Mel (grinning): „An Icelandic economist?“
Ætlar ríkisstjórn sem er á móti Magma inn í ESB?
Smáfuglarnir tóku eftir því að í ályktun Heimdallar frá því í dag er bent á að hefði Magma Energy verið fyrirtæki frá ESB ríki og ef Ísland væri í ESB væri ekkert sem ríkið hefði getað gert til að hindra viðskiptin. Innan ESB geta allir fjárfest þvert yfir landamæri.
Smáfuglunum barst ályktun stjórnar Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Ályktunin skýtur föstum skotum að vinstristjórninni sem Heimdallur segir óstarfhæfa. Smáfuglarnir telja rétt að birta ályktunina í heild sinni. Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, gagnrýnir harðlega fórnarkostnaðinn við að halda óstarfhæfri ríkisstjórn gangandi.
Tími Runólfs kom með Jóhönnu, jafnréttisráðherra
Smáfuglarnir biðja lesendur sína að velta fyrir sér, hvernig Jóhanna Sigurðardóttir hefði látið í stjórnarandstöðu, ef yfirlýstur, stórskuldugur, karlkyns sjálfstæðismaður hefði verið ráðinn umboðsmaður skuldara og gengið hefði verið fram hjá konu, sem veitt hefði skuldurum ráðgjöf á farsælan hátt, árum saman.
Egill gagnrýnir Sigurjón Þ. Árnason fyrir holdafar
Smáfuglarnir sjá að Egill Helgason telur að Björgólfur Thor noti Sigurjón Þ. Árnason sem blóraböggul en Björgólfur sagði margt Sigurjóni að kenna í viðtali við Viðskiptablaðið. Það sem vakti athygli smáfuglanna var áhugaverð greining Egils á Sigurjóni. Egill segir á vefsíðu sinni: Sigurjón Þ....
Sendiherra ESB leiðréttir Eirík Bergmann - EES ekki í hættu
Smáfuglarnir sögðu frá því fyrir stuttu að Eiríkur Bergmann, sérfræðingur í ESB aðild, hefði sagt EES samstarfið í uppnámi ef ESB umsókn yrði dregin til baka. Eins og með annað sem ekki er rétt var þessi skoðun Eiríks leiðrétt.
Tengsl Elíasar Jóns og Þórðar Snæs
Margir hafa velt fyrir sér hvernig tengslum spunameistara vinstristjórnarinnar sé háttað.