amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 4. febrúar 2012 - 16:17
 
 
Fuglahvísl birtist 15. mars 2009 klukkan 18:37

Egill í uppnámi

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
RÚV
Egill Helgason, sjónvarpsmaður.

Smáfuglarnir velta því fyrir sér, eftir að hafa horft á Silfur Egils 15. mars, hvort Egill Helgason sé í nægilegu jafnvægi til að stýra umræðum um afleiðingar bankahrunsins. Það var greinilegt á orðaskiptum Egils og Bjarna Benediktssonar, að Bjarna var nóg boðið um þann umræðugrundvöll, sem Egill lagði og vildi að yrði undirstaða samræðnanna.

Í stóru og smáu veður Egill elginn og slær einhverju fram, sem stenst ekki gagnrýni. Egill fullyrti til dæmis 15. mars, að Björn Bjarnason hefði falið Valtý Sigurðssyni, ríkissaksóknara, og Boga Nilssyni, fyrrverandi ríkissaksóknara, eitthvað, sem Egill lýsti ekki frekar. Hið rétta er, að Björn Bjarnason samsinnti tilmælum frá Valtý Sigurðssyni um, að embætti hans drægi upp heildarmynd af því, sem rannsaka þyrfti vegna bankahrunsins og fékk Valtýr forvera sinn, Boga, til starfans.

Það er kannski ekkert skrýtið, að Egill eigi erfitt með að halda aftur af eigin fordómum, þegar hann á að sitja sem óhlutdrægur stjórnandi. Í stað þess að vera það, er hann í raun aðeins framlenging af bloggsíðu sinni og fordómum hennar í sjónvarpinu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, var í spjallinu hjá Agli. Hann kvartaði í upphafi samtalsins undan því, að framsóknarmenn nytu sín ekki vegna skilningsleysis stjórnarflokkanna en lauk samtalinu með þeim orðum, að framsóknarmenn vildu vinstri stjórn að loknum kosningum! Smáfuglarnir fagna því, að fá enn staðfestingu á því, að Framsóknarflokkurinn er opinn í báða enda.

 
Meira fuglahvísl

Sigrún Davíðs­dóttir uppvís að ósannindum?

Brynjar Níelsson, formaður Lögmanna­félags Íslands, skrifaði fyrir skömmu pistil þar sem hann rakti hvernig Sigrún Davíðs­dóttir, pistlahöfundur Ríkisútvarpsins og einn tíðasti gesturinn í Silfri Egils, var klappstýra útrásarinnar fyrir hrun og einn helsti gagnrýnandi útrásarvíkinganna eftir hrun. Sigrún sveiflaði sér fljótt og fimlega af einum vagninum á annan.

Postularnir tólf hjá Agli

Viðskiptablaðið birti 29. janúar 2012 mjög fróðlegt yfirlit yfir viðmælendur í Silfri Egils frá hruninu haustið 2008. Þar sést hverjir eru tíðustu gestirnir (í sviga hversu oft þeir komu þar fram). Þetta eru tólf postular: 1. Ólafur Arnarson (13), óyfirlýstur blaðafulltrúi Pálma í Fons, sem b...

Sjálfsréttlæting útvarps­stjóra

Smáfuglarnir lásu aftur grein Páls Magnússonar sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hann missir tökin og úthúðar rit­stjóra blaðsins með slíkum ofstopa að ef greinin hefði komið frá einhverjum óþekktari einstaklingi hefði henni verið hafnað eða hugsanlega birt í dálknum „Bréf til blaðsins“. Smáfuglarn...

Þögn Egils um Evu Joly

Smáfuglarnir eru hissa á því að helsti aðdáandi Evu Joly og sá sem tryggði (með dagskrárvaldi sínu) að hún kæmist á laun hins opinbera og fengi greiddar 325 þúsund krónur á dag í laun skuli nú þegja þunnu hljóði um nýjustu fréttir af Evu í heimspressunni. Sagt er frá því í fréttum að 51% Frakka telji að hún sé óheiðarleg og 78% að hún ráði ekki við starf sitt.

Frasabók Hrannars B.

Smáfuglarnir sjá að væntanlegt er tímamótaverk eftir Hrannar B. Arnarsson, fyrrum eiganda Arnarson og Hjörvar sf. og núverandi aðstoðar­mann Jóhönnu Sigurðardóttur. Á forsíðu bókarinnar má sjá nokkra af frösum sem vinstri­stjórnin notar og þá helst Jóhanna. Smáfuglarnir efast ekki um að bókin verð...

Nýr Bjarni Ben

Smáfuglarnir lásu góða grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu í morgun en þar svarar hann málefnalega dylgjum Hallgríms Helgasonar, sem seldi ómálað málverk á tugi milljóna þegar útrásin var í algleymingi, og Björns Ólafs Hallgrímssonar lögmanns. Um efni greinarinnar þarf ekki að fjölyrða en eitt hnutu smáfuglarnir um.

Atvinnuþátttaka aldrei minni

Smáfuglarnir lesa í fréttum að atvinnuþátttaka sé sú minnsta frá því mælingar hófust árið 1991. Þetta eru merkilegar fréttir í ljósi þess að aldrei hefur þörf fólks fyrir fé verið meiri og einmitt nú þegar heimilin hafa þolað mikla rýrnun eigna og skarpa hækkun verðlags umfram launahækkanir. Ef allt...

Jóhanna hrædd við kosningar

Smáfuglarnir sjá á orðfæri Jóhönnu að fáir eru hræddari við kosningar en leiðtogi Samfylkingar­innar. Hún segir við fjölmiðla þessa dagana að „íhaldinu megi ekki takast að reka fleig í ríkis­stjórnina“ með landsdómsmálinu. Þannig skapar Jóhanna þá stöðu að vinstri­stjórnin verði að hanga saman á lyginni einni saman svo halda megi sjálfstæðis­mönnum frá ríkis­stjórn.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX