Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Hinn árvarkri staksteinahöfundur Morgunblaðsins kemst að þeirri niðurstöðu í dálki sínum 11. mars, að „stjórnmálamannastéttin“ hvað sem það nú er, hafi ekki úr háum söðli að detta, traust til á „stéttinni“ sé í algjöru lágmarki.
Smáfuglarnir deila ekki við staksteinahöfundinn um lítið traust til stjórnmálamannastéttarinnar.
Smáfuglarnir velta hins vegar fyrir sér plani eða söðli staksteinahöfundar, þegar hann segir fyrst, að ríkisstjórn „vanvirði“ Alþingi með því að „moka inn í það of mörgum, stórum og flóknum málum“ rétt fyrir þinglok og segir þau því ekki geta „fengið almennilega þinglega meðferð“, og tekur síðan til við að agnúast út í stjórnarandstöðuna fyrir að ræða málið og segir hana gera „sig af fíflum með því að halda uppi málþófi.“
Síðan kemur gamla rollan um, að sjálfstæðismenn hafi hneykslast á málþófi, þegar þeir voru í stjórn, og vinstri-grænir móðgast yfir að hafa ekki fengið að tala nógu lengi í stjórnarandstöðu. Þá segir hinn hneykslaði staksteinahöfundur:
„Skilja stjórnmálamennirnir ekki að almenningi á Íslandi finnst þetta óþolandi?
Fólk hefur aldrei þolað þennan bjánagang á þinginu og gerir það enn síður nú þegar þjóðin er í kreppu.
Hvað verða auðu seðlarnir margir í komandi kosningum?“
Smáfuglarnir verða að segja fyrir sig, að séu þingmenn bjálfar, vegna þess að tekin eru til umræðu og afgreiðslu mál fyrir þinglok, hefur staksteinahöfundurinn ekki úr háum söðli að detta sjálfur, þegar hann tekur sér fyrir hendur að gagnrýna þá með innantómum upphrópunum. Smáfuglunum finnst höfundurinn minna sig á þá, sem stíga í ræðustól á alþingi og hafa ekkert annað til málanna að leggja en gamla útþvælda tuggu og skítkast.
Smáfuglarnir vita ekki betur en Morgunblaðið sé hætt að halda úti þingfréttaritara, hinn síðasti þeirra er orðinn aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar. Þess vegna er lesendum Morgunblaðsins með öllu óljóst, hvernig ritstjórn þess fær fréttir af þinginu, úr því að þær fara ekki lengur í gegnum vinstri-grænar hendur. Smáfuglunum finnst blaðið satt að segja ekki trúverðugt, þegar rætt er um störf Alþingis og greinilega smitað af aulahrollinum, sem fer um staksteinahöfundinn, þegar hann hugsar til þinghússins. Undir mynd úr þingsalnum í Morgunblaðinu 11. mars er þannig sagt frá umræðum um stjórnarskrána, að um hana sé „karpað“ á þingi.
Sigrún Davíðsdóttir uppvís að ósannindum?
Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands, skrifaði fyrir skömmu pistil þar sem hann rakti hvernig Sigrún Davíðsdóttir, pistlahöfundur Ríkisútvarpsins og einn tíðasti gesturinn í Silfri Egils, var klappstýra útrásarinnar fyrir hrun og einn helsti gagnrýnandi útrásarvíkinganna eftir hrun. Sigrún sveiflaði sér fljótt og fimlega af einum vagninum á annan.
Sjálfsréttlæting útvarpsstjóra
Smáfuglarnir lásu aftur grein Páls Magnússonar sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hann missir tökin og úthúðar ritstjóra blaðsins með slíkum ofstopa að ef greinin hefði komið frá einhverjum óþekktari einstaklingi hefði henni verið hafnað eða hugsanlega birt í dálknum „Bréf til blaðsins“. Smáfuglarn...
Smáfuglarnir eru hissa á því að helsti aðdáandi Evu Joly og sá sem tryggði (með dagskrárvaldi sínu) að hún kæmist á laun hins opinbera og fengi greiddar 325 þúsund krónur á dag í laun skuli nú þegja þunnu hljóði um nýjustu fréttir af Evu í heimspressunni. Sagt er frá því í fréttum að 51% Frakka telji að hún sé óheiðarleg og 78% að hún ráði ekki við starf sitt.
Smáfuglarnir sjá að væntanlegt er tímamótaverk eftir Hrannar B. Arnarsson, fyrrum eiganda Arnarson og Hjörvar sf. og núverandi aðstoðarmann Jóhönnu Sigurðardóttur. Á forsíðu bókarinnar má sjá nokkra af frösum sem vinstristjórnin notar og þá helst Jóhanna. Smáfuglarnir efast ekki um að bókin verð...
Smáfuglarnir lásu góða grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu í morgun en þar svarar hann málefnalega dylgjum Hallgríms Helgasonar, sem seldi ómálað málverk á tugi milljóna þegar útrásin var í algleymingi, og Björns Ólafs Hallgrímssonar lögmanns. Um efni greinarinnar þarf ekki að fjölyrða en eitt hnutu smáfuglarnir um.
Smáfuglarnir lesa í fréttum að atvinnuþátttaka sé sú minnsta frá því mælingar hófust árið 1991. Þetta eru merkilegar fréttir í ljósi þess að aldrei hefur þörf fólks fyrir fé verið meiri og einmitt nú þegar heimilin hafa þolað mikla rýrnun eigna og skarpa hækkun verðlags umfram launahækkanir. Ef allt...
Smáfuglarnir sjá á orðfæri Jóhönnu að fáir eru hræddari við kosningar en leiðtogi Samfylkingarinnar. Hún segir við fjölmiðla þessa dagana að „íhaldinu megi ekki takast að reka fleig í ríkisstjórnina“ með landsdómsmálinu. Þannig skapar Jóhanna þá stöðu að vinstristjórnin verði að hanga saman á lyginni einni saman svo halda megi sjálfstæðismönnum frá ríkisstjórn.