Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Bloggarinn Andrés Jónsson, sem smáfuglarnir líta á sem samvisku Samfylkingarinnar í netheimum, spáði því, að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mundi falla frá framboði til formennsku í flokknum. Sú spá rættist ekki og nú hefur Andrés skýrt frá því, hvers vegna það gerðist ekki.
Plottið er þetta: Dagur B. Eggertsson fær yfirburðakosningu sem varaformaður Samfylkingarinnar. Ingibjörg Sólrún handvelur hann (með milligöngu kjörnefndar) á framboðslista í Reykjavík eins og hún handvaldi hann á R-listann. Andrés segir:
„Opinberlega verður látið líta út sem þetta sé óvænt tilboð sem Dagur þurfi tíma til að hugsa um!“
Dagur B. hugsar og kemst á þing eða verður varaþingmaður í sama Reykjavíkurkjördæmi og Ingibjörg Sólrún. Andrés segir, að við svo búið
„muni Ingibjörg Sólrún flokksformaður taka sér langt frí; að lágmarki fram á haust til að byrja með. Á meðan verður Dagur B. Eggertsson starfandi formaður Samfylkingarinnar.
Verði Samfylkingin í ríkisstjórn eftir kosningar er líklegt að ráðherrastóll verði fundinn handa varaformanninum.“
Þá vita smáfuglarnir það og er greinilegt, að það er ekki sama að heita Dagur B. eða Ágúst Ólafur og vera varaformaður Samfylkingarinnar – hið lengsta sem Ágúst Ólafur komst var inn á mynd á Þingvöllum, þegar Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún mynduðu stjórnina 2007. Þegar Ingibjörg Sólrún veiktist, var það Össur Skarphéðinsson, sem tók völdin í sínar hendur, en Ágústi Ólafi var haldið víðs fjarri. Nú ætlar Ingibjörg Sólrún að víkja til að Dagur B. fái að njóta sín, sama aðferð verður notuð og þegar Bryndís Hlöðversdóttir hvarf af þingi, svo að varaþingmaðurinn Ingibjörg Sólrún gæti sest í þingsalinn.
Smáfuglunum þykir spennan aldeilis aukast í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík: Þrjú efstu sætin eru frátekin og síðan er leynigestur við dyrnar, sem á að fá öruggt sæti en þarf ekki að bjóða sig fram. Það er von, að eitt helsta stefnumál Samfylkingarinnar sé að auka lýðræði í landinu. Það á bara að gerast í öðrum flokkum!
Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkisstjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.
Egill hvatti fólk til gjaldeyrislánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda
Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?
Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.
Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.
Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa. Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.
Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.
Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?