Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglunum er ljóst, að Egill Helgason hefur eigið „agenda“ í stjórnmálum, svo að notað sé útlent orð til að fara sem mildustum orðum um hinn óhlutdræga álitsgjafa. Með þetta í huga reyndu smáfuglarnir að lesa á milli línanna í eftirfarandi álitsgjöf Egils um framboð manna í Sjálfstæðisflokknum:
„Nú hefur sama bragðinu tvívegis verið beitt á Guðlaug Þór Þórðarson.
Mótherjar hans innan flokksins gera skoðanakönnun sem síðan er komið í fjölmiðlana á hentugum tíma.
Fyrst var það könnun sem birtist á vefnum Heimi og sýndi að Bjarni Benediktsson naut meira fylgis í formannskjöri en Guðlaugur.
Og nú er það Capacent könnun gerð fyrir Illuga Gunnarsson að því er virðist, sem sýnir að nefndur Illugi nýtur meira fylgis í fyrsta sæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en Guðlaugur.
Illugi og Bjarni eru í sama pólitíska genginu. Ef Bjarni nær formannssætinu og Illugi verður foringinn í Reykjavík má segja að þeir hafi náð flokknum á sitt vald.“
Egill talar um að Guðlaugur Þór hafi verið beittur „bragði“ – það er að leikið hafi verið á hann. Rætt er um „mótherja“ Guðlaugs Þórs og þeir sagðir hafa gert skoðanakönnun og „komið í fjölmiðlana á hentugum tíma“, það er þeir hafi beitt einhverjum ítökum innan fjölmiðla, af því að þetta geti ekki þótt fréttnæmt í sjálfu sér. Egill gefur órsökstutt til kynna að Illugi Gunnarsson hafi látið gera einhverja könnun, og síðan talar hann um „nefndan“ Illuga, slíkt orðalag er almennt talið frekar niðrandi. Þá talar hann um Illuga og Bjarna sem „pólitískt gengi“, tónninn er síður en svo jákvæður og lætur eins og þetta „gengi“ stefni að því að ná „flokknum á sitt vald“, álitsgjafar nota slíkt orðalag aldrei í velviljaðri merkingu.
Niðurstaða lesturs smáfuglanna er þessi: Egill hefur tekið afstöðu með Guðlaugi Þór Þórðarsyni, Gulla, í baráttu hans við „gengið“ Bjarna og Illuga. Smáfuglarnir hlakka til að sjá hvernig Egill vinnur úr þessu „agenda“ í silfri sínu. Eða þeir ættu kannski frekar að segja „okkur hlakkar til“ eins og Sigmar Guðmundsson, starfsbróðir Egils, sagði í Útsvari 20. febrúar.
Sigrún Davíðsdóttir uppvís að ósannindum?
Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands, skrifaði fyrir skömmu pistil þar sem hann rakti hvernig Sigrún Davíðsdóttir, pistlahöfundur Ríkisútvarpsins og einn tíðasti gesturinn í Silfri Egils, var klappstýra útrásarinnar fyrir hrun og einn helsti gagnrýnandi útrásarvíkinganna eftir hrun. Sigrún sveiflaði sér fljótt og fimlega af einum vagninum á annan.
Sjálfsréttlæting útvarpsstjóra
Smáfuglarnir lásu aftur grein Páls Magnússonar sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hann missir tökin og úthúðar ritstjóra blaðsins með slíkum ofstopa að ef greinin hefði komið frá einhverjum óþekktari einstaklingi hefði henni verið hafnað eða hugsanlega birt í dálknum „Bréf til blaðsins“. Smáfuglarn...
Smáfuglarnir eru hissa á því að helsti aðdáandi Evu Joly og sá sem tryggði (með dagskrárvaldi sínu) að hún kæmist á laun hins opinbera og fengi greiddar 325 þúsund krónur á dag í laun skuli nú þegja þunnu hljóði um nýjustu fréttir af Evu í heimspressunni. Sagt er frá því í fréttum að 51% Frakka telji að hún sé óheiðarleg og 78% að hún ráði ekki við starf sitt.
Smáfuglarnir sjá að væntanlegt er tímamótaverk eftir Hrannar B. Arnarsson, fyrrum eiganda Arnarson og Hjörvar sf. og núverandi aðstoðarmann Jóhönnu Sigurðardóttur. Á forsíðu bókarinnar má sjá nokkra af frösum sem vinstristjórnin notar og þá helst Jóhanna. Smáfuglarnir efast ekki um að bókin verð...
Smáfuglarnir lásu góða grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu í morgun en þar svarar hann málefnalega dylgjum Hallgríms Helgasonar, sem seldi ómálað málverk á tugi milljóna þegar útrásin var í algleymingi, og Björns Ólafs Hallgrímssonar lögmanns. Um efni greinarinnar þarf ekki að fjölyrða en eitt hnutu smáfuglarnir um.
Smáfuglarnir lesa í fréttum að atvinnuþátttaka sé sú minnsta frá því mælingar hófust árið 1991. Þetta eru merkilegar fréttir í ljósi þess að aldrei hefur þörf fólks fyrir fé verið meiri og einmitt nú þegar heimilin hafa þolað mikla rýrnun eigna og skarpa hækkun verðlags umfram launahækkanir. Ef allt...
Smáfuglarnir sjá á orðfæri Jóhönnu að fáir eru hræddari við kosningar en leiðtogi Samfylkingarinnar. Hún segir við fjölmiðla þessa dagana að „íhaldinu megi ekki takast að reka fleig í ríkisstjórnina“ með landsdómsmálinu. Þannig skapar Jóhanna þá stöðu að vinstristjórnin verði að hanga saman á lyginni einni saman svo halda megi sjálfstæðismönnum frá ríkisstjórn.