Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir hafa að undanförnu flogið í kjölfar Steve Cossers, Ástralans sem enginn hvorki þekkir né hefur heyrt um, og orðið þess vísari að hann sé samstarfsmaður helstu lykilmanna í gamla Kaupþingi og aðstoði þá nú við að kaupa helstu fjölmiðla á Íslandi.
Þegar smáfuglarnir spurðu farfuglana vini sína sem þekkja heimsins höf kom fátt í ljós um Cosser þennan annað en eitt smáfyrirtæki í Ástralíu. Hann er sagður vera fjárfestir sem fjárfesti í löndum sem starfa samkvæmt áætlunum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þó svo að enginn kannist við nokkur dæmi um slíkar fjárfestingar.
Cosser er ekki af smærri gerðinni og segist eiga 200 milljarða króna og hluta þess fjármagns vilji hann að festa á Íslandi. Hann hefur sagst vilja kaupa opinberar eignir auk þess að vilja kaupa bæði Morgunblaðið og Viðskiptablaðið.
Það er sama hvernig smáfuglarnir velta þessu fyrir sér þá eiga þeir erfitt með að skilja að maður sem sagður er eiga allt þetta fé ætli sér að kaupa gjaldþrota fjölmiðil í bullandi taprekstri á minnsta málsvæði heims og sé nú í öndunarvél hins opinbera. Þá sé enn furðulegra að ætla að gefa út dagblað á tungumáli sem eigandinn á engan möguleika á að skilja sjálfur.
Einu þekktu tengsl Cossers við Ísland er að hann var viðskiptavinur Singer & Friedlander, fyrrum dótturfélags gamla Kaupþings, og þekkir því Kaupþingsmenn vel enda voru það lykilmenn í gamla Kaupþingi sem fóru upphaflega með hann til Íslands og kynntu fyrir landi og þjóð.
Þá velta smáfuglarnir fyrir sér hvers vegna Kaupþingsmenn ættu að vilja eiga gjaldþrota fyrirtæki sem gefur út prentmiðil á Íslandi. Það hefur engum dulist hvernig Morgunblaðið hefur fjallað einna mest um samninga þeirra við erlenda prinsa, útrásarvíkinga og peninga í fjarlægum skattaparadísum. Þannig hafa smáfuglarnir það fyrir víst að um leið og Ástralinn hafi keypt Morgunblaðið muni áhugi hans á öðrum fjárfestingum á Íslandi hverfa með svipuðum hraða og dögg fyrir sólu í suðrænni skattaparadís.
Það skyldi þó ekki vera að senn gætu PR menn stjórnenda gamla Kaupþings sleppt því að senda fréttatilkynningar á fjölmiðla til að mótmæla fréttum. Þeir bæðu bara blaðið sitt um að sleppa þeim.
Jóhann Hauksson á launum hjá Baugi Group
Jóhann Hauksson hefur í gegnum árin verið harðasti stuðningsmaður Baugsklíkunnar og gengið lengra en flestir í að verja þá í daglegri umræðu fjölmiðla. Jóhann var með útvarpsþáttinn Morgunhaninn á Útvarpi Sögu þar sem hann hélt uppteknum hætti og varði Baugsmenn. Nú hefur komið í ljós að Baugur Group kostaði þáttinn og greiddi laun til Jóhanns.
Þorvaldur talar við Mel Brooks
Þorvaldur Gylfason upplýsti í dag í hinni vikulegu grein sinni í málgagni Baugsfeðga að hann hefði nýlega hitt Mel Brooks í búð og gefið sig á tal við hann. Smáfuglarnir hleruðu samtalið: Stranger: „Hello, Mr. Books! I am Þorvaldur Gylfason, an Icelandic economist. I saw your play last night and I thought it was very good.“ Mel (grinning): „An Icelandic economist?“
Ætlar ríkisstjórn sem er á móti Magma inn í ESB?
Smáfuglarnir tóku eftir því að í ályktun Heimdallar frá því í dag er bent á að hefði Magma Energy verið fyrirtæki frá ESB ríki og ef Ísland væri í ESB væri ekkert sem ríkið hefði getað gert til að hindra viðskiptin. Innan ESB geta allir fjárfest þvert yfir landamæri.
Smáfuglunum barst ályktun stjórnar Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Ályktunin skýtur föstum skotum að vinstristjórninni sem Heimdallur segir óstarfhæfa. Smáfuglarnir telja rétt að birta ályktunina í heild sinni. Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, gagnrýnir harðlega fórnarkostnaðinn við að halda óstarfhæfri ríkisstjórn gangandi.
Tími Runólfs kom með Jóhönnu, jafnréttisráðherra
Smáfuglarnir biðja lesendur sína að velta fyrir sér, hvernig Jóhanna Sigurðardóttir hefði látið í stjórnarandstöðu, ef yfirlýstur, stórskuldugur, karlkyns sjálfstæðismaður hefði verið ráðinn umboðsmaður skuldara og gengið hefði verið fram hjá konu, sem veitt hefði skuldurum ráðgjöf á farsælan hátt, árum saman.
Egill gagnrýnir Sigurjón Þ. Árnason fyrir holdafar
Smáfuglarnir sjá að Egill Helgason telur að Björgólfur Thor noti Sigurjón Þ. Árnason sem blóraböggul en Björgólfur sagði margt Sigurjóni að kenna í viðtali við Viðskiptablaðið. Það sem vakti athygli smáfuglanna var áhugaverð greining Egils á Sigurjóni. Egill segir á vefsíðu sinni: Sigurjón Þ....
Sendiherra ESB leiðréttir Eirík Bergmann - EES ekki í hættu
Smáfuglarnir sögðu frá því fyrir stuttu að Eiríkur Bergmann, sérfræðingur í ESB aðild, hefði sagt EES samstarfið í uppnámi ef ESB umsókn yrði dregin til baka. Eins og með annað sem ekki er rétt var þessi skoðun Eiríks leiðrétt.
Tengsl Elíasar Jóns og Þórðar Snæs
Margir hafa velt fyrir sér hvernig tengslum spunameistara vinstristjórnarinnar sé háttað.