amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Sunnudagurinn 19. maí 2013 - 16:45
 
 
Fuglahvísl birtist 30. janúar 2009 klukkan 20:00

Framsókn gefin stærð

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Sigurður Bogi
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins, er ekki tilbúinn til að samþykkja allt sem vinstri stjórn ætlar að gera.

Í hádegisfréttum RÚV fimmtudaginn 29. janúar flutti Heiðar Örn Sigurfinnsson, þingfréttamaður, þennan boðskap:

„Málefnasamningur flokkanna er háður samþykki Framsóknarflokksins sem býðst til að verja stjórnina með hlutleysi sínu. Steingrímur J. kvaðst í morgun ekki hafa áhyggjur af sjónarmiðum Framsóknarflokksins við þessa vinnu. Framsóknarmönnum er haldið upplýstum um gang mála við samningaborðið. Rætt er um að Framsóknarflokkurinn fái embætti forseta Alþingis í sinn hlut við stjórnarskiptin. Það yrði í fyrsta sinn frá því deildir Alþingis voru sameinaðar í eina árið 1991 sem annar flokkur en Sjálfstæðisflokkurinn fær það embætti.“

Smáfuglarnir undrast tóninn í garð framsóknarmanna, sem kemur frá Steingrími J. í þessari endursögn fréttamannsins á orðum hans. Engu er líkara en Steingrími finnist nú ekki mikið þurfa að tala við framsóknarmenn, þeir geri bara eins og þeim er sagt og fái þá dúsu, sem þeir þurfi til að halda þeim á mottunni.

Framsóknarmenn kynntu svo síðdegis 29. janúar helsta framlag sitt til að leysa vanda þjóðarinnar: að kalla saman stjórnlagaþing! Það er líklega rétt mat hjá Steingrími J., að framsóknarmenn séu gefin stærð. Smáfuglarnir velta því fyrir sér, hvort framsóknarmenn séu með hugann við allt annað en samtíma sinn – þeim sé í raun sama um hann og styðji því Steingrím J. og Jóhönnu, hvað sem þeim dettur í hug að gera.

 
Meira fuglahvísl

Verndar lög­regla ekki eignar­rétt Jóns Geralds?

Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.

Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Inga­dóttir

Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Inga­dóttir tók við formennsku í Þingvalla­nefnd.

Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkis­sjóði

Framsóknar­flokkurinn ætlar í nafni ríkis­sjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkis­sjóð. Eftir það ætlar Framsóknar­flokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðar­kaupa. Ríkis­sjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.

Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni

Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstri­stjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.

Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstri­stjórnar­innar?

Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðis­flokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðis­menn gleymt því að Framsóknar­flokkurinn er guðfaðir verstu ríkis­stjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?

Sigmundur lofaði eitt sinn 2.000 milljörðum

Smáfuglarnir hafa grúskað í gömlum fréttum og sjá þar að meira er um loforð Sigmundar Davíðs en efndir eða árangur.

Ásakar formann Framsóknar­flokksins um ósannindi

Sigríður Dögg Auðuns­dóttir ásakar Sigmund Davíð um að birta ósannindi á vefsíðu sinni. Forsaga málsins er sú að Sigríður Dögg blaðamaður á Fréttatímanum tók viðtal við Sigmund Davíð þar sem hún ásamt ljósmyndara fóru saman í ísbíltúr á Þingvelli. Þegar viðtalið kom út, brást Sigmundur illa við og sagði blaðamenn hafa rangt eftir sér og taka hluti úr samhengi.

Framsóknar­maður á bar

Smáfuglunum barst eftirfarandi: Framsóknar­maður og skattgreiðandi sátu á bar. Skattgreiðandinn þurfti á klósettið og bað framsóknar­manninn að passa veskið sitt á meðan. Þegar hann kom til baka voru allir á barnum komnir með þrjá drykki hver og hrópuðu þrefalt húrra fyrir framsóknar­manninum sem útdeildi drykkjum í miðri þvögunni.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX