Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir hafa talið, að Jón Ásgeir Jóhannesson hjá Baugi láti stjórnmál sig ekki varða nema þau snerti hagsmuni hans sjálfs eða pyngju á einhvern hátt – eða hann telji sig geta kennt stjórnmálamönnum um eitthvað, sem hann veit, að geti farið illa fyrir áform hans.
Á visir.is er sagt frá því, að Jón Ásgeir hafi áhyggjur af ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra um að leyfa hvalveiðar til 2013. Telur Jón Ásgeir, að veiðarnar muni „skaða eignir Íslendinga erlendis.“ Það er eignir Jóns Ásgeirs og hann segir:
„Hvalveiðar skaða eignir Íslendinga erlendis sem aldrei hafa verið eins verðmætar fyrir íslenska þjóð og núna. Ég vona að ný ríkisstjórn taki á þessu strax og láti þetta vera sitt annað verk að snúa þessari ákvörðun sjávarútvegsráðherra.“
Smáfuglarnir telja, að lesa megi tvennt út úr þessari óvenjulegu yfirlýsingu Jóns Ásgeirs: Í fyrsta lagi, að hann telji sig eiga nægilegt innhlaup inn í væntanlega stjórn til að þar sé mark á honum tekið. Í öðru lagi, að honum henti að lýsa þessum áhyggjum nú til að geta klínt því á hvalveiðar, þegar fréttir berast af enn meiri vandræðum Baugs erlendis en þegar hafa borist. Það sé hvalurinn en ekki bankahrunið, hinn risavaxni skuldabaggi og samdráttur í smásölu, sem ráði örlögum Baugs á alþjóðavettvangi.
Sigrún Davíðsdóttir uppvís að ósannindum?
Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands, skrifaði fyrir skömmu pistil þar sem hann rakti hvernig Sigrún Davíðsdóttir, pistlahöfundur Ríkisútvarpsins og einn tíðasti gesturinn í Silfri Egils, var klappstýra útrásarinnar fyrir hrun og einn helsti gagnrýnandi útrásarvíkinganna eftir hrun. Sigrún sveiflaði sér fljótt og fimlega af einum vagninum á annan.
Sjálfsréttlæting útvarpsstjóra
Smáfuglarnir lásu aftur grein Páls Magnússonar sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hann missir tökin og úthúðar ritstjóra blaðsins með slíkum ofstopa að ef greinin hefði komið frá einhverjum óþekktari einstaklingi hefði henni verið hafnað eða hugsanlega birt í dálknum „Bréf til blaðsins“. Smáfuglarn...
Smáfuglarnir eru hissa á því að helsti aðdáandi Evu Joly og sá sem tryggði (með dagskrárvaldi sínu) að hún kæmist á laun hins opinbera og fengi greiddar 325 þúsund krónur á dag í laun skuli nú þegja þunnu hljóði um nýjustu fréttir af Evu í heimspressunni. Sagt er frá því í fréttum að 51% Frakka telji að hún sé óheiðarleg og 78% að hún ráði ekki við starf sitt.
Smáfuglarnir sjá að væntanlegt er tímamótaverk eftir Hrannar B. Arnarsson, fyrrum eiganda Arnarson og Hjörvar sf. og núverandi aðstoðarmann Jóhönnu Sigurðardóttur. Á forsíðu bókarinnar má sjá nokkra af frösum sem vinstristjórnin notar og þá helst Jóhanna. Smáfuglarnir efast ekki um að bókin verð...
Smáfuglarnir lásu góða grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu í morgun en þar svarar hann málefnalega dylgjum Hallgríms Helgasonar, sem seldi ómálað málverk á tugi milljóna þegar útrásin var í algleymingi, og Björns Ólafs Hallgrímssonar lögmanns. Um efni greinarinnar þarf ekki að fjölyrða en eitt hnutu smáfuglarnir um.
Smáfuglarnir lesa í fréttum að atvinnuþátttaka sé sú minnsta frá því mælingar hófust árið 1991. Þetta eru merkilegar fréttir í ljósi þess að aldrei hefur þörf fólks fyrir fé verið meiri og einmitt nú þegar heimilin hafa þolað mikla rýrnun eigna og skarpa hækkun verðlags umfram launahækkanir. Ef allt...
Smáfuglarnir sjá á orðfæri Jóhönnu að fáir eru hræddari við kosningar en leiðtogi Samfylkingarinnar. Hún segir við fjölmiðla þessa dagana að „íhaldinu megi ekki takast að reka fleig í ríkisstjórnina“ með landsdómsmálinu. Þannig skapar Jóhanna þá stöðu að vinstristjórnin verði að hanga saman á lyginni einni saman svo halda megi sjálfstæðismönnum frá ríkisstjórn.