Egill talinn rétti maðurinn í framlínu Samfylkingarinnar
Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.
Aldrei brugðist vondum málstað
Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðarnefnda blaðinu.
Smáfuglarnir sem helst flögra um nágrenni Samfylkingarinnar hafa að undanförnu fengið veður af umræðum í grasrót Samfylkingarinnar um að nauðsynlegt sé að nýtt fólk í framsveit flokksins þar sem ekki dugi að fara til kosninga með þá ráðherra og þingmenn sem stóðu vaktina þegar hagkerfið hrundi til grunna. Hefur því að undanförnu verið rætt um hvernig best sé að hreinsa skjöldinn fyrir komandi átök í næstu kosningum.
Egill Helgason hefur verið margnefndur í því samhengi sem lykilmaður í framvarðarsveit Samfylkingarinnar. Þá hefur sæti menntamálráðherra verið nefnt sem mögulegt hlutverk Egils í ríkisstjórn sökum mikillar þekkingar Egils á bókmenntum og listum auk þess sem hann er talinn vilja standa vörð um opinbert menntakerfi sérstakleg nú á erfiðum tímum.
Smáfuglarnir urðu nokkuð undrandi við tíðindin, og skrikaði einum þeirra vængur, þar sem Egill hefur fagnað velgengni á sjónvarpsstöð skattgreiðenda og ekki stefnt að því að stunda stjórnmál með formlegum hætti svo vitað sé. Þá telja smáfuglarnir einnig að langur vegur sé frá því að Egill hafi þau sterku bein sem þurfti til að standa í ólgusjó stjórnmálanna.
Smáfuglarnir hafa þó lært það á undanförnum dögum að allt getur gerst og varasamt að hrapa að ályktunum.
Össur hvass í SvD en lítið mark á honum tekið
Svenska Dagbladet (SvD) segir frá því 11. mars, að Össur Skarphéðinsson sé reiður Anders Borg, fjármálaráðherra Svía, fyrir að segja Íslendinga ekki geta losað sig undan alþjóðaskuldbindingum með þjóðaratkvæðagreiðslu og láta eins og sænska ríkisstjórnin hafi gert það, sem hún gæti, til að aðstoða Í...
Magnús Orri Schram setur ríkisstjórninni 5 skilyrði
Smáfuglunum brá nokkuð, þegar rætt var við Magnús Orra Schram þingmann Samfylkingar, í hádegisfréttatíma RÚV 11. mars, um skilyrði þess, að hann styddi ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Nefndi hann 5 skilyrði og sagði, að tafarlaust yrði að leysa Icesave-deiluna, það væri númer eitt. Hin skilyrði...
Reynir Traustason skuldar Hreini Loftssyni milljónir
Smáfuglarnir lásu frétt Viðskiptablaðsins um félög Hreins Loftssonar af athygli í morgun. Þar kemur fram að gríðarlegt tap hafi verið á félögum í eigu hæstaréttarlögmannsins og fyrrverandi stjórnarformanns Baugs Group, sem nú er gjaldþrota. Hreinn er eigandi DV og nokkurra tímarita en samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins uppsker sá góði maður ekki eins og til er ætlast í rekstri.
Stefnan mörkuð: ríkisstjórnin umfram allt
Föstudaginn 5. mars, daginn fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna, ræddi Helgi Seljan við Steingrím J. Sigfússon í Kastljósi. Helgi spurði meðal annars að því, hvort höfnun Icesave-laganna myndi ekki veikja ríkisstjórnina. Steingrímur J. svaraði: „Ja, ég tel að megi segja að það hafi veikt ríkisstjórn...
Bjarni Harðar. ræðst á þjóðaratkvæðið
Smáfuglarnir hafa upplýst lesendur sína reglulega um raunir Bjarna Harðarsonar. Hann var nýlega í Eþíópíu og varð að bera reiðhjól á bakinu um langan veg, án þess að fá vott né þurrt. Ekki vildi hann þiggja landa hjá bændum vegna bindindissemi og ótta við tréspíritus.
Kallar Álfheiður á lögregluna gegn Ögmundi?
Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, var í morgunútvarpi RÚV 10. mars og sagðist ekki vita, að til stæði að breyta ætti ríkisstjórninni. Hins vegar ætti að breyta öllu stjórnarráðinu á næstunni og þá yrði óhjákvæmilega einhver breyting á ríkisstjórninni. Smáfuglarnir gefa ekki mikið fyrir þes...
Enginn hlustar á Sigmund templara
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar og góðtemplari, lýsti því yfir á vefsíðu sinni að niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar yrðu ákaflega skýr skilaboð til ríkisstjórnarinnar eða forsetans.
Merkilegt er að fylgjast með launahæstu mönnum landsins, flugumferðarstjórum, fara í verkfall til að knýja á um ofurlaunahækkun. Sérstaklega er það merkilegt í ljósi þess að þeir sem hvað hæst laun hafa í þeirra röðum eru með um 2-3 milljónir á mánuði að því er smáfuglar í turnum Keflavíkur og Reykjavíkur fullyrða.