amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 11. mars 2010 - 14:59
 
 
Fuglahvísl birtist 27. janúar 2009 klukkan 13:30

Ágúst Ólafur var á myndinni

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

 
Eftir Einar Kristinn Guðfinnsson Pistill

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

 
Mest lesið
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Ágúst Ólafur Ágústsson var með í stjórnarmyndunarviðræðum á Þingvöllum í maí 2007.

Ágúst Ólafur Ágústsson, fráfarandi alþingismaður og varaformaður Samfylkingarinnar, var í Kastljósi 26. janúar og varði stjórnarslit Samfylkingarinnar af svo miklum þunga, að smáfuglunum var brugðið.

Sérstaklega reiddist Ágúst Ólafur, þegar hann var lítilsvirtur með þeim orðum, að hann hefði ekki komið nálægt stjórnarmynduninni á Þingvöllum í maí 2007. Jú, sagði hann, ég gerði það víst, ég sést á myndinni frá Þingvöllum.

Viti menn, í Fréttablaðinu 21. maí birtist á bls. 6 mynd af þeim Geir og Ingibjörgu Sólrúnu, þar sem þau innsigla samstarf sitt með kossi við Þingvallabæinn í maí 2007. Hver stendur broshýr yst til vinstri á myndinni? Enginn annar en Ágúst Ólafur.

Smáfuglarnir eru þess fullvissir, að birting myndarinnar hefur auðveldað Ágústi Ólafi að taka ákvörðun sína um að hætta sem varaformaður og bjóða sig ekki fram til þings á ný. Nú er spurning, hvern Samfylkingin finnur, sem getur fetað í þau fótspor Ágúst Ólafs að fá 800 atkvæði í varaformannskjöri á 500 manna fundi.

 
Meira fuglahvísl

Össur hvass í SvD en lítið mark á honum tekið

Svenska Dagbladet (SvD) segir frá því 11. mars, að Össur Skarphéðinsson sé reiður Anders Borg, fjármála­ráðherra Svía, fyrir að segja Íslendinga ekki geta losað sig undan alþjóða­skuldbindingum með þjóðar­atkvæða­greiðslu og láta eins og sænska ríkis­stjórnin hafi gert það, sem hún gæti, til að aðstoða Í...

Magnús Orri Schram setur ríkis­stjórninni 5 skilyrði

Smáfuglunum brá nokkuð, þegar rætt var við Magnús Orra Schram þingmann Samfylkingar, í hádegisfréttatíma RÚV 11. mars, um skilyrði þess, að hann styddi ríkis­stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Nefndi hann 5 skilyrði og sagði, að tafarlaust yrði að leysa Icesave-deiluna, það væri númer eitt. Hin skilyrði...

Reynir Traustason skuldar Hreini Loftssyni milljónir

Smáfuglarnir lásu frétt Viðskiptablaðsins um félög Hreins Loftssonar af athygli í morgun. Þar kemur fram að gríðarlegt tap hafi verið á félögum í eigu hæstaréttarlögmannsins og fyrrverandi stjórnar­formanns Baugs Group, sem nú er gjaldþrota. Hreinn er eigandi DV og nokkurra tímarita en samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins uppsker sá góði maður ekki eins og til er ætlast í rekstri.

Stefnan mörkuð: ríkis­stjórnin umfram allt

Föstudaginn 5. mars, daginn fyrir þjóðar­atkvæða­greiðsluna, ræddi Helgi Seljan við Steingrím J. Sigfússon í Kastljósi. Helgi spurði meðal annars að því, hvort höfnun Icesave-laganna myndi ekki veikja ríkis­stjórnina. Steingrímur J. svaraði: „Ja, ég tel að megi segja að það hafi veikt ríkis­stjórn...

Bjarni Harðar. ræðst á þjóðar­atkvæðið

Smáfuglarnir hafa upplýst lesendur sína reglulega um raunir Bjarna Harðarsonar. Hann var nýlega í Eþíópíu og varð að bera reiðhjól á bakinu um langan veg, án þess að fá vott né þurrt. Ekki vildi hann þiggja landa hjá bændum vegna bindindissemi og ótta við tréspíritus.

Kallar Álfheiður á lög­regluna gegn Ögmundi?

Álfheiður Inga­dóttir, heilbrigðis­ráðherra, var í morgunútvarpi RÚV 10. mars og sagðist ekki vita, að til stæði að breyta ætti ríkis­stjórninni. Hins vegar ætti að breyta öllu stjórnar­ráðinu á næstunni og þá yrði óhjákvæmilega einhver breyting á ríkis­stjórninni. Smáfuglarnir gefa ekki mikið fyrir þes...

Enginn hlustar á Sigmund templara

Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar­innar og góðtemplari, lýsti því yfir á vefsíðu sinni að niðurstöður þjóðar­atkvæða­greiðslunnar yrðu ákaflega skýr skilaboð til ríkis­stjórnar­innar eða forsetans.

Ósvífni flugumferðar­stjóra

Merkilegt er að fylgjast með launahæstu mönnum landsins, flugumferðar­stjórum, fara í verkfall til að knýja á um ofurlaunahækkun. Sérstaklega er það merkilegt í ljósi þess að þeir sem hvað hæst laun hafa í þeirra röðum eru með um 2-3 milljónir á mánuði að því er smáfuglar í turnum Keflavíkur og Reykjavíkur fullyrða.

 
 
©2010 Straumröst ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX