Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir velta fyrir sér hvað sagt væri ef tveir menn stæðu við hafnarbakkann, einn frá ríkissjóði og annar frá borgarsjóði, og mokuðu þar seðlum í sjóinn hver í kapp við annan. Þeir hefðu svo vaktaskipti tvisvar á sólahring og þannig væri haldið áfram allt árið um kring? Þeir sem vilja sjá þetta me eigin augum geta gert sér ferð í Hörpuna.

Smáfuglarnir benda á að þegar leggja ríki og borg húsinu til hundruðir milljóna á ári sem dugir ekki til. Húsi er rekið í miklu tapi og enn þarf að auka framlögin úr vösum almennings í dýrasta tónlistarhús veraldar, sé horft á höfðatölu.
Verður aldrei endir á vitleysunni? Hversu lengi munu mennirnir tveir standa á hafnarkantinum og moka fé í sjóinn? Mun enginn stjórnmálamaður hafa dug í sér til að segja hingað og ekki lengra? Mun enginn segja að fyrst skuli klára lífsnauðsynlegar aðgerðir á sjúkrahúsi, koma sjúkrabíl á Hvolsvöll, hafa þyrlur í loftinu eða tryggja öldruðum lífsnauðsynlega þjónustu áður en fé er mokað viðstöðulaust í hafið við Hörpuna?
Harpan er hyldýpi sem aldrei mun lifa án þess að hið opinbera borgi brúsann, hvort sem er ríkissjóði eða borgarsjóði, þeir sem efast um það geta borið saman áætlanir og raunveruleika við allt er snertir hörpuna; byggingarkostnað, rekstrarkostnað, aðsókn, ráðstefnur og svo mætti lengi telja. Ekkert hefur staðist. Ekki neitt.
Það eina sem hefur staðist er að skattgreiðendur borga brúsann.
Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkisstjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.
Egill hvatti fólk til gjaldeyrislánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda
Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?
Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.
Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.
Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa. Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.
Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.
Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?