Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur, skrifaði í gærdag grein þar sem talnabrellur Stefáns Ólafssonar, samfylkingarprófessors, í tengslum við tekjuupplýsingar eru raktar upp. Við lestur greinarinnar sést svart á hvítu hvernig Stefán fer með tölur og staðreyndir. Benedikt segir til dæmis:

Stefán veit að tekjurnar sem birtar eru byggja á launatekjum. Þess vegna eru þær alls ekki villandi (a.m.k. ekki í Frjálsri verslun) því að þar kemur fram að í „tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði.“ Þetta hafði hann getað kynnt sér með því að fara í gegnum lesmál í blaðinu sem ekki er langt, átján línur alls, í tveimur dálkum, níu línur í hvorum dálki. Skýrara getur það ekki verið.
[...]
Hér fer prófessorinn út af sporinu því að hér er alls ekki um vísbendingar um launatekjur fyrir skatta. Þetta er útreikningur á útsvarsstofni eins og glöggt er tekið fram í blaðinu
Grein Beneditks hefur farið sem eldur í sinu um netheima enda ekki á hverjum degi sem stærðfræðingar þurfa að reka ofan í háskólaprófessora einföldustu hluti varðandi tölulegan samanburð, meðferð tölulegra gagna og almennt orðfæri í því samhengi.
Smáfuglarnir heyra innan úr Samfylkingunni að það sé alls ekki nógu gott hversu slæmur Stefán sé í fræðimennsku sinni. Það sé mjög slæmt að helsti talsmaður Samfylkingarinnar í netheimum skuli ekki vera fær um einföldustu hluti þegar kemur að umræðu um tekjur og samanburð. Benedikt endar grein sína m.a. á þessum orðum:
Stefán og félagar hans hafa hins vegar óhikað blandað saman öllum fjármagnstekjum og launatekjum. Það er á skjön við alþjóðlegar skilgreiningar. Samkvæmt skilgreiningu Evrópusambandsins telst hagnaður af sölu hlutabréfa og verðbréfa ekki til ráðstöfunartekna í rannsókn Hagstofunnar.
Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkisstjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.
Egill hvatti fólk til gjaldeyrislánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda
Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?
Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.
Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.
Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa. Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.
Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.
Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?