amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 19. júní 2013 - 19:36
 
 
Fuglahvísl birtist 26. júlí 2012 klukkan 15:10

ESB baráttumaður í framboði til formanns Heimdallar

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir fylgjast með baráttunni um Heimdall, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem nú er hafin. Annars vegar er í framboði sitjandi formaður, Áslaug Anna Sigurbjörnsdóttir, og svo Heimir Hannesson, einn helsti ESB sinni í röðum ungs fólks. Nú þekkja smáfuglarnir ekki vel til í Heimdalli af öðru en umræðu í fjölmiðlum svo þeir spurðu Google ráða.

Smáfuglarnir slógu Heimi upp í leitarvélinni og urðu nokkurs vísari:

Heimir Hannesson er í framboði til formanns Heimdallar.
  • Heimir var meðstjórnandi í samtökum Ungra ESB sinna.
  • Heimir var með ESB þáttinn Undir feldi á ÍNN þar sem fjallað var um aðild Íslands að ESB.
  • Heimir mætti sem fulltrúi ungra evrópusinna á fund í Valhöll þann 14. október 2010 og talaði þar með aðild á móti fulltrúum Ísafoldar sem er félag ungra andstæðinga ESB aðildar.
  • Heimir kemur fram á vefsíðu ESB samtakanna Já Ísland undir nafni og mynd.

Smáfuglarnir telja að Heimir sé hinn ágætasti piltur og voru þættir hans á ÍNN um margt mjög fróðlegir, en en framboð Heimis ekki í vitlausum flokki? Er það ekki Samfylkingin sem vill einn flokka að Ísland gangi plankann og falli ofan í Evrópusambandið? Ætla ungir sjálfstæðismenn í Reykjavík að taka upp stefnumál Samfylkingarinnar?

 
Meira fuglahvísl

Humarinn þarf hvítvín

Smáfuglarnir fylgdust með ofstæki ölfantanna sem enn hafa aðgang að Facebook og ákváðu að þar væri best að úthúða hinum geðþekka formanni Heimdallar fyrir þá skoðun sína að fólk í frjálsu landi ætti að geta keypt áfenga hvítberjasaft og drukkið með humri.

Ný stjórn jákvæð

Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkis­stjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.

Egill hvatti fólk til gjaldeyris­lánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda

Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?

Verndar lög­regla ekki eignar­rétt Jóns Geralds?

Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.

Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Inga­dóttir

Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Inga­dóttir tók við formennsku í Þingvalla­nefnd.

Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkis­sjóði

Framsóknar­flokkurinn ætlar í nafni ríkis­sjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkis­sjóð. Eftir það ætlar Framsóknar­flokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðar­kaupa. Ríkis­sjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.

Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni

Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstri­stjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.

Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstri­stjórnar­innar?

Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðis­flokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðis­menn gleymt því að Framsóknar­flokkurinn er guðfaðir verstu ríkis­stjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX