Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir hafa fylgst með spuna vinstristjórnarinnar í hneysunni í kringum Oddnýju Harðardóttur, sem enn er í starfskynningu sem fjármálaráðherra. Fyrir stuttu kom í ljós að halli ríkissjóðs væru 52 þúsund milljónum umfram það sem samþykkt hafði verið! Engu að síður er allt sagt í sómanum. Óli Björn Kárasin skrifar:
Á síðasta ári nam halli á ríkissjóði 89,4 milljörðum króna eða liðlega 52 milljörðum króna hærri fjárhæð en samþykkt fjárlög gerðu ráð fyrir. Þegar Alþingi afgreiddi fjáraukalög fyrir árið 2011 voru liðlega 10 mánuðir liðnir af árinu. Þrátt fyrir það var reiknað með að hallinn yrði „aðeins“ 46,4 milljarðar króna. Með öðrum orðum; aðeins nokkrum vikum fyrir lok ársins var fjármálastjórn ríkisins ekki betri en svo að halli ríkissjóðs var vanmetinn er nam liðlega 42 milljörðum króna.
Síðan kemur fjármálaráðherra og segir eins og ekkert sé sjálfsagðra að vitað hafi verið að um vanáætlun hafi verið að ræða. Þannig hafi verið ljóst að stór reikningur myndi falla á ríkissjóð vegna SpKef. En þar sem ekki hafi verið vitað hversu hár reikningurinn yrði, þá var í engu tekið tillit til hans! [...] Þegar fjáraukalögin voru afgreidd 17. nóvember á liðnu ári var ljóst að SpKef-reikningurinn yrði a.m.k. 11 milljarðar. En framhjá því var litið og látið eins og allt væri í sóma.
Smáfuglunum kemur þetta ekki á óvart frá ríkisstjórn sem felur öll mál þangað til lyktin er orðin slík að aðrir fara að grafast fyrir um málin. Þannig hafa öll hennar mál verið. Steingrímur J. Sigfússon hikaði til dæmis ekki við að segja ósatt í Icesave málinu þegar hann sagðist ekki hafa neina vitneskju um stöðu viðræðna en svo daginn eftir var samningur kynntur. Jóhanna sagði bláköld að verið væri að fara yfir umsókni um stöðu seðlabankastjóra þegar hún var í raun að semja við Má Guðmundsson um laun hans. Svona mætti áfram telja.
Smáfuglarnir benda einnig á að fyrirtæki sem rekið væri með sama hætti og íslenska ríkið færi lóðbeint á hausinn. Það er kannski þess vegna sem Steingrímur og Oddný hafa aldrei borið ábyrgð í atvinnulífinu.
Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkisstjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.
Egill hvatti fólk til gjaldeyrislánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda
Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?
Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.
Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.
Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa. Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.
Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.
Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?