Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.


Smáfuglarnir muna eftir því þegar Össur Skarphéðinsson taldi forystu samfylkingarinnar hafa verið í of nánum og góðum tengslum við ákveðin auðhring. Átti hann þar svilkonu sína Ingibjörgu Sólrúnu og Baugsveldið. Hins vegar voru fleiri sem voru í miklum og nánum tengslum við Baug og tengd félög.
Björgvin G. Sigurðsson þótti ekki hæfur til fundarsetu sökum þess að allt sem sagt var við hann hefði eins getað verið sagt beint við útrásarvíkingana. Það kom til dæmis vel í ljós þegar hann var kallaður til fundar við Jón Ásgeir um miðja nótt þegar Glitnir rambaði á barmi gjaldþrots.

Jóhanna Sigurðardóttir tók þátt í Baugsverndinni eins og aðrir og lagði sitt af mörkum til að grafa undan embætti ríkislögreglustjóra þegar auðhringurinn var til rannsóknar. Jóhanna fór mikinn vegna kostnaðar við rannsókn meintra brota og taldi það skipta máli í umfangsmikilli sakamálarannsókn. Sjálf hafði hún fengið styrk frá Baugi í prófkjör sitt.
Smáfuglarnir sjá hins vegar að núverandi forysta Samfylkingarinnar, með Jóhönnu í fararbroddi, reynir að festa þessa fortíð alla á Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Einstaka þingmenn í hennar flokki vildu ákæra hana líkt og Geir.
Af þessum sökum var athyglisvert að sjá harðorða grein þeirra Steinunnar Valdísar sem sagði af sér vegna styrkja m.a. frá fyrirtækjum tengdum Baugi og Þórunnar Sveinbjarnardóttur sem ákvað að hætta þingmennsku og snúa sér að námi.
Smáfuglarnir hlakka til að sjá næsta leik í þessum innbyrðisdeilum Samfylkingarinnar enda ljóst að brátt munu andstæðingar Jóhönnu láta til skarar skríða.
Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkisstjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.
Egill hvatti fólk til gjaldeyrislánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda
Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?
Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.
Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.
Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa. Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.
Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.
Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?