Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort einhver hafi gleymt því að núverandi ríkisstjórn hækkaði eða bjó til meira en 100 skattahækkanir? Listinn hér að neðan var tekinn saman af Morgunblaðinu fyrir nokkru og birta smáfuglarnir hann hér á ný. Eðli vinstristjórna má aldrei gleyma.
Hækkun skatta
Tekjuskattur einstaklinga hækkaði um 13.8%
Útsvar hækkaði um 11%
Erfðafjárskattur hækkaði um 100%
Áfengisgjald á Bjór hækkaði um 31,6%
Áfengisgjald á Léttvín hækkaði um 31,6%
Áfengisgjald á sterkt áfengi hækkaði um 27,8%
Olíugjald hækkaði um 19%
Bensíngjald (almennt) hækkaði um 229%
Flutningsjöfnunargjald af bensíni hækkaði um 11%
Vörugjald af bifreiðum hækkaði mest um tæp 50%
Tóbaksgjald hækkaði um 35%
Virðisaukaskattur hækkaði um 4%
Tryggingagjald hækkaði um 62%
Atvinnutryggingagjald hækkaði um 586%
Gjald í ábyrgðasjóð launa hækkaði um 250%
Fjármagnstekjuskattur hækkaði um 100%
Tekjuskattur fyrirtækja hækkaði um 33%
Tekjuskattur sameignarfélaga hækkaði um 53%
Skattur af tilteknum fjármagnstekjum hækkaði um 33-100%
Ekki nóg með þessar gríðarlegu hækkanir heldur fann vinstristjórnin upp fjölda nýrra skatta sem lagðir voru á veikburða atvinnulíf. Hér eru nokkrir.
Nýir skattar
Hátekjuskattur 8%
Auðlegðarskattur 1,5%
Skattur á díselolíu 4,35 kr/ltr
Skattur á Bensín 3,8 kr/ltr
Skattur á flugvélaeldsneyti 4,1 kr/ltr
Skattur á brennsluolíu 5,35 kr/ltr
Gistináttagjald 100 kr/nóttin
Skattur á vaxtagreiðslur 10%
Bankaskattur 0,08%
Skattur á gengisinnlánsreikninga 20%
Orkuskattur á rafmagn 0,12 kr
Orkuskattur á heitt vatn 2%
Skattur á arð til eigenda fyrirtækja 50%
Smáfuglarnir velta fyrir sér hversu mikið lengur kjósendur ætla að láta bjóða sér annað eins ofbeldi? Skattakrumlan hefur aldrei verið grimmari en nú undir stjórn Steingríms J. Sigfússonar og Indriða Þorlákssonar skattahöfundar fjármálaráðuneytisins.
Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.
Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.
Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa. Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.
Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.
Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?
Sigmundur lofaði eitt sinn 2.000 milljörðum
Smáfuglarnir hafa grúskað í gömlum fréttum og sjá þar að meira er um loforð Sigmundar Davíðs en efndir eða árangur.
Ásakar formann Framsóknarflokksins um ósannindi
Sigríður Dögg Auðunsdóttir ásakar Sigmund Davíð um að birta ósannindi á vefsíðu sinni. Forsaga málsins er sú að Sigríður Dögg blaðamaður á Fréttatímanum tók viðtal við Sigmund Davíð þar sem hún ásamt ljósmyndara fóru saman í ísbíltúr á Þingvelli. Þegar viðtalið kom út, brást Sigmundur illa við og sagði blaðamenn hafa rangt eftir sér og taka hluti úr samhengi.
Smáfuglunum barst eftirfarandi: Framsóknarmaður og skattgreiðandi sátu á bar. Skattgreiðandinn þurfti á klósettið og bað framsóknarmanninn að passa veskið sitt á meðan. Þegar hann kom til baka voru allir á barnum komnir með þrjá drykki hver og hrópuðu þrefalt húrra fyrir framsóknarmanninum sem útdeildi drykkjum í miðri þvögunni.