Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir lesa á Mbl að Þór Saari sé æfur yfir því að Stöð 2, sem er einkarekin sjónvarpsstöð sem seld er í áskrift, ætli að bjóða tveimur frambjóðendum til forseta í kappræður. Stöðin vildi fá Ólaf Ragnar og Þóru Arnórsdóttur sem hafa í dag langsamlega mest fylgi í skoðanakönnunum. Þór Saari ritar í bréfi til fjölmiðlanefndar:

Svo virðist sem ákvörðun Stöðvar 2 um að heimila eingöngu tveimur frambjóðendum til kjörs forseta Íslands þátttöku í kappræðum sé ekki í samræmi við lög um fjölmiðla og þá sérstaklega 26. grein þeirra, [...] Vil ég því beina því til nefndarinnar að úrskurða í málinu og grípa í taumana ef með þarf. Það er aðför að lýðræðislegri umræðu og algerlega óþolandi að annar af stærstu fjölmiðlum landsins kemst upp með að útiloka stærstan hluta frambjóðendanna frá þátttöku.
Þór Saari þarf að skilja að Stöð 2 er einkarekin stöð sem útbýr það sjónvarpsefni sem hún telur best henta áskrifendum sínum. Augljóst mál er að bjóða tveimur langsamlega stærstu frambjóðendunum í kappræður og forðast þannig t.d. truflanir Ástþórs Magnússonar. Það er sú dagksrá sem Stöð 2 telur henta. Þeir sem ekki eru sammála því geta sagt upp áskriftinni að Stöð 2 eða horft á eitthvað annað það kvöldið.
Hvar hættir annars frekja Þórs Saari? Mun hann krefja einhvejra opinbera stofnun um að „grípa í taumana“ ef félag út í bæ bíður Ólafi og Þóru á fund? Hvað ef bara einum frambjóðanda er boðið að tala á fundi? Væri það ekki alvarlegasti glæpurinn? Og „aðför að lýðræðislegri umræðu“?
Frekja Þórs Saari er sérlega ógeðfeld og andsnúin öllu ritfrelsi fjölmiðla á vesturlöndum.
Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkisstjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.
Egill hvatti fólk til gjaldeyrislánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda
Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?
Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.
Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.
Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa. Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.
Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.
Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?