Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Árið 1943 kom út bókin Kvæðasafn III sem innihélt kvæði Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Þó liðin séu nær 70 ár frá útkomu bókarinnar þá gæti skáldið ekki hafa hitt naglann betur á höfuðið um þær nöturlegu aðstæður sem nú eru uppi á Íslandi þar sem skorturinn eykst dag frá degi undir öruggri stjórn embættismanna.
Það teygir sig vítt yfir bygðir og borg
og bólgnar af skipulagshroka,
en geigvænt er loftið af gjaldeyrissorg
og grátt eins og Lundúnaþoka.
En borgarinn fálmar sig bugaður inn
og biður um rétt til að lifa,
svo þjónninn, sem hímdi með hönd undir kinn,
má hamast að reikna og skrifa.En þarna fær borgarinn skjal eftir skjal,
sem skráð er gegn réttlátri borgun,
og honum er vísað sal úr sal
og sagt - að koma á morgun,
og svona gengur það ár eftir ár,
því altaf er nóg að skrifa,
og altaf fær borgarinn skipulagsskrár
og skilríki fyrir að lifa.Það lætur víst nærri, að þriðji hver þegn
sé þjónn eða skrifstofugreifi,
en flestum er starfið þó mikið um megn
og margur fær siglingaleyfi.
En borgarinn snýst þarna hring eftir hring
og hlýðir í orði og verki,
og loks þegar alt er þar komið í kring
er klínt á hann - stimpilmerki.Að stofnunin eflist hvern einasta dag
mun afkoma þegnanna sanna,
og auðvitað reikna þeir ríkinu í hag
sem ráðstafa lífi manna.
En varla mun borgarinn blessa þau tákn,
né bætur þeim skriftlærðu mæla,
sem vilja að alt þetta blekiðjubákn
sé bænahús - krjúpandi þræla.
Smáfuglarnir telja það ef til vill ekki skrítið að nú sé á Íslandi sami veruleiki og blasti við skáldinu fyrir 70 árum þar sem Jóhanna og Steingrímur settust á þing um það leyti.
Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkisstjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.
Egill hvatti fólk til gjaldeyrislánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda
Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?
Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.
Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.
Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa. Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.
Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.
Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?