Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir efndu til samkeppni fyrir nokkrum dögum og spurðu þá:
Hvað hefur vinstristjórnin oft kynnt áætlanir um stórfellda uppbyggingu og sókn í atvinnumálum frá því að hún tók við? Hversu mikið af því hefur staðist?
Mörg svör bárust smáfuglunum en eitt þeirra bar af öðrum. Það var leiðari Morgunblaðsins þann 23. maí þar sem farið var yfir loforðaflaum vinstristjórnarinnar en þar sagði:

Snemma árs 2009 ætlaði ríkisstjórnin að skapa „ríflega 4.000 ársverk á næstu misserum“. Skömmu síðar var tilkynnt að ríkisstjórnin hefði ráðist í brýnar aðgerðir sem skila ættu „6.000 ársverkum á næstu mánuðum og misserum“.
Eftir að hafa gefið þessi loforð var bætt í og samið við aðila vinnumarkaðarins um stöðugleikasáttmála og nýja sókn í atvinnumálum, eins og það var kallað. Ríkisstjórnin gaf ekki upp fjölda starfanna að þessu sinni en Alþýðusambandið sagði í tengslum við stöðugleikasáttmálann að honum fylgdu verkefni upp á 950 milljarða króna og yfir 14.000 ársverk.
Á árinu 2010 héldu loforð um þúsundir starfa áfram og síðastliðið haust sagði Jóhanna Sigurðardóttir frá því í stefnuræðu sinni að á næstu árum væru framundan verkefni sem myndu skapa um 7.000 störf og annar eins fjöldi yrði til í orkugeiranum og tengdum fjárfestingum, samanlagt 14.000 störf.
Í liðinni viku gerðist það svo að ríkisstjórnin setti enn einu sinni fram tölur um þau störf sem áformað væri að skapa á næstunni, nánar tiltekið á árunum 2013 til 2015. Á þessum árum á nú að skapa 4.000 bein störf og önnur 6-7.000 afleidd störf, samtals á annan tug þúsunda starfa.
Erfitt er að henda reiður á öllum þessum loforðum um ný störf en þó má sjá að samtals eru þetta um 50.000 störf eða ársverk sem ríkisstjórnin hefur gefið fyrirheit um á síðastliðnum þremur árum að verði til hér á landi en ekkert bólar á.
Smáfuglarnir gera orð Morgunblaðsins að sínum. Ósvífni Jóhönnu og Steingríms gagnvart atvinnulausum á sér fá, ef nokkur, fordæmi.
Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.
Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.
Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa. Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.
Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.
Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?
Sigmundur lofaði eitt sinn 2.000 milljörðum
Smáfuglarnir hafa grúskað í gömlum fréttum og sjá þar að meira er um loforð Sigmundar Davíðs en efndir eða árangur.
Ásakar formann Framsóknarflokksins um ósannindi
Sigríður Dögg Auðunsdóttir ásakar Sigmund Davíð um að birta ósannindi á vefsíðu sinni. Forsaga málsins er sú að Sigríður Dögg blaðamaður á Fréttatímanum tók viðtal við Sigmund Davíð þar sem hún ásamt ljósmyndara fóru saman í ísbíltúr á Þingvelli. Þegar viðtalið kom út, brást Sigmundur illa við og sagði blaðamenn hafa rangt eftir sér og taka hluti úr samhengi.
Smáfuglunum barst eftirfarandi: Framsóknarmaður og skattgreiðandi sátu á bar. Skattgreiðandinn þurfti á klósettið og bað framsóknarmanninn að passa veskið sitt á meðan. Þegar hann kom til baka voru allir á barnum komnir með þrjá drykki hver og hrópuðu þrefalt húrra fyrir framsóknarmanninum sem útdeildi drykkjum í miðri þvögunni.