Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir sjá að þeir sem eyða deginum á kaffihúsum Reykjavíkur eru æfir yfir því að einstaklingar í sjávarútvegi komi nú fram í auglýsingum þar sem bent er á hvað aðför vinstristjórnar að sjávarútvegi hafi í för með sér. Einn þessara kaffihúsaspekinga er Illugi Jökulsson sem segir á vefsíðu sinni:
Auglýsingarnar sem sægreifarnir flytja nú í sjónvarpinu af miklum móð eru einstaklega ógeðfelldar. Verkalýðsleiðtogar, sjómenn og fólk í ýmsum starfsgreinum vitnar um hve ægilegt það væri að hrófla við kvótakerfinu. Allt saman fólk sem á allt sitt undir sægreifunum. Það er mjög raunalegt að horfa á þetta, því maður fær á tilfinninguna að það sé verið að misnota þetta fólk. Þetta jaðrar við siðleysi. Hvort sem fólkið gerir sér sjálft grein fyrir því eða ekki.
Illugi telur samkvæmt þessu sjálfsagt og eðlilegt að taka aflaheimildir af þeim sem hafa keypt þær með heiðarlegum hætti - oft af íslenska ríkinu - og færa þeir einhverjum öðrum til þess eins að þjóna lund Jóhönnu Sigurðardóttir sem situr fylgislaus í stóli forsætisráðherra.

Hann virðist einnig telja betra að eiga allt sitt undir embættismanni í Reykjavík sem flakkar á milli kaffihúsa og borðar ekki fisk heldur en að hundruðir útgerðarmanna skipuleggi rekstur sinn í takt við aðstæður á markaði og reyni að hámarka arð auðlindarinnar.
Það eina raunalega við auglýsingarnar er að þær draga fram óöryggið sem vinstristjórnin hefur skapað atvinnulífinu og landsbyggðinni. Að kollvarpa hagkvæmasta skipulagi í sjávarútvegi á heimsvísu er með ólíkindum hjá stjórn sem mælist með rúmlega 20% fylgi. Og allt án röksemda!
Smáfuglarnir telja að eina siðleysið í málinu séu skrif Illuga Jökulssonar sem virðist gáttaður á því að landsbyggðin bregðist við þegar Jóhanna reynr að ganga á milli bols hennar og höfuðs.
Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkisstjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.
Egill hvatti fólk til gjaldeyrislánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda
Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?
Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.
Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.
Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa. Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.
Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.
Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?