Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Þegar rök þrjóta hafa sumir þann háttinn á að fara fram með persónulegar árásir á þann sem sett hefur fram gagnrýni. Farið er í manninn en ekki boltann, eins og sagt er.
Jóhannes Jónsson, sem eitt sinn var kenndur við Bónus, er rökþrota maður. Því fer hann í manninn, að þessu sinni Egil Helgason. Slíkt hefur aldrei þótt stórmannlegt. En Jóhannes lætur ekki þar við sitja hann ræðst að fjölskyldu Egils. Einu sinni var sagt að slíkt gerðu aðeins smámenni smámenna sem fyrir vikið hlutu fyrirlitningu samborgaranna. En kannski er þetta var hið „Nýja-Ísland“.
Viðskiptablaðið greindi frá því að Jóhannes Jónsson ætli að hasla sér völl á íslenskum matvörumarkaði að nýju og opna lágvöruverslanir í samvinnu við Iceland-keðjuna í Bretlandi. Fréttin vakti athygli smáfuglanna en Jóhannes seldi nýlega hlut sinn í SMS-keðjunni í Færeyjum og herma heimildir að hann hafi fengið í sinn hlut nær einn milljarð króna. Smáfuglarnir áttu því von á að lesa fréttir af því að Jóhannes ætlaði að nota þá fjármuni til að greiða eitthvað upp í gjaldþrot Baugs og 1998 ehf. eignarhaldsfélags um Haga. Eitt sinn sagði Jóhannes að engar skuldir tengar honum og hans fjölskyldu yrðu afskrifaðar. Í viðtali í Kastljósi 16. nóvember 2009, gaf Jóhannes út þessa yfirlýsingu:
„Við ætlum okkur að ganga til samninga við bankann með það að leiðarljósi, að við ætlumst ekki til að hann afskrifi krónu. Við ætlum að borga allar okkar skuldir á ákveðinn hátt með nýju fjármagni. Það tekur náttúrulegan einhvern tíma að borga það niður en við teljum okkur hafa fullan grundvöll fyrir því að ná því fram.“
Nokkrum mánuðum fyrir Kastljós-viðtalið hafði Jón Ásgeir Jóhannesson, lýst því yfir að erlendir fjárfestar væru á leið inn í 1998/Haga með 16 milljarða. Þeir milljarðar sáust aldrei.
Niðurstaðan var allt önnur - tugir milljarða glötuðust, þar á meðal fjármunir lífeyrissjóða.
En hvað vann Egill Helgason sér til óhelgi? Jú hann skrifaði stuttan pistil á vefsvæði sinn á Eyjunni í tilefni af endurkomu Jóhannesar:
„Ein sérkennilegasta þjóðsaga á Íslandi er að Jóhannes kaupmaður sem eitt sinn var kenndur við Bónus hafi verið sérstakur vildarvinur alþýðu. Að hann hafi gert meira fyrir fólkið í landinu en hérumbil allir aðrir.
Jóhannes rak Bónus og verðið var lágt miðað við annað á Íslandi – því verður ekki neitað.
En staðreyndin er sú að þetta var alþjóðleg þróun sem stóð yfir í nokkra áratugi og endaði með því að verslun færðist á æ færri hendur, litlum kaupmönnum var útrýmt og stórar verslanakeðjur náðu kverkataki á framleiðendum og birgjum.
Það er sá veruleiki sem blasir við okkur núna hvarvetna á Vesturlöndum. Jóhannes var helsti fulltrúi þessarar tegundar af kapítalisma á Íslandi. Þetta varð reyndar mjög háþróað hjá þeim feðgum Jóhannesi og Jóni Ásgeiri – því þeir áttu verslanir sem seldu sömu vöruna bæði á lágu verði og á mjög háu verði. Þannig var þeim í lófa lagið að vinna gegn samkeppni.
Nú segist Jóhannes ætla að koma aftur með ensku verslanakeðjuna Iceland. Honum hafi verið bolað burt á sínum tíma – sú fullyrðing mun varla vekja annað en hlátur.“
Jóhannes brást illa við þessum skrifum og svaraði fyrir sig í viðtali við dv.is með ósmekklegum hætti. En kannski er þetta hluti af nýrri hugmyndafræði við markaðssetningu nýrra fyrirtækja - að svívirða samborgarana?
Smáfuglarnir velta einu fyrir sér:
Hvernig ætli verði tekið á gagnrýnendum þegar og ef Jóhannes Jónsson og co. ná aftur fótfestu í íslensku viðskiptalífi?
Skemmtileg tilhugsun!!
Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkisstjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.
Egill hvatti fólk til gjaldeyrislánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda
Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?
Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.
Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.
Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa. Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.
Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.
Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?