amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 23. maí 2013 - 03:41
 
 
Fuglahvísl birtist 10. maí 2012 klukkan 13:04

Stjórnar­formaður RÚV gefur vinstrilínuna og Egill malar

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir rákust á einstaklega ósmekkleg skrif Björgu Evu Erlendsdóttur, stjórnarformanns RÚV, á Facebook síðu sína fyrir skömmu. Þar segir Björg að hún viti að „það [sé] asnalegt að vitna í Moggann, en allar helstu stofnanir og margir vinnustaðir eru í áskrift að þessu brandarahefti og sumir halda að þetta sé einn helsti fjölmiðill landsins.“

Facebook
Björg Eva Erlendsdóttir, stjórnarformaður RÚV, telur ótækt að vitna í Morgunblaðið. Smáfuglarnir birta hér aðeins færslur Björgu og Egils.

Eru þetta orð stjórnarformanns RÚV? Orð æðsta starfsmanns stofnunarinnar?

Hvernig ætli starfsmennirnir hegði sér þegar stjórnarformaðurinn nálgast umfjöllun um þjóðmál með viðlíka hætti? Hversu oft munu starfsmenn RÚV vitna í Morgunblaðið eftir að slík skilaboð frá stjórnarformanninum?

Svörin eru þegar tekin að berast. Egill Helgason, umræðu- og bókmenntastjóra RÚV, var ekki nema nokkrar mínútur að taka undir með stjórnarformanninum. Ekki vill Egill að starf hans sé auglýst eins og annarra hjá opinberum stofnunum svo eins gott er að fara rétt að stjórnarformanninum og taka undir.

Hegðun Björgu Evu Erlendsdóttur er sannindamerki þess að útvarp í almenningseign er hugtak sem stendur ekki undir merkjum. RÚV er áróðurstól vinstrimanna og þeir sem voga sér að vitna í fjölmiðla sem segja satt og rétt frá - þeir geta átt stjórnarformanninum að mæta.

 
Meira fuglahvísl

Humarinn þarf hvítvín

Smáfuglarnir fylgdust með ofstæki ölfantanna sem enn hafa aðgang að Facebook og ákváðu að þar væri best að úthúða hinum geðþekka formanni Heimdallar fyrir þá skoðun sína að fólk í frjálsu landi ætti að geta keypt áfenga hvítberjasaft og drukkið með humri.

Ný stjórn jákvæð

Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkis­stjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.

Egill hvatti fólk til gjaldeyris­lánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda

Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?

Verndar lög­regla ekki eignar­rétt Jóns Geralds?

Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.

Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Inga­dóttir

Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Inga­dóttir tók við formennsku í Þingvalla­nefnd.

Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkis­sjóði

Framsóknar­flokkurinn ætlar í nafni ríkis­sjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkis­sjóð. Eftir það ætlar Framsóknar­flokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðar­kaupa. Ríkis­sjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.

Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni

Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstri­stjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.

Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstri­stjórnar­innar?

Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðis­flokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðis­menn gleymt því að Framsóknar­flokkurinn er guðfaðir verstu ríkis­stjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX