amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 23. maí 2013 - 20:43
 
 
Fuglahvísl birtist 23. apríl 2012 klukkan 15:26

Man Jónas Kristjáns ekki eftir vinstri dónunum?

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir taka eftir því að Jónas Kristjánsson sem hraktist úr ritstjórastarfi við lítinn orðstír er orðinn gamall og geðvondur. En nú bætist við að hann virðist lítið muna lengur. Jónas skrifar nú á heimasíðu sína:

Jónas Kristjánsson er ósammála sjálfum sér.

Hægri dónar vaða uppi í samfélaginu. Forstjóri Moggans neitaði föruneyti kínverska forsætisráðherrans um að fá að skoða Kerið í Grímsnesi. Sagðist vera andvígur ríkisstjórnum Kína og Íslands. Á sama tíma neitaði útrásarbófi í Þróunarfélagi Eyjafjarðar Birni Vali Gíslasyni þingmanni um að mæta á fund félagsins til að skýra kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Hægri jaðarinn er farinn á límingunum. Brýtur aldagamlar siðareglur íslenzka samfélagsins um framkomu í garð gesta. Wen Jiabao er að vísu ekki fínn pappír, en á samt að fá að njóta almennra siðareglna meðan hann er opinber gestur hér á landi.

Enginn hefur kastað stærri steini úr glerhúsi. Jónas man ekki eftir því þegar Shimon Peres, þá utanríkisráðherra Ísraels, kom í opinbera heimsókn til Íslands í ágúst 1993. Leynilegt erindi hans var að kynna fyrir íslenskum stjórnvöldum Oslóar-samkomulagið sem Ísrael hafði gert við Palestínumenn. Davíð Oddsson, þá forsætisráðherra, bauð Peres í kvöldverði í Þingholti. Jónas Kristjánsson skrifaði þá leiðara í DV sem hann stjórnaði þá enn:

Það stríðir gegn heilbrigðum mannasiðum að setjast til borðs með fólki af tagi Peresar. Með því eru menn óbeint að samþykkja framferði þeirra og óhreinka sig af þeim.

Tveir menn fóru eftir skoðun Jónasar, þeir Jón Baldvin Hannibalsson sem var utanríkisráðherra, en gerði sér upp erindi til Ísafjarðar og hitti aldrei Peres, og Ólafur Ragnar Grímsson, sem neitaði að sitja kvöldverðinn með Peres.

Ári síðar voru þeir Peres og Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, sæmdir friðarverðlaunum Nóbels, og nú er Peres forseti Ísraels.

Það er ekki dónaskapur ef einkaaðilar vilja ekki lána stjórnvöldum hús sín eða jarðir, eins og Óskar Magnússon gerði. Það er hins vegar dónaskapur ef menn í opinberum trúnaðarstörfum sýna fulltrúum erlendra ríkja ekki eðlilega framkomu, eins og þeir Jón Baldvin og Ólafur Ragnar gerðu að áeggjan Jónasar Kristjánssonar 1993.

 
Meira fuglahvísl

Humarinn þarf hvítvín

Smáfuglarnir fylgdust með ofstæki ölfantanna sem enn hafa aðgang að Facebook og ákváðu að þar væri best að úthúða hinum geðþekka formanni Heimdallar fyrir þá skoðun sína að fólk í frjálsu landi ætti að geta keypt áfenga hvítberjasaft og drukkið með humri.

Ný stjórn jákvæð

Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkis­stjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.

Egill hvatti fólk til gjaldeyris­lánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda

Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?

Verndar lög­regla ekki eignar­rétt Jóns Geralds?

Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.

Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Inga­dóttir

Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Inga­dóttir tók við formennsku í Þingvalla­nefnd.

Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkis­sjóði

Framsóknar­flokkurinn ætlar í nafni ríkis­sjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkis­sjóð. Eftir það ætlar Framsóknar­flokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðar­kaupa. Ríkis­sjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.

Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni

Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstri­stjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.

Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstri­stjórnar­innar?

Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðis­flokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðis­menn gleymt því að Framsóknar­flokkurinn er guðfaðir verstu ríkis­stjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX