amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 19. júní 2013 - 17:06
 
 
Fuglahvísl birtist 18. apríl 2012 klukkan 08:15

Gylfi Arnbjörnsson bendir á stöðuga aukningu kaupmáttar í tíð hægrimanna

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Gylfi Arnbjörnsson / ASI
Kaupmáttur verkamanna 1906 - 2012. Stöðnun allt þangað til hægrimenn taka við 1991.

Smáfuglarnir sjá að hægrimenn fá óvæntan liðsauka frá Gylfa Arnbjörnssyni, forseta ASÍ, í mynd sem hann birti á vefsíðu sinni á dögunum. Á myndinni má sjá að kaupmáttur launa verkamanna í Dagsbrún/Eflingu jókst mjög afgerandi frá árinu 1990 en hafði verið nær óbreyttur frá stríðslokum.

Í apríl árið 1991 myndaði Davíð Oddsson sína fyrstu ríkisstjórn og sat sem forsætisráðherra fram til ársins 2003.

ASÍ
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, birti graf sem sýnir kaupmáttaraukningi í tíð hægrimanna.

Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort fleiri en þeir hafi séð graf Gylfa? Það gæti skýrt stóraukið fylgi Sjálfstæðisflokksins í síðustu skoðanakönnun en flokkurinn mælist nú með tæp 42% atkvæða.

Annars segir graf Gylfa allt sem segja þarf um stjórnmálastefnu og kaupmátt launa. Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort Gylfi þurfi ekki í ljósi grafsins að endurskoða linnulausa baráttu sína fyrir Samfylkinguna? Er flata línan á grafi Gylfa ekki vinstristefnan í framkvæmd?

 
Meira fuglahvísl

Humarinn þarf hvítvín

Smáfuglarnir fylgdust með ofstæki ölfantanna sem enn hafa aðgang að Facebook og ákváðu að þar væri best að úthúða hinum geðþekka formanni Heimdallar fyrir þá skoðun sína að fólk í frjálsu landi ætti að geta keypt áfenga hvítberjasaft og drukkið með humri.

Ný stjórn jákvæð

Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkis­stjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.

Egill hvatti fólk til gjaldeyris­lánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda

Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?

Verndar lög­regla ekki eignar­rétt Jóns Geralds?

Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.

Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Inga­dóttir

Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Inga­dóttir tók við formennsku í Þingvalla­nefnd.

Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkis­sjóði

Framsóknar­flokkurinn ætlar í nafni ríkis­sjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkis­sjóð. Eftir það ætlar Framsóknar­flokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðar­kaupa. Ríkis­sjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.

Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni

Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstri­stjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.

Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstri­stjórnar­innar?

Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðis­flokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðis­menn gleymt því að Framsóknar­flokkurinn er guðfaðir verstu ríkis­stjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX