amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 25. maí 2013 - 11:21
 
 
Fuglahvísl birtist 13. apríl 2012 klukkan 09:04

Æsispenna: Hver verður næsta Þóru-frétt fjölmiðlanna?

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Undanfarna viku hafa fjölmiðlar flutt hverja æsifréttina af Þóru Arnórsdóttur, fjölmiðlamanni sem vill verða næsti þjóðhöfðingi. Því var slegið upp að hún myndi safna meðmælendum, næst hvar verið væri að safna og svo þegar búið var að safna. Þá var sögð frétt af því að hún myndi opna skrifstofu. Svo kom frétt um að nafngreindur sjálfstæðismaður myndi kjosa Þóru og var það helsta frétt Eyjunnar lengi. Næst kom ný æsifrétt, að Þóra myndi safna fjárframlögum. Svo kom frétt um að hún myndi ekki fá að vita hverjir styrktaraðilarnir væru, því hún væri svo heiðarleg. Síðasta fréttin sem smáfuglarnir sáu var að stjörnuspekingur telur Þóru mjög vænlegan kost, og miðar þá líklega við afstöðu Neptúrnusar til Satúrnusar á þeirri stundu þegar Þóra settist í fulltrúaráð Evrópusamtakanna.

Smáfuglarnir heyra víða að fólk er orðið mjög spennt að heyra næstu Þóru-fréttir. Þessar þykja nú líklegastar:

Fjölmiðlar segja stöðugar fréttir af kollega sínum.
  • Lagnir tengdar í kosningaskrifstofu Þóru Arnórsdóttur. Lagnir nýs tíma og nýrrar hugsunar, segir reyndur pípulagningamaður.
  • Þóra fær ekki að vita hver tengdi lagnirnar. Sýnir heilindi hennar, segir siðfræðingur.
  • „Þóra er eina von þjóðarinnar“, segir sjálfstæðismaður í tímamótabloggi. Öll von er úti ef Þóra þarf að halda áfram í Útsvarinu.
  • „Haugalygi að Jón Baldvin sé föðurbróðir Þóru“, segja vinir hennar. „Jón Baldvin er ekki meiri föðurbróðir hennar en minn!“, segir bróðir Þóru.
  • Óhróðurinn gegn Þóru hrakinn! Engin formleg flokkssamþykkt gerð hjá Samfylkingunni um framboð Þóru. Framboðið tengist flokknum því ekki.

 
Meira fuglahvísl

Humarinn þarf hvítvín

Smáfuglarnir fylgdust með ofstæki ölfantanna sem enn hafa aðgang að Facebook og ákváðu að þar væri best að úthúða hinum geðþekka formanni Heimdallar fyrir þá skoðun sína að fólk í frjálsu landi ætti að geta keypt áfenga hvítberjasaft og drukkið með humri.

Ný stjórn jákvæð

Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkis­stjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.

Egill hvatti fólk til gjaldeyris­lánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda

Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?

Verndar lög­regla ekki eignar­rétt Jóns Geralds?

Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.

Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Inga­dóttir

Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Inga­dóttir tók við formennsku í Þingvalla­nefnd.

Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkis­sjóði

Framsóknar­flokkurinn ætlar í nafni ríkis­sjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkis­sjóð. Eftir það ætlar Framsóknar­flokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðar­kaupa. Ríkis­sjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.

Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni

Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstri­stjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.

Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstri­stjórnar­innar?

Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðis­flokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðis­menn gleymt því að Framsóknar­flokkurinn er guðfaðir verstu ríkis­stjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX