amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 18. maí 2013 - 22:19
 
 
Fuglahvísl birtist 11. apríl 2012 klukkan 13:44

Þögn um aðildar­viðræður

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir sáu frétt á vef Morgunblaðsins þess efnis að þann 11 apríl muni Stefán Haukur Jóhannesson ræða stöðu aðildarviðræðna á fundi hjá Evrópustofu. Í tilkynningu frá stofunni segir:

Össur, Jóhanna og Árni Páll reyna að komast inn í ESB á meðan allir reyna þaðan að flýja vegna skelfilegst ástands í efnahagsmálum.

Nýverið lauk fjórðu ríkjaráðstefnu Íslands og Evrópusambandsins þar sem fjórir samningskaflar voru opnaðir og tveimur lokað aftur til bráðabirgða. Þar með hafa 15 af 33 samningsköflum í aðildarviðræðunum verið opnaðir og tíu lokað aftur til bráðabirgða. Eftir standa 18 kaflar en talið er að sumir þeirra gætu reynst þungir í vöfum, til að mynda kaflarnir um sjávarútveg og landbúnað,„

Kannast einhver við að umræða hafi farið fram um heila 15 samningskafla? Það eina sem smáfuglarnir sjá og heyra af aðildarumræðum eru regluleg fréttaskot hjá Evrópuvaktinni sem fylgist náið með ferlinu. En er það fullnægjandi af hendi stjórnvalda? Er þetta sú opna umræða sem átti að verða um aðildarferlið?

Smáfuglarnir velta fyrir sér hverju hafi verið afsalað í þessum 15 köflum og hvaða kostnað Íslendingar þurfi að bera á herðum sér vegna þeirra. Það er hvergi hægt að fylgjast með málinu þó auðvelt sé að miðla gögnum á tölvuöld.

Aðildarviðræður við ESB virðast fara fram í kyrrþey. Var það hugmyndin?

 
Meira fuglahvísl

Verndar lög­regla ekki eignar­rétt Jóns Geralds?

Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.

Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Inga­dóttir

Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Inga­dóttir tók við formennsku í Þingvalla­nefnd.

Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkis­sjóði

Framsóknar­flokkurinn ætlar í nafni ríkis­sjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkis­sjóð. Eftir það ætlar Framsóknar­flokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðar­kaupa. Ríkis­sjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.

Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni

Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstri­stjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.

Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstri­stjórnar­innar?

Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðis­flokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðis­menn gleymt því að Framsóknar­flokkurinn er guðfaðir verstu ríkis­stjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?

Sigmundur lofaði eitt sinn 2.000 milljörðum

Smáfuglarnir hafa grúskað í gömlum fréttum og sjá þar að meira er um loforð Sigmundar Davíðs en efndir eða árangur.

Ásakar formann Framsóknar­flokksins um ósannindi

Sigríður Dögg Auðuns­dóttir ásakar Sigmund Davíð um að birta ósannindi á vefsíðu sinni. Forsaga málsins er sú að Sigríður Dögg blaðamaður á Fréttatímanum tók viðtal við Sigmund Davíð þar sem hún ásamt ljósmyndara fóru saman í ísbíltúr á Þingvelli. Þegar viðtalið kom út, brást Sigmundur illa við og sagði blaðamenn hafa rangt eftir sér og taka hluti úr samhengi.

Framsóknar­maður á bar

Smáfuglunum barst eftirfarandi: Framsóknar­maður og skattgreiðandi sátu á bar. Skattgreiðandinn þurfti á klósettið og bað framsóknar­manninn að passa veskið sitt á meðan. Þegar hann kom til baka voru allir á barnum komnir með þrjá drykki hver og hrópuðu þrefalt húrra fyrir framsóknar­manninum sem útdeildi drykkjum í miðri þvögunni.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX