Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir lesa grein eftir fréttamanninn Þorbjörn Þórðarson á Stöð 2 sem oft hefur átt ágæta spretti í fréttaflutningi sínum. Þannig tók hann til að mynda viðtal við sjálfan sig á meðan Davíð Oddsson gekk upp stigann í þjóðmenningarhúsinu á leið í vitnastúkuna.
Í greininni fjallar Þorbjörn um þá skoðun sína að Evran sé góður gjaldmiðill og telur að umræða um Evruna á Íslandi sé „óþroskuð“ vegna „mikil[la] áhrif bloggara, sem kynna sér ekki hlutina til hlítar“. Svo segir Þorbjörn „Umræðan á að snúast um staðreyndir og hagsmuni. Hvað sé best fyrir Ísland, en hún gerir það í flestum tilvikum ekki.“.

Nú hafa smáfuglarnir lesið margt um ESB og Evruna og hafa enn ekki rekist á pistil þar sem viðkomandi ræðir annað en hagsmuni Íslands í því samhengi. Kannski hefur Þorbjörn alfarið lesið pistla um eitthvað allt annað þar sem evran er nefnd, til dæmis í tískublöðum, en um það ætla smáfuglarnir þó ekki að dæma.
En hvert er inntakið í skrifum Þorbjarnar? Jú að þeir sem séu á móti Evrunni, og vilja ekki selja sig undir seðlaprentunarvald sterkustu ríkja Evrópu sem prenta peninga fyrir Grikkland, Portúgal, Írland og Spán eða hvern annan sem þarf á „björgunarpakka“ að halda, séu ekki „þroskaðir“ og hafi ekki „kynnt sér málin“ eða „þá miklu hagsmuni“ sem felist í málinu.
Sá sem varið hefur nokkrum mínútum í evru rannsóknir sér strax að hugmyndin er að sterku ríkin í ESB haldi þeim veikari á floti. Þannig munu þjóðverjar halda Grikklandi á floti og taka á sig þungan verðbólguskatt þegar seðlaprentvélarnar í Brussel bræða úr sér.
Þorbjörn segir einnig fullum fetum að það sé jákvætt að ríki sem lendi í áföllum séu „veik í nokkurn tíma“ þar sem atvinnuleysi fer upp úr öllu valdi með tilheyrandi óeirðum og vandamálum. Hér er alvarlegur misskilningur á ferð. Það sem gerist er að skiptakjör landsins við önnur ríki breytast sem kemur strax fram í gengi gjaldmiðla ef ríkin hefðu hvert sýna mynt. Þannig hækkar snarlega verðmæti útflutnings á meðan verð innflutnings hækkar. Þannig verða innlendar vörur álitlegri kostur og hámarksverð fæst fyrir útflutning. Slíkt gefur landinu í heild meðbyr til að takast á við vanda sinn. Atvinnuleysi ríkur ekki upp og höggið dreifist á allt landið. Það eru helstu kostir sjálfstæðrar myntar - þó ýmsir séu ókostirnir.
Smáfuglarnir velta þó einu fyrir sér. Hvenær gerðist það að fréttamenn, sem gefa sig út fyrir að fjalla hlutlaust um málin, fóru að skrifa áróðursgreinar í Fréttablaðið? Telur fréttastofan það vera við hæfi?
Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkisstjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.
Egill hvatti fólk til gjaldeyrislánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda
Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?
Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.
Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.
Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa. Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.
Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.
Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?