amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 23. maí 2013 - 08:14
 
 
Fuglahvísl birtist 13. mars 2012 klukkan 11:23

Nokkur atriði um Jóhönnu Sigurðardóttur

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Það rann upp fyrir smáfuglunum, þegar þeir áttuðu sig á því að Jóhanna las ekki rit Seðlabankans fyrir bankahrun, að Ísland er eina landið í vesturheimi sem þarf að þola forsætisráðherra sem er ófær um einföldustu hluti. Smáfuglarnir tóku saman nokkrar staðreyndir.

Jóhanna hefur falið sig bakvið Steingrím J í erfiðum málum. Þekkir ekki efnahagsmál og forðast umræðuna.
  • Jóhanna er ómenntuð. Hún lauk ekki stúdentsprófi og ekki háskólaprófi. Hún hefur ekki sérþekkingu á nokkru sviði.
  • Jóhanna er slæmur stjórnandi og forðast að hitta fólk. Hún ræðir sjaldan við ráðherra sína og lítið ef nokkuð við æðstu embættismenn. Hún er skapstirður einfari.
  • Jóhanna hefur sett upp falskar nefndir svo að almenningur haldi að ráðningarferli seðlabankastjóra væri faglegt. Á meðan samdi hún sjálf við Má Guðmundsson um launakjör og önnur mál þegar nefndin var enn að störfum!
  • Jóhanna talar engin tungumál og getur ekki tjáð sig á ensku. Hún er eini forsætirsáðherra á vesturlöndum sem þarf túlk á fundi þar sem talað er á ensku.
  • Jóhanna getur ekki lesið ensku upphátt heldur les texta sem hún ekki skilur á íslensku. Hún er límd við blaðið og stendur sig verr en leiðtogar þróunarlanda á alþjóðlegum fundum.
  • Jóhanna þekkir ekki sögu Íslands og veit ekki hvar helstu persónur Íslandssögunnar eru fæddar. Hún hélt því til dæmis fram að Jón Sigurðsson væri fæddur í Dýrafirði en ekki Arnarfirði.
  • Jóhanna skilur ekki efnahagsmál og flutti málaflokkinn úr ráðuneyti sínu um leið og hún tók við sem forsætisráðherra. Þá hefur Jóhanna aldrei rætt kjarna efnahagsmála í sjónvarpi, á fundum eða á þingi frá því að hún varð forsætisráðherra. Steingrímur J. hefur séð um það þrátt fyrir að skilja litlu meira en Jóhanna.
  • Jóhanna las ekki Icesave samninga sem gerðir voru fyrir Íslands hönd eins og fram kemur í bók Sigurðar Más Jónssonar, Icesave-samningarnir. Afleikur aldarinnar.
  • Jóhanna hélt ekki uppi vörnum fyrir Ísland á erlendri grundu og forðaðist alla blaðamenn sem hingað komu til að ræða málið við forsætirsáðherra landsins. Hún forðaðist að hitta erlenda leiðtoga vegna málsins og fjölmiðlar náðu ekki í hana vikum saman.
  • Jóhanna hélt fyrstu og einu kosningarnar í lýðveldissögunni sem dæmdar hafa verið ógildar vegna stórkostlegra galla við framkvæmd. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að kosningin væri ógild. Jóhanna gekk yfir réttinn á skítugum skóm og tilnefndi alla sem hún vildi að skrifuðu nýja stjórnarskrá í nefnd. Ókjörna nefnd.
  • Jóhanna hlaut úrskurð þegar hún braut jafnréttislög og hefur hvergi axlað ábyrgð gjörða sinna. Hún telur ekki að lög um ráðherraábyrgð gildi um sig heldur aðeins aðra.
  • Jóhanna sat í ríkisstjórn fyrir, í, og eftir bankahrun þar sem hún sá um húsnæðismál og hækkaði verulega hámarkslán Íbúðarlánasjóðs og lækkaði kröfur um eigið fé kaupenda sem hafði þau áhrif að hérlendis varð fasteignabóla sem var meginorsök bankabólunnar og hrunsins sem á eftir fylgdi.
  • Jóhanna mætir ekki í fjölmiðla til að svara fyrir verk vinstristjórnarinnar og sendir jafnvel fyrrverandi ráðherra til að verja eigin verk.
  • Jóhanna mætti ekki á árlegt Viðskiptaþing atvinnulífsins þar sem málefni atvinnulífsins eru rædd af forystumönnum atvinnulífs og ráðamönnum. Jóhanna lagði á flótta og gat engar skýringar gefið á fjarveru sinni.

Svona gætu smáfuglarnir talið lengi áfram en ætla, friðar síns vegna, að láta hér staðar numið. Engu að síður er ljóst að verri forsætisráðherra hefur ekki setið á stóli hérlendis.

 
Meira fuglahvísl

Humarinn þarf hvítvín

Smáfuglarnir fylgdust með ofstæki ölfantanna sem enn hafa aðgang að Facebook og ákváðu að þar væri best að úthúða hinum geðþekka formanni Heimdallar fyrir þá skoðun sína að fólk í frjálsu landi ætti að geta keypt áfenga hvítberjasaft og drukkið með humri.

Ný stjórn jákvæð

Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkis­stjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.

Egill hvatti fólk til gjaldeyris­lánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda

Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?

Verndar lög­regla ekki eignar­rétt Jóns Geralds?

Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.

Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Inga­dóttir

Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Inga­dóttir tók við formennsku í Þingvalla­nefnd.

Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkis­sjóði

Framsóknar­flokkurinn ætlar í nafni ríkis­sjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkis­sjóð. Eftir það ætlar Framsóknar­flokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðar­kaupa. Ríkis­sjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.

Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni

Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstri­stjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.

Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstri­stjórnar­innar?

Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðis­flokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðis­menn gleymt því að Framsóknar­flokkurinn er guðfaðir verstu ríkis­stjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX