Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir hafa furðast fréttaflutning af málefnum Baldurs Guðlaugssonar, f.v. ráðuneytisstjóra, sem hlaut dóm fyrir ólögmæt innherjaviðskipti fyrir nokkrum dögum. Baldur hlaut tveggja ára fangelsisdóm auk þess sem nærri 200 milljónir voru gerðar upptækar af bankareikningi hans. Fréttir gærkvöldsins hjá Viðskiptablaðinu og Morgunblaðinu snérust hins vegar ekki um það.
Fréttirnar snérust um hvenær hann hefði afplánun, hvar nákvæmlega hún færi fram, birtar myndir af hegningarhúsum hér og þar og undirstrikað að líklegast yrði Baldur vistaður á Litla-Hrauni einhvern tíman á meðan betrunarvistinni stæði.
Til hvers eru svona fréttir sagðar? Til að auka á niðurlægingu Baldurs? Til að skemmta andstæðingum hans? Vita blaðamennirnir kannski að Baldur var embættismaður sem mátti hvergi vamm sitt vita og að fréttir sem þessar eru honum eflaust verri en dómurinn sjálfur? Smáfuglarnir velta fyrir sér hvað fjölmiðlum gangi til með svona fréttum.
Mál Baldurs hefur farið sína leið í réttarkerfinu og botn er kominn í málið. Hann tekur út sinn dóm eins og aðrir dæmdir menn. Að halda áfram að nudda í málinu er furðulegt og sæmir ekki Viðskiptablaðinu eða Morgunblaðinu að mati smáfuglanna.
Það var við svona fréttaflutningi að búast af Dagblaði Vinstrimanna, DV, en ekki frá hinum blöðunum tveimur sem til þessa hafa verið vönd af virðingu sinni.
345 dagar eftir í starfi hjá Páli Magnússyni
Smáfuglarnir velta fyrir sér hvað Páll Magnússon, hinn máttlausi útvarpsstjóri, muni taka sér fyrir hendur þegar honum verður sagt upp störfum eftir næstu kosningar. Allt bendir til þess Ísland losni undan oki vinstristjórnar eftir næstu kosningar og þá verði tekið til hendinni við að skikka opinberar stofnanir til þess að fylgja settum lögum.
Er fólkið í ESB auglýsingunum ekki misnotað?
Smáfuglarnir hafa undanfarna daga séð hvern vinstrimanninn á fætur öðrum kalla misnotkun að þeim sem komið hafa fram í auglýsingum fyrirtækja og sveitarfélaga um land allt gegn aðför vinstristjórnarinnar að sjávarútveg. Segja þeir jafnan að verið sé að misnota fólkið sem fram kemur og að þetta séu auglýsingar af verstu sort.
Enginn hlekkjaði sig við tæki á Úlfarsfelli
Hræsni umhverfisverndarsinna er oft með ólíkindum. Þannig sagði enginn neitt þegar stórvirkar vinnuvélar lögðu af stað upp mosavaxið Úlfarsfellið til að grafa þar skurð, tæta upp mosa og að endingu reisa 40m hátt mastur á toppi fellsins. Ef hins vegar framkvæmdir hefjast á landsbyggðinni af einhverju tagi eru allir mættir með skilti, borða, handjárn og tjaldbúðir.
Engir atvinnuleytendur á Suðurnesjum?
Smáfuglarnir hafa oft látið orðið „atvinnuleitendur“ angra sig en með því er verið að gera atvinnuleysi þægilegra fyrir þá sem ekki hafa vinnu. Letin er gerð þægilegri og afsakanlegri. Er ekki sá sem er atvinnuleitandi samkvæmt orðsins hljóðan að vera að leita sér að vinnu? Ekki virðist raunin vera sú á Suðurnesjum þar sem fimm sóttu um 11 auglýstar stöður á saumastofu Víkurprjóns.
Heyrðu heimsmarkaðir ekki í Össuri og Oddnýju?
Smáfuglarnir sjá að evran hefur ekki verið veikari gagnvart pundi í bráðum fjögur ár. Engu líkara er en að orð Össurar Skarphéðinssonar og Oddnýjar Harðardóttur um skýringar á vanda evrusvæðisins hafi ekki náð eyrum heimsins. Þetta er furðulegt og hlítur að vera misskilningur.
RÚV þagði um ásakanir forseta í sinn garð
Smáfuglarnir lesa í Vefþjóðviljanum athyglisverða staðreynd. Fréttastofa RÚV nefndi það ekki einu orði að forseti Íslands hafi borið fréttastofuna þungum sökum þess efnis að fréttastofan gangi erinda tiltekins frambjóðanda. Vefþjóðviljinn segir: Þessar ásakanir eru alvarlegar og sérstaklega fréttnæmt að sá, sem ber þær fram á hendur fréttastofu Ríkisútvarpsins, sé forseti Íslands.
Þóra Arnórsdóttir var í framboði fyrir Alþýðuflokkinn
Smáfuglarnir sjá að Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi Samfylkingarinnar, reynir nú að þvo af sér fortíð sína í vinstriflokkunum. Aðeins nokkrir dagar eru frá því að gamall listi yfir kennara í stjórnmálaskóla Samfylkingarinnar fór á flakk á netinu og Þóra neitaði að hafa kennt í skólanum. Ekki voru netverjar með frekari sönnunargögn svo málið féll sumpart niður.
Smáfuglarnir furða sig á því að umræðu um refsidóm Svavars Halldórssonar, maka forsetaframbjóðanda Samfylkingarinnar Þóru Arnórsdóttur, skuli vera koðnuð niður. Hvað sem segja má um Svavar Halldórsson nú þá breytir það ekki því að hann hefur hlotið alvarlegan dóm fyrir alvarlegt brot. Forseti Íslands er æðsti embættismaður landsins og hefur með höndum að staðfesta lög frá Alþingi.