Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Össur sendi samúðarkveðjur til Noregs og þóttist harmi sleginn. En ekki hvað eftir aðra eins árás sem kostaði fjölda fólks lífið og er með ógeðfelldari atburðum í sögu Norðurlanda. En bíðum við.
Er þetta ekki sami Össur og sat nýverið fundi með leiðtogum Hamas og Fatah, hryðjuverkasamtaka sem herja á Ísraelsríki, og lýsti yfir fullum stuðningi við þá fyrir hönd Íslensku þjóðarinnar?
Smáfuglarnir telja að hér sé á ferð einhver mesta hræsni seinni tíma í íslenskum utanríkismálum. Sendi Össur ekki mynd af sér með Hamas liðum í sama bréfi og samúðarskeytið til Noregs?
Við má svo bæta að margir urðu æfir yfir því að þáverandi leiðtogar í ríkisstjórn hefðu lýst yfir stuðningi við bandlag vesturlanda gegn einræðisherranum Saddam Hussein. Í þessu fólki heyrist nú ekki stakt orð yfir einkastuðningi Össurar við hryðjuverkasamtök í Palestínu.
Skafti: Hvenær talar Helgi Seljan við þau?
Smáfuglarnir lásu pistil eftir Skafta Harðarsson sem vekur athygli á því að Kastljós RÚV hefur alfarið sleppt því að fjalla um stór mál í ranni Samfylkingarinnar. Skafti segir: Helgi Seljan hefur reynt að skapa sér nafn sem aðgangsharður fréttamaður.
Vegið að Ástráði - sátt sögð afskrift
Smáfuglarnir sjá að nú á að gera hvað sem er til að verja Gunnar Andersen.
Karlar deyja fyrr og fá engar bætur
Ofangreind fyrirsögn er sett fram í takt við aðrar vælufyrirsagnir blaðanna þar sem blaðamenn finna einhvern sem hefur minna en annar og setja fyrir aftan „og fær engar bætur“. Smáfuglarnir rákust á rakið dæmi fyrir slíka fyrirsögn í Morbunglaðinu í morgun en þar sagði: Árið 2011 gátu nýfæddir...
Þorvaldur og skattlausu launin
Þorvaldur Gylfason heldur úti bloggsíðu á vef Dagblaðs Vinstri Grænna (DVG), hann hafði áður skrifað í Fréttablaðið en menn þar á bæ töldu skrif hans ekki vera þess virði og hættu að greiða fyrir pistla.
Egill nefndi ekki höfund skýrslunnar - hvers vegna?
Smáfuglarnir rákust á furðuleg skrif Egils Helgasonar, umræðustjóra ríkisins, á vefsíðu hans á Eyjunni. En þar segir Egill: Á sama tíma er haldið Viðskiptaþing. Fyrir fáum árum voru menn sammála um að Viðskiptaráð skyldi skammast sín vegna ýmissa hluta sem komu frá því á árunum fyrir hrun.
Smáfuglarnir sjá að á netinu flakkar nú sniðug mynd þar sem búið er að skýra hið furðulega nafn samtaka ESB sinna Já Ísland sem auglýsir nú út um allt land. Smáfuglarnir haf aldrei skilið hvernig hægt er að segja já Ísland á sama tíma og lagt er til að leggja niður fullveldi og selja forræði innanríkismála undir erlenda valdstjórn.
Eiginmaður Álfheiðar Ingadóttur greiddi sekt afbrotamanns
Smáfuglarnir hafa undanfarið velt fyrir sér óeirðunum sem urðu hérlendis árið 2008 þegar lýðræðislega kjörin stjórn var hrakin frá völdum með bálköstum, rúðubrotum, áhlaupi á lögreglustöð, o.s.frv. Vinstri Grænir voru í lykilhlutverkum á öllum vígstöðvum í þeirri skálmöld sem þá geisaði. Þannig f...