Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir sáu að í gærkvöldi var þess vel gætt að landsmenn fengju fréttir af stofnun félags stuðningsmanna Icesave-ánauðarinnar, en helstu Evrópusinnar landsins héldu í gær blaðamannafund þar sem þeir kynntu nýjasta félag sitt, „Áfram!“

Ríkisútvarpið sagði frá þessu í kvöldfréttum sínum og talaði við forsvarsmenn. Ríkissjónvarpið sagði líka frá þessu í kvöldfréttum sínum og talaði við forsvarsmenn. Stöð 2 mætti einnig á staðinn og tók viðtöl við óvænta menn eins og Benedikt Jóhannesson, sem af smekkvísi sinni líkti því fólki við útrásarvíkinga, sem ekki vill gangast í ábyrgð fyrir skuldum útrásarvíkinganna svo Benedikt komist í Evrópusambandið.
En er nokkuð að því að sagt sé frá slíkum blaðamannafundi, jafnvel þótt svo ítarlega hafi verið gert?
Nei það er það svo sem ekki.
En hvernig var með blaðamannafundinn um stofnun félagsins ADVICE, sem berst gegn því að Icesave-ánauðin verði lögð á Íslendinga? Man einhver eftir fréttum af þeim fundi?
Nei, eftir þeim fréttum man enginn, því þær voru ekki sagðar. Fréttastofur Ríkisútvarpsins og 365-miðla sendu ekki einu sinni fréttamenn þangað.
En þegar Evrópusinnar stofna enn eitt félag sitt, þá er nú annað uppi á teningnum. Mesta furða að þeir hafi ekki rofið dagskrána og sent beint út frá fundinum. En landsmenn fá þá yfirsjón væntanlega bætta. Enn eru eftir Silfur, Vikulok og Speglar, svo enn má ræða við nokkra Evrópusinna og taka nokkrar umferðir af hræðsluáróðri.
Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkisstjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.
Egill hvatti fólk til gjaldeyrislánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda
Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?
Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.
Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.
Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa. Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.
Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.
Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?