Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir sjá að könnun MMR á trausti fólks til forystumanna ríkisstjórnarinnar fór eins og við var að búast. Á Vísir segir:

Verulega hefur dregið úr trausti almennings á Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra samkvæmt skoðanakönnun MMR.
Alls segjast 16,9 prósent treysta Jóhönnu í nýrri könnun MMR, en 23,9 prósent báru traust til hennar í síðustu könnun, sem gerð var í maí í fyrra. Fallið er þó mun hærra ef farið er lengra aftur, en 63,6 prósent treystu Jóhönnu í sambærilegri könnun sem gerð var í desember 2008.
Þegar George Bush forseti Bandaríkjanna var sem allra óvinsælastur treystu 22% bandaríkjamanna honum í starfi. Jóhönnu treysta 16,9% eða þrír fjórðu af þeim sem treystu Bush. Þegar Bush var forseti sögðu íslenskir vinstrimenn hvað eftir annað að hann væri umboðslaus og enginn treysti honum til starfa og því ætti hann að segja af sér.
Háværustu vinstrimenn hérlendis, og fjölmiðlamenn, sögðu Bush vera óvinsælasta mann veraldar og vísuðu í trauststölur því til stuðnings. Hvað má þá segja um Jóhönna og 16,9 prósentin?
Ef Bush sló heimsmet í lægsta stuðning við þjóðarleiðtoga - hvar setur það Jóhönnu?
Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.
Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.
Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa. Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.
Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.
Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?
Sigmundur lofaði eitt sinn 2.000 milljörðum
Smáfuglarnir hafa grúskað í gömlum fréttum og sjá þar að meira er um loforð Sigmundar Davíðs en efndir eða árangur.
Ásakar formann Framsóknarflokksins um ósannindi
Sigríður Dögg Auðunsdóttir ásakar Sigmund Davíð um að birta ósannindi á vefsíðu sinni. Forsaga málsins er sú að Sigríður Dögg blaðamaður á Fréttatímanum tók viðtal við Sigmund Davíð þar sem hún ásamt ljósmyndara fóru saman í ísbíltúr á Þingvelli. Þegar viðtalið kom út, brást Sigmundur illa við og sagði blaðamenn hafa rangt eftir sér og taka hluti úr samhengi.
Smáfuglunum barst eftirfarandi: Framsóknarmaður og skattgreiðandi sátu á bar. Skattgreiðandinn þurfti á klósettið og bað framsóknarmanninn að passa veskið sitt á meðan. Þegar hann kom til baka voru allir á barnum komnir með þrjá drykki hver og hrópuðu þrefalt húrra fyrir framsóknarmanninum sem útdeildi drykkjum í miðri þvögunni.