amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 4. febrúar 2012 - 15:55
 
 
Fuglahvísl birtist 26. desember 2008 klukkan 09:46

Evrópu­framganga Ingibjargar Sólrúnar sætir vaxandi gagnrýni sjálfstæðis­manna

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Samfylkingin
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra segir að heilmikil undirbúningsvinna sé hafin í utanríkisráðuneytinu fyrir inngöngu Íslands í ESB.

Innan Sjálfstæðisflokksins vekur Evrópuframganga Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra, sífellt meiri undrun. Ekki sé nóg með, að hún vilji setja sjálfstæðismönnum afarkosti heldur gefi hún nú til kynna, að undirbúningur að aðild að Evrópusambandinu sé kominn á fleygiferð innan utanríkisráðuneytisins, þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar. Ingibjörg Sólrún blási ekki aðeins á gagnrýni innan eigin flokks um umboðsleysi í Evrópusambandsmálum heldur sjáist ekki fyrir innan ríkisstjórnar.

Nýjasta dæmið um einstefnu Ingibjarga Sólrúnar Gísladóttir birtist í hrokafullum viðbrögðum hennar við gagnrýni Stefáns Jóhanns Stefánssonar, varaborgarfulltrúa Samfylkingarinnar, á umboðsleysi hennar og annarra forystumanna flokksins, þegar þau boða aðild að Evrópusambandinu.

Ingibjörg Sólrún var spurð um þá skoðun Stefáns Jóhanns, að Samfylkingin væri ekki í stakk búinn til að styðja aðild að Evrópusambandinu ef hún ætlaði að virða sínar eigin lýðræðislegu samþykktir, í fréttatíma Stöðvar 2 á Þorláksmessu. Ingibjörg Sólrún svaraði á þennan veg:

„Ég er nú ekki sammála honum [Stefáni Jóhanni] því að það hefur verið mikil Evrópuumræða í flokknum árum saman raunar og fyrir síðustu kosningar þá var tekin heilmikil atrenna að þessum málum og m.a var vinnuhópur sem að vann í því að móta samningsmarkmiðin og í honum voru fjölmargir einstaklingar sem að hafa mikla þekkingu á málaflokknum.“

Athyglisvert er, að í þessu svari, tekur Ingibjörg Sólrún ekki af skarið um, hver sé stefna Samfylkingarinnar í Evrópumálum – að margir hafi talað um málið jafngildir því ekki, að því sé lokið. Raunar benti Stefán Jóhann á það í gagnrýni sinni, að vinnuhópurinn, sem Ingibjörg Sólrún nefnir, hafi aldrei lokið störfum. Það liggi alls ekki fyrir nein samningsmarkmið af hálfu Samfylkingarinnar.

Heimir Már Pétursson, fréttamaður á Stöð 2 og yfirlýstur samfylkingarmaður, tók viðtalið við Ingibjörgu Sólrúnu og hefur eftir henni, að „heimikil undirbúningsvinna“ sé í gangi undir hennar stjórn í utanríkisráðuneytinu, enda vilji áköfustu samfylkingarmennirnir „sækja um aðild að Evrópusambandinunu snemma á nýju ári.“ Telji Ingibjörg Sólrún, mikilvægt sé „að ferlið hefjist sem fyrst“ og á þá væntanlega við aðildarferlið. Vill hún „taka ákvörðun um þetta strax í febrúar á næsta ári og fara svo að vinna að málinu í framhaldinu.“

Heimir Már spurði Ingibjörgu Sólrúnu, hvort hún væri bjartsýn á, að hún fengi sjálfstæðismenn með sér í þessa Evrópuferð. Hún svaraði:

„Ég er já frekar bjartsýn á það. En auðvitað getur maður ekkert sagt um það fyrirfram. Ég þekki ekki svo innviðina í Sjálfstæðisflokknum að ég geti spáð fyrir um það. En ég er bjartsýn.“

Þá spurði Heimir Már, hvort Ingibjörg Sólrún vildi, að gengið yrði til þingkosninga í vor, ef sjálfstæðismenn fylgdu henni ekki, og svaraði hún: „Það gæti alveg farið svo já.“

Það kemur sjálfstæðismönnum í opna skjöldu að undirbúningsvinna vegna aðildar Íslands að Evrópusambandinu sé hafin í utanríkisráðuneytinu.

Smáfuglarnir segja, að þessi jólaboðskapur formanns Samfylkingarinnar hafi ekki vakið neina gleði meðal þingmanna Sjálfstæðisflokksins og þeim þyki í raun meira en nóg komið af þessu tali Ingibjargar Sólrúnar um stefnu og störf Sjálfstæðisflokksins. Hitt sé síðan hlálegt, að hún tali þannig ögrandi til samstarfsflokks í ríkisstjórn, án þess að hafa skýrt umboð í Evrópumálum innan síns eigin flokks.

Þá kemur sjálfstæðismönnum í opna skjöldu, að innan utanríkisráðuneytisins sé hafin „heilmikil undirbúningsvinna“ vegna aðildar Íslands að Evrópusambandinu, þvert á það, sem segi í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Orð Ingibjargar Sólrúnar stangist auk þess á við það, sem kom fram í máli Högna Kristjánssonar, yfirmanns Evrópuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, á hádegisfundi sjálfstæðismanna um Evrópumál í Valhöll mánudaginn 22. desember. Högni hafi einmitt verið spurður um það á fundinum, hvort starfsmenn utanríkisráðuneytisins hefðu hafið undirbúning að aðild Íslands að Evrópusambandinu og sagt svo ekki vera.

Í ljósi þess, hvernig Ingibjörg Sólrún talar án nokkurs umboðs um Evrópusambandsaðild inn á við, hafa sjálfstæðismenn vaxandi áhyggjur af því, hvað hún segi um málið í samtölum við erlenda sendiherra eða utanríkisráðherra. Það gefi ekki rétta mynd af pólitískum umboði hennar innan eigin flokks eða ríkisstjórnar, ef hún láti eins og Ísland sé á fleygiferð inn í Evrópusambandið.

Tengt efni

 
Meira fuglahvísl

Sigrún Davíðs­dóttir uppvís að ósannindum?

Brynjar Níelsson, formaður Lögmanna­félags Íslands, skrifaði fyrir skömmu pistil þar sem hann rakti hvernig Sigrún Davíðs­dóttir, pistlahöfundur Ríkisútvarpsins og einn tíðasti gesturinn í Silfri Egils, var klappstýra útrásarinnar fyrir hrun og einn helsti gagnrýnandi útrásarvíkinganna eftir hrun. Sigrún sveiflaði sér fljótt og fimlega af einum vagninum á annan.

Postularnir tólf hjá Agli

Viðskiptablaðið birti 29. janúar 2012 mjög fróðlegt yfirlit yfir viðmælendur í Silfri Egils frá hruninu haustið 2008. Þar sést hverjir eru tíðustu gestirnir (í sviga hversu oft þeir komu þar fram). Þetta eru tólf postular: 1. Ólafur Arnarson (13), óyfirlýstur blaðafulltrúi Pálma í Fons, sem b...

Sjálfsréttlæting útvarps­stjóra

Smáfuglarnir lásu aftur grein Páls Magnússonar sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hann missir tökin og úthúðar rit­stjóra blaðsins með slíkum ofstopa að ef greinin hefði komið frá einhverjum óþekktari einstaklingi hefði henni verið hafnað eða hugsanlega birt í dálknum „Bréf til blaðsins“. Smáfuglarn...

Þögn Egils um Evu Joly

Smáfuglarnir eru hissa á því að helsti aðdáandi Evu Joly og sá sem tryggði (með dagskrárvaldi sínu) að hún kæmist á laun hins opinbera og fengi greiddar 325 þúsund krónur á dag í laun skuli nú þegja þunnu hljóði um nýjustu fréttir af Evu í heimspressunni. Sagt er frá því í fréttum að 51% Frakka telji að hún sé óheiðarleg og 78% að hún ráði ekki við starf sitt.

Frasabók Hrannars B.

Smáfuglarnir sjá að væntanlegt er tímamótaverk eftir Hrannar B. Arnarsson, fyrrum eiganda Arnarson og Hjörvar sf. og núverandi aðstoðar­mann Jóhönnu Sigurðardóttur. Á forsíðu bókarinnar má sjá nokkra af frösum sem vinstri­stjórnin notar og þá helst Jóhanna. Smáfuglarnir efast ekki um að bókin verð...

Nýr Bjarni Ben

Smáfuglarnir lásu góða grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu í morgun en þar svarar hann málefnalega dylgjum Hallgríms Helgasonar, sem seldi ómálað málverk á tugi milljóna þegar útrásin var í algleymingi, og Björns Ólafs Hallgrímssonar lögmanns. Um efni greinarinnar þarf ekki að fjölyrða en eitt hnutu smáfuglarnir um.

Atvinnuþátttaka aldrei minni

Smáfuglarnir lesa í fréttum að atvinnuþátttaka sé sú minnsta frá því mælingar hófust árið 1991. Þetta eru merkilegar fréttir í ljósi þess að aldrei hefur þörf fólks fyrir fé verið meiri og einmitt nú þegar heimilin hafa þolað mikla rýrnun eigna og skarpa hækkun verðlags umfram launahækkanir. Ef allt...

Jóhanna hrædd við kosningar

Smáfuglarnir sjá á orðfæri Jóhönnu að fáir eru hræddari við kosningar en leiðtogi Samfylkingar­innar. Hún segir við fjölmiðla þessa dagana að „íhaldinu megi ekki takast að reka fleig í ríkis­stjórnina“ með landsdómsmálinu. Þannig skapar Jóhanna þá stöðu að vinstri­stjórnin verði að hanga saman á lyginni einni saman svo halda megi sjálfstæðis­mönnum frá ríkis­stjórn.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX