Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Forysta Samfylkingarinnar með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Össur Skarphéðinsson í broddi fylkingar hefur ekkert umboð frá flokki sínum til að tala digurbarkalega eða setja öðrum úrslitakosti um aðild að Evrópusambandinu (ESB). Stefán Jóhann Stefánsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjavík og andstæðingur ESB-aðildar, segir frá þessu í Morgunblaðinu 23. desember.
Stefán Jóhann minnir á niðurstöðu póstkosningar innan Samfylkingarinnar um Evrópumál árið 2002. Hún hafi ekki leitt til endanlegrar niðurstöðu um aðildarstefnu flokksins. Á flokksþingi 2003 hafi ekki heldur verið gengið frá málinu. Þá segir í grein Stefáns Jóhanns:
„Setja skyldi aðildarumsókn á stefnuskrá á grundvelli skilgreindra samningsmarkmiða og stofna skyldi sérstakan starfshóp til að vinna að þessum samningsmarkmiðum. Framkvæmdastjórn flokksins kom því síðan í verk að skipa starfshóp um samningsmarkmiðin stuttu síðar. Undirritaður var beðinn að taka sæti í þessum hópi. Óskað var ítrekað eftir því að hann kæmi saman, en af því varð aldrei og því hefur ekkert starf farið fram svo vitað sé. Þess vegna verður ekki séð að Samfylkingin hafi fylgt því eftir sem samþykkt var í póstkosningunni og samþykkt á landsfundi árið 2003, þ.e. að skilgreina svokölluð samningsmarkmið sem væru forsenda umsóknar um aðild að Evrópusambandinu. Þrátt fyrir það hefur nú mátt skilja á ýmsum þingmönnum og forystumönnum Samfylkingar að nú sé rétt að sækja um aðild. Þar með yrði póstkosningin og samþykkt landsfundar virtar að vettugi.“
Innan Samfylkingarinnar gætir vaxandi óróa meðal þeirra, sem sætta sig ekki við einstefnu Ingibjargar Sólrúnar í Evrópumálum og þykir hún hafa samræðustjórnmál og lýðræðislegar leikreglur að engu.
Sigrún Davíðsdóttir uppvís að ósannindum?
Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands, skrifaði fyrir skömmu pistil þar sem hann rakti hvernig Sigrún Davíðsdóttir, pistlahöfundur Ríkisútvarpsins og einn tíðasti gesturinn í Silfri Egils, var klappstýra útrásarinnar fyrir hrun og einn helsti gagnrýnandi útrásarvíkinganna eftir hrun. Sigrún sveiflaði sér fljótt og fimlega af einum vagninum á annan.
Sjálfsréttlæting útvarpsstjóra
Smáfuglarnir lásu aftur grein Páls Magnússonar sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hann missir tökin og úthúðar ritstjóra blaðsins með slíkum ofstopa að ef greinin hefði komið frá einhverjum óþekktari einstaklingi hefði henni verið hafnað eða hugsanlega birt í dálknum „Bréf til blaðsins“. Smáfuglarn...
Smáfuglarnir eru hissa á því að helsti aðdáandi Evu Joly og sá sem tryggði (með dagskrárvaldi sínu) að hún kæmist á laun hins opinbera og fengi greiddar 325 þúsund krónur á dag í laun skuli nú þegja þunnu hljóði um nýjustu fréttir af Evu í heimspressunni. Sagt er frá því í fréttum að 51% Frakka telji að hún sé óheiðarleg og 78% að hún ráði ekki við starf sitt.
Smáfuglarnir sjá að væntanlegt er tímamótaverk eftir Hrannar B. Arnarsson, fyrrum eiganda Arnarson og Hjörvar sf. og núverandi aðstoðarmann Jóhönnu Sigurðardóttur. Á forsíðu bókarinnar má sjá nokkra af frösum sem vinstristjórnin notar og þá helst Jóhanna. Smáfuglarnir efast ekki um að bókin verð...
Smáfuglarnir lásu góða grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu í morgun en þar svarar hann málefnalega dylgjum Hallgríms Helgasonar, sem seldi ómálað málverk á tugi milljóna þegar útrásin var í algleymingi, og Björns Ólafs Hallgrímssonar lögmanns. Um efni greinarinnar þarf ekki að fjölyrða en eitt hnutu smáfuglarnir um.
Smáfuglarnir lesa í fréttum að atvinnuþátttaka sé sú minnsta frá því mælingar hófust árið 1991. Þetta eru merkilegar fréttir í ljósi þess að aldrei hefur þörf fólks fyrir fé verið meiri og einmitt nú þegar heimilin hafa þolað mikla rýrnun eigna og skarpa hækkun verðlags umfram launahækkanir. Ef allt...
Smáfuglarnir sjá á orðfæri Jóhönnu að fáir eru hræddari við kosningar en leiðtogi Samfylkingarinnar. Hún segir við fjölmiðla þessa dagana að „íhaldinu megi ekki takast að reka fleig í ríkisstjórnina“ með landsdómsmálinu. Þannig skapar Jóhanna þá stöðu að vinstristjórnin verði að hanga saman á lyginni einni saman svo halda megi sjálfstæðismönnum frá ríkisstjórn.