Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Vinstristjórnin sem komst til valda með ofbeldi og lét valdníðslu gagnvart saklausu fólki verða sitt fyrsta verk, fær nú að kenna á eigin ráðum. Hún hefur sleppt lausu hatri, öfund og úlfúð í þjóðfélaginu. Með því hefur hún unnið illt verk og lítilmannlegt.
Stjórnin hefur skírskotað til allra lægstu hvata manna og þannig æst upp ofbeldissinnað fólk. Hún hefur vakið upp gamla drauga. Það sést vel á Austurvelli við stefnuræðu forsætisráðherra í dag, 4. október, sem er afmælisdagur forsætisráðherrans.
Afmælisbarnið sjálft, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur sýnt að hún er lítilla sanda og lítilla sæva. Hún vann það til að verða forsætisráðherra að rjúfa grið á milli forystumanna stjórnmálaflokkanna og flæma úr embætti seðlabankastjóra mann sem alltaf hafði lagt gott til hennar. Hún ber fulla ábyrgð á þeim svikasamningi sem gerður var við Breta og Hollendinga í Icesave-deilunni.
Jóhanna lagði á ráðin með fulltrúum Samfylkingarinnar í hinni illræmdu þingmannanefnd Atla Gíslasonar. Hún hvarf hins vegar frá stuðningi við ákærur þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hótaði að upplýsa um ábyrgð hennar (og hefur raunar þegar gert það).
Hinn aðalforystumaður ríkisstjórnarinnar, Steingrímur J. Sigfússon, er eins og vindhani á bjálka. Hann snýst eftir veðrinu hverju sinni, eins og sýnt er vel í tveimur sjónvarpsviðtölum við hann á mbl.is um mótmælaaðgerðir. Og hann lét sig hafa það að sitja í ríkisstjórn sem sótti um aðild að Evrópusambandinu!
Steingrímur réðst eitt sinn í þingsal með ofbeldi að Geir H. Haarde sem lét kyrrt liggja. Í annað skipti kallaði hann Davíð Oddsson gungu og druslu. Nú tekur hann þátt í að skipuleggja pólitísk réttarhöld að stalínískri fyrirmynd.
Það er dapurlegt að sjá hvernig þau tvö, Jóhanna og Steingrímur, og samverkafólk þeirra hafa spillt andrúmsloftinu í þjóðfélaginu og eitrað út frá sér. Nú ríða hatur, öfund og úlfúð húsum á Íslandi.
345 dagar eftir í starfi hjá Páli Magnússyni
Smáfuglarnir velta fyrir sér hvað Páll Magnússon, hinn máttlausi útvarpsstjóri, muni taka sér fyrir hendur þegar honum verður sagt upp störfum eftir næstu kosningar. Allt bendir til þess Ísland losni undan oki vinstristjórnar eftir næstu kosningar og þá verði tekið til hendinni við að skikka opinberar stofnanir til þess að fylgja settum lögum.
Er fólkið í ESB auglýsingunum ekki misnotað?
Smáfuglarnir hafa undanfarna daga séð hvern vinstrimanninn á fætur öðrum kalla misnotkun að þeim sem komið hafa fram í auglýsingum fyrirtækja og sveitarfélaga um land allt gegn aðför vinstristjórnarinnar að sjávarútveg. Segja þeir jafnan að verið sé að misnota fólkið sem fram kemur og að þetta séu auglýsingar af verstu sort.
Enginn hlekkjaði sig við tæki á Úlfarsfelli
Hræsni umhverfisverndarsinna er oft með ólíkindum. Þannig sagði enginn neitt þegar stórvirkar vinnuvélar lögðu af stað upp mosavaxið Úlfarsfellið til að grafa þar skurð, tæta upp mosa og að endingu reisa 40m hátt mastur á toppi fellsins. Ef hins vegar framkvæmdir hefjast á landsbyggðinni af einhverju tagi eru allir mættir með skilti, borða, handjárn og tjaldbúðir.
Engir atvinnuleytendur á Suðurnesjum?
Smáfuglarnir hafa oft látið orðið „atvinnuleitendur“ angra sig en með því er verið að gera atvinnuleysi þægilegra fyrir þá sem ekki hafa vinnu. Letin er gerð þægilegri og afsakanlegri. Er ekki sá sem er atvinnuleitandi samkvæmt orðsins hljóðan að vera að leita sér að vinnu? Ekki virðist raunin vera sú á Suðurnesjum þar sem fimm sóttu um 11 auglýstar stöður á saumastofu Víkurprjóns.
Heyrðu heimsmarkaðir ekki í Össuri og Oddnýju?
Smáfuglarnir sjá að evran hefur ekki verið veikari gagnvart pundi í bráðum fjögur ár. Engu líkara er en að orð Össurar Skarphéðinssonar og Oddnýjar Harðardóttur um skýringar á vanda evrusvæðisins hafi ekki náð eyrum heimsins. Þetta er furðulegt og hlítur að vera misskilningur.
RÚV þagði um ásakanir forseta í sinn garð
Smáfuglarnir lesa í Vefþjóðviljanum athyglisverða staðreynd. Fréttastofa RÚV nefndi það ekki einu orði að forseti Íslands hafi borið fréttastofuna þungum sökum þess efnis að fréttastofan gangi erinda tiltekins frambjóðanda. Vefþjóðviljinn segir: Þessar ásakanir eru alvarlegar og sérstaklega fréttnæmt að sá, sem ber þær fram á hendur fréttastofu Ríkisútvarpsins, sé forseti Íslands.
Þóra Arnórsdóttir var í framboði fyrir Alþýðuflokkinn
Smáfuglarnir sjá að Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi Samfylkingarinnar, reynir nú að þvo af sér fortíð sína í vinstriflokkunum. Aðeins nokkrir dagar eru frá því að gamall listi yfir kennara í stjórnmálaskóla Samfylkingarinnar fór á flakk á netinu og Þóra neitaði að hafa kennt í skólanum. Ekki voru netverjar með frekari sönnunargögn svo málið féll sumpart niður.
Smáfuglarnir furða sig á því að umræðu um refsidóm Svavars Halldórssonar, maka forsetaframbjóðanda Samfylkingarinnar Þóru Arnórsdóttur, skuli vera koðnuð niður. Hvað sem segja má um Svavar Halldórsson nú þá breytir það ekki því að hann hefur hlotið alvarlegan dóm fyrir alvarlegt brot. Forseti Íslands er æðsti embættismaður landsins og hefur með höndum að staðfesta lög frá Alþingi.